Fréttablaðið - 06.09.2012, Side 35

Fréttablaðið - 06.09.2012, Side 35
| FÓLK | 3TÍSKA Grunnflétturnar eru átta og út frá þeim er endalaust hægt að tvinna saman og leyfa hugmyndafluginu að njóta sín,“ segir Agnes Drífa Pálsdóttir hársnyrtir og fléttukennari á Hár- greiðslustofunni á Klapparstíg. Í gærkvöldi kenndi hún aðferðir við að flétta hár og gera skemmtilegar greiðslur á fyrsta hand- verkskaffi haustsins í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi. „Þekktust er hefðbundin, þriggja þátta flétta og svo fastar fléttur, réttar og öfugar. Einnig má nefna snúning með tveimur fléttum, fléttufoss og fléttuvafninga sem líkja má við körfugerð og fer eftir færni hversu margar fléttur er hægt að flétta og hnýta saman,“ útskýrir Agnes. Hún segir fléttur hæfa öllum tilefnum daglegs lífs. „Á miðöldum voru evrópskar vinnukon- ur með fléttað hár til að halda því hreinu og frá augum. Á sama tíma báru hefðarfrúr tilkomumikl- ar greiðslur með mörgum fléttum vöfðum upp í íðilfagra galasnúða.“ Agnes segir alla geta lært að flétta en gott sé að fá handleiðslu þar sem réttu handtökin eru sýnd. „Þegar komin er grunnþekking opnast heimur óendanlegra fléttumöguleika og ómótstæðilegra hárgreiðslna. Áhöldin eru hárbursti, greiða, teygj- ur og spennur og alltaf traust að nota gott hárlakk til verksins. Það stífir hárið og gefur því festu áður en fléttað er og öruggast að spreyja flétturnar líka að verki loknu, ekki síst lausu flétturnar.“ Þess má geta að saumaklúbbar og aðrir hópar geta leitað til Agnesar og notið liðsinnis hennar við að læra að flétta. ■ thordis@365.is FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýsingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir | Sölumenn: Jónína María Hafsteinsdóttir, jmh@365.is, s. 512 5473 | Sverrir Birgir Sverrisson, sverrirbs@365.is, s. 512 5432 | Elsa Jensdóttir, elsaj@365.is, s. 512-5427 FAGURT FLÉTTUFÁR ALLTAF VIÐ HÆFI Lausar