Fréttablaðið - 06.09.2012, Síða 20
6. september 2012 FIMMTUDAGUR20
Umsjón: nánar á visir.is
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur auglýst eftir hugmyndum
að IPA-verkefnum á Íslandi en markmið þeirra er að undirbúa mögulega
þátttöku í uppbyggingarsjóðum ESB komi til aðildar að sambandinu.
Auglýst er e ftir verkefnum á sviði:
Atvinnuþróunar og byggðamála
Velferðar- og vinnumarkaðsmála
Til ráðstöfunar eru u.þ.b. 8,3 milljónir evra. Stefnt er að því að verja þeim til allt að
20 verkefna um allt land á árinu 2013.
Verkefni skulu taka mið af „Ísland 2020“ stefnumörkuninni og vera unnin í samstarfi
a.m.k. þriggja aðila. Lágmarksstyrkur til hvers verkefnis er 200 þús. evrur og að hámarki
ein milljón evra.
Umsóknafrestur er til 30. nóvember 2012
Frekari upplýsingar um IPA og umsóknargögn eru aðgengileg á slóðinni:
www.byggdastofnun.is/ipa
Kynningarfundir verða haldnir á eftirfarandi stöðum á næstunni:
Grand hóteli Reykjavík 10. september kl. 13-17.30
Háskólanum á Akureyri 11. september kl. 13-17.30
Hótel Héraði á Egilsstöðum 12. september kl. 13-17.30
Hægt verður að fylgjast með fundinum þann 11. september á vefsíðu Byggðastofnunar.
Fundirnir eru öllum opnir og aðgangur er ókeypis. Tilkynna þarf um þátttöku
á netfangið ipa@byggdastofnun.is með a.m.k. sólarhrings fyrirvara.
14,3 MILLJARÐAR KRÓNA var heildarvelta á millibankamarkaði í ágúst. Þar af námu gjaldeyriskaup Seðlabankans 1,79 milljörðum króna.
Ísland situr sem fastast í 30.
sæti á lista Alþjóðaefnahags-
ráðsins (World Economic
Forum) um samkeppnishæfni
þjóða.
Í umsögn ráðsins kemur fram
að íslenska hagkerfið sé framar-
lega þegar kemur að stofnunum
og innviðum samfélagsins, heil-
brigðiskerfi og menntakerfi.
Þá telur ráðið að hér á landi sé
frjór jarðvegur fyrir nýsköpun
auk þess sem vinnumarkaðurinn
þykir sveigjanlegur.
Á móti er bent á í skýrslunni
að heimamarkaður sé lítill, staða
efnahagsmála flókin auk þess
sem fjármálamarkaðurinn þykir
veikur. - mþl
Samkeppnishæfni þjóða:
Íslenska hag-
kerfið í 30. sæti
Algengt vandamál hjá fyrirtækjum er að
leggja mikla vinnu í stefnumótun en mistak-
ast svo að hrinda stefnumótuninni í fram-
kvæmd á fullnægjandi hátt. Þetta segir
Jereon de Flander, belgískur metsöluhöfund-
ur og sérfræðingur í innleiðingu stefnumót-
unar.
Fréttablaði ræddi í vikunni við de Flander
sem verður aðalfyrirlesari á ráðstefnu Capa-
cent í Hörpu 20. september næstkomandi
sem ber yfirskriftina: Frá stefnu til árang-
urs. Á ráðstefnunni mun de Flander fjalla um
hvernig hægt er að taka skrefið frá stefnu-
mörkun til aðgerðaáætlunar og mun hann
byggja á rannsóknum sínum og viðamikilli
starfsreynslu.
„Fyrir það fyrsta er mikilvægt að hafa í
huga að stefnumótun og innleiðing eru tveir
ólíkir hlutir. Þú þarft í raun einungis tvo
snjalla einstaklinga til að móta góða stefnu.
Þú læsir þá inni í herbergi í tólf vikur og þá
ættu þeir að koma út aftur með vel heppnaða
stefnumótun. Til að innleiða hana almenni-
lega þarf hins vegar alla starfsmenn fyrir-
tækisins. Það má líkja því við að borða fíl.
Það gengur einungis upp ef allir taka lítinn
bita,“ segir de Flanders og bætir við að þar að
auki taki mun lengri tíma að innleiða stefnu-
mótun í fyrirtæki en að móta stefnuna.
Spurður hvað fyrirtæki þurfi að gera til að
forðast að falla í þá gryfju að gleyma vand-
aðri stefnumótun ofan í skúffu svarar de
Flander: „Í fyrsta lagi held ég að fyrirtæki
verði að vera meðvituð um þessa hættu. Til
að gefa þér hugmynd um hve mikil hún er get
ég nefnt að viðskiptatímaritið Harvard Bus-
iness Review framkvæmdi rannsókn á þessu.
Niðurstaðan var sú að um helmingur allra
markmiða sem meðalfyrirtækið setur sér við
stefnumótun týndust við innleiðingu stefnu-
mótunarinnar. Það er eins og að
stefna á Ólympíugull en takast
ekki einu sinna að vinna Suður-
landsmótið. Fæstir gera sér
grein fyrir þessu og það er því
það fyrsta sem fyrirtæki ber að
gera; átta sig á vandanum.“
De Flander segir enn fremur
að margir stjórnendur geri þau
mistök að láta undirmenn sína
um innleiðingu stefnumótunar.
