Fréttablaðið


Fréttablaðið - 06.09.2012, Qupperneq 24

Fréttablaðið - 06.09.2012, Qupperneq 24
24 6. september 2012 FIMMTUDAGUR Fréttir af Ben Stiller og fylgdarliði hans hafa verið áberandi á síðustu vikum og mánuðum. Það er ekki hægt annað en vera stoltur af athyglinni sem vakin er á landinu okkar með veru hans og annarra kvikmyndastjarna hér. En það er vert að minna sig á það af hverju þau eru hér. Við viljum gjarnan tengja það beint við okkar stórbrotna lands- lag og fögru náttúru sem að sjálfsögðu eiga þar stóran þátt. En fyrst og fremst komum við til greina sem tökustaður fyrir stórmyndir eins og „The Secret life of Walter Mitty“ vegna laga um endurgreiðslu til kvikmyndagerðar sem sett voru árið 1999. Lögin byggja á því að veita endurgreiðslu á 20% af fram- leiðslukostnaði kvikmynda sem fellur til á Íslandi. Við setningu þessara laga varð Ísland samkeppnishæft á alþjóðlegum vettvangi sem tökustaður fyrir erlendar stórmyndir. Það þarf ekki að taka fram hversu mikil og góð áhrif lögin hafa haft á greinina en í dag starfa um 800 manns við kvikmyndagerð á Íslandi og eru þar ótalin öll þau afleiddu störf sem falla til en talið er að þau séu allt að þrisvar sinnum fleiri. Við þurfum ekki að hafa áhyggjur af því að missa fólkið okkar úr landi í þessari grein – miklu frekar höfum við verið að fá fólkið okkar aftur heim sem starfað hefur við kvikmynda- gerð erlendis. Staða kvikmyndaiðnaðarins á Íslandi í dag er staðfesting á því að þegar ríkisvald- ið sleppir tökunum, lækkar álögur og leyf- ir einkaframtakinu að njóta sín þá njóta allir góðs af því. Nú stendur til að hækka álögur á ferðaþjónustu þannig að nánast verður útilokað fyrir fyrirtækin að vera áfram samkeppnishæf alþjóðlega. Það gilda nákvæmlega sömu lögmál í ferða- þjónustunni og að markaðssetja Ísland sem tökustað. Ef skattaumhverfið er ekki sam- keppnishæft þá komum við ekki til greina – við erum ekki á listanum. Ef við ætlum að nýta þann meðbyr sem Ben Stiller og félagar hans hafa veitt okkur þá hækkum við ekki álögur á ferðaþjónustu. Það gilda nákvæmlega sömu lögmál í ferða- þjónustunni og að markaðssetja Ísland sem tökustað. FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is og Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is HELGAREFNI: Sigríður Björg Tómasdóttir, ritstjórnarfulltrúi, sigridur@frettabladid.is MENNING: Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is DÆGURMÁL: Kjartan Guðmundsson kjartan@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ: Elín Albertsdóttir elin@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is ÍÞRÓTTIR: Sigurður Elvar Þórólfsson seth@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 greinar@frettabladid.is FRÁ DEGI TIL DAGS HALLDÓR Ben Stiller og samkeppnishæfni Viðskipti Þórey Vilhjálmsdóttir framkvæmdastjóri borgarstjórnar- flokks Sjálfstæðis- flokksins Sjokkerandi sjokkering Guðríður Arnardóttir, oddviti Samfylk- ingarinnar í Kópavogi, sagði DV í gær að hún væri frekar sjokkeruð. Tilefnið var að forsvarsmaður fyrirtækis sem var úthlutað lóð í bænum var kosn- ingastjóri Ármanns Kr. Ólafssonar bæjarstjóra. Guðríður hyggst leggjast yfir þessi tengsl, sem komu henni greinilega svo mikið á óvart að hún er sjokkeruð yfir þeim. Þetta vekur upp spurningar um ábyrgð kjörinna fulltrúa. Guð- ríður sat fund fram- kvæmdaráðs 4. apríl þar sem dregið var á milli umrædds fyrirtækis og annars umsækjanda og bæjarstjórnar þann 10. apríl þar sem úthlutunin var samþykkt. Hún hefði kannski átt að vera búin að kynna sér umsækjendurna fyrir fram, frekar en að sjokkerast á þeim eftir á. Breiðu spjótin Margt merkilegt hefur komið fram í réttarhöldum vegna ákæru Gunn- laugs M. Sigmunds- sonar á hendur Teiti Atlasyni vegna meiðyrða. Þau tíðkast þar breiðu spjótin, ekki síst í yfir- lýsingum, en í vitnastúku settist í gær Jón Baldvin Hannibalsson fyrrum utan- ríkisráðherra. Óstarfhæfur ráðherra Eitt í orðum Jóns Baldvins vekur athygli umfram annað, nefnilega það að hann hafi ekki getað brugðist við minnisblaði sem hann fékk sem ráðherra um að ýmislegt væri vafa- samt í starfsemi Kögunar. Jón Baldvin var nefnilega upptekinn í kosninga- baráttu, en minnisblaðið barst honum mánuði fyrir kosningar árið 1995. Er það svo með fleiri ráðherra að þeir séu óstarfhæfir vikum saman fyrir kosningar, þar sem þeir reyna að ná endurkjöri? kolbeinn@frettabladid.is Uppkomin börn alkóhólista Komin í bóka- verslanir Loksins fáanleg aftur! Í sland og Grikkland eru, með réttu eða röngu, holdgervingar alþjóðlegu fjármálakreppunnar. Ástæður hamfara þeirra eru þó afar ólíkar. Ísland féll vegna þess að ofurskuldsettur einkageiri dró þjóðríkið með sér niður en Grikkland felldi sig sjálft með gegndarlausri ríkisskuldabréfaútgáfu og hömlulausu útgjalda- fylleríi. Í umræðu um Evrópusambands- aðild hérlendis er því oft haldið fram að ástand Grikkja væri ekki jafn slæmt og það er ef þeir væru með drökmu í stað evru. Þá gætu þeir gengisfellt eins og Íslendingar og náð fram risavaxinni eignatil- færslu frá almenningi til útflutn- ingsaðila til að ná jákvæðum vöru- skiptajöfnuði. Vandi Grikkja var hins vegar ekki gjaldmiðillinn, þó hann hafi gert þeim kleift að fá meira lánað þegar þeir voru ekki borgunarmenn skulda sinna. Vandinn var feluleikur grískra stjórn- valda og vilji ESB til að líta í hina áttina. Síðan Grikkland lagði spilin á borðið og sýndi sína réttu fjárhags- stöðu er ljóst að landið blekkti sig í raun inn í evrópska myntsamstarf- ið. Þegar Grikkir tóku upp evru árið 2001 sögðu opinberar tölur að fjárlagahalli væri nánast enginn, að prósentustig atvinnuleysis væru teljandi á fingrum annarrar handar og að skuldir landsins væri tæpur þriðjungur af þjóðarframleiðslu. Við hrun Grikklands árið 2009 kom hins vegar í ljós að stjórnendur landsins höfðu verið að fikta í neyslu- vísitölunni til að fela verðbólgu, skráðu atvinnuleysi allt of lágt og fóru í ótrúlegar æfingar við að fela skuldir utan ríkisreiknings. Í dag eru skuldir Grikkja 132,4 prósent af þjóðarframleiðslu, atvinnuleysi 23,1 prósent og fjárlagahallinn tæplega sjö prósent. Lærdómurinn sem hægt er að draga af aðferðum Grikkja er sá að ríki geta ekki falið eiginlegt ástand til lengdar. Því lengur sem dregið er að takast á við vandann, því erfiðari verður hann viðureignar þegar sá tími kemur. Það sést best á 21,27 prósenta skuldatryggingarálagi á tíu ára skuldabréf sem Grikkland gefur út. Það er langsamlega hæsta álag allra Evrópuþjóða. Íslensk stjórnvöld virðast þó ekki ætla að draga þann lærdóm. Þvert á móti hefur þeim ríkisábyrgðum og fjárhagslegu skuldbind- ingum ríkisins sem koma ekki fram í fjár- eða fjárlaukalögum fjölgað til muna eftir bankahrun. Þannig er til dæmis neikvæð trygginga- fræðileg staða A-deildar Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins (LSR) upp á rúma 47 milljarða króna ekki færð til skuldar né bakábyrgð ríkissjóðs á gríðarlegum skuldbindingum B-deildar sama sjóðs. Alls- herjarábyrgð á öllum innstæðum fjármálafyrirtækja er það ekki að neinu leyti heldur þrátt fyrir að hún hafi kostað íslenska skattgreið- endur 26 milljarða króna í ár vegna falls SpKef. Þá eru tugmilljarða króna framkvæmdir, sem samþykkt hefur verið að ráðast í, geymdar utan ríkisreiknings. Þar ber helst að nefna Hörpuna, nýtt sjúkrahús, Vaðlaheiðargöng og mögulega nýtt fangelsi á Hólmsheiði. Til viðbótar hangir Icesave-málið, af öllum sínum fjárhagslega þunga, enn yfir þjóðinni og gæti dottið inn á skuldahlið hennar ef illa fer. Það er ekki nóg að sópa þessum íþyngjandi kostnaðarliðum út af ríkisreikningi. Þeir hverfa ekki þótt þeir sjáist ekki tímabundið. Líkt og Grikkir geta vitnað um þá finnur alltaf einhver skítinn undir tepp- inu á endanum. Ísland fetar grískar leiðir: Falin skuld er samt skuld Þórður Snær Júlíusson thordur@frettabladid.is SKOÐUN
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.