Það sé óráð því innleiðingin þurfi
að eiga sér stað á öllum stigum
fyrirtækisins, hún verði með öðrum
orðum að verða partur af menningu
fyrirtækisins. Allir starfsmenn þurfi að
vera með stefnumótunina í huga.
„Að lokum er mikilvægt að innan fyrir-
tækja sé kunnátta á því hvernig breyta
megi hugmyndum og stefnu í verk-
efni sem starfsmenn geta svo
tekið að sér og klárað. Það er
einungis á síðustu árum sem
sú færni og stefnumótunarinn-
leiðing í víðara samhengi hefur
orðið hluti af náminu í flestum
viðskiptaháskólum. Fyrir fáum
árum voru bara tveir við-
skiptaháskólar í heiminum
sem kenndu þetta og því hafa
fæstir stjórnendur á vinnu-
markaðnum í dag lært form-
lega um stefnumótunarinn-
leiðingu. Mín ráðlegging til
stjórnenda er því að kynna
sér þessi fræði og þjálfa
starfsmenn fyrirtækisins
upp í þeim.“
magnusl@frettabladid.is
Einn nefndarmaður í peninga-
stefnunefnd Seðlabankans vildi
hækka vexti bankans um 0,25 pró-
sentustig við vaxtaákvörðun bank-
ans í ágúst. Fjórir nefndarmenn
studdu hins vegar tillögu seðla-
bankastjóra um að halda vöxtum
óbreyttum sem varð ofan á.
Þetta kemur fram í fundar-
gerð peningastefnunefndarinnar
vegna vaxtaákvörðunarinnar í
síðasta mánuði. Fundargerðin var
gerð opinber í gær en á fundinum
í ágúst var vöxtum bankans haldið
óbreyttum og eru virkir stýrivext-
ir bankans 5,125%.
Að mati meirihluta nefndarinn-
ar var við hæfi að halda vöxtum
óbreyttum í ljósi þess að verðbólga
hafði farið lækkandi og raunstýri-
vextir þar með hækkað. Rétt væri
að bíða og sjá hversu varanleg
hækkun krónunnar í sumar væri
áður en vextir yrðu hækkaðir frek-
ar.
Minnihluti nefndarinnar taldi
hins vegar að þar sem langtíma-
verðbólguvæntingar hefðu lítið
breyst þrátt fyrir lækkun verð-
bólgu væri ástæða til að hækka
vexti að þessu sinni.
Fundargerðir af vaxtaákvörð-
unarfundum peningastefnunefnd-
arinnar skulu samkvæmt lögum
birtar opinberlega tveimur vikum
eftir hverja vaxtaákvörðun. Í árs-
skýrslu bankans verður síðan
greint frá því hvernig einstakir
meðlimir nefndarinnar hafa greitt
atkvæði á árinu. - mþl
Fundargerð peningastefnunefndar opinberuð:
Einn nefndarmaður
vildi hækka stýrivexti
PENINGASTEFNUNEFNDIN Sú breyting hefur orðið á nefndinni frá því að þessi mynd
var tekin að Anne Sibert prófessor hætti í nefndinni en í stað hennar var skipuð
Katrín Ólafsdóttir lektor.
Haustráðstefna Advania verður
á Hilton Reykjavik Nordica
hótelinu á morgun. Búist er við
tæplega eitt þúsund gestum á
ráðstefnuna sem er einn stærsti
viðburður í upplýsingatækni-
samfélaginu á Íslandi.
Alls verða fjörutíu fyrirlestr-
ar fluttir á ráðstefnunni sem
hefur fjögur þemu; sparnað,
hagnýtingu, fróðleik og virkni.
Meðal fyrirlesara verða Dan
Lyons, tækniritstjóri Newsweek,
Björn Zoëga, forstjóri Land-
spítalans og Janne Sigurðsson,
forstjóri Fjarðaráls. Búist er við
um eitt þúsund gestum og verð-
ur þeim öllum boðið á landsleik
Íslands og Noregs í knattspyrnu
um kvöldið.
- mþl
Haustráðstefna Advania:
Stór tækniráð-
stefna á morgun
Helmingur markmiða sem
fyrirtæki setja sér týnast
Jeroen de Flander er sérfræðingur í innleiðingu stefnumótunar fyrirtækja. Hann verður fyrirlesari á ráðstefnu
hér á landi síðar í mánuðinum en hann segir flestum fyrirtækjum mistakast við innleiðingu stefnumótunar.
STRATEGY EXECUTION
HEROES De Flander
gaf út bókina Strategy
Execution Heroes sem
hefur komist á met-
sölulista viðskiptabóka
hjá vefbókaversluninni
Amazon í fimm
löndum.
JEROEN DE
FLANDER
De Flander
hefur veitt
þúsundum
stjórnenda í
24 löndum
ráðgjöf um
innleiðingu
stefnumót-
unar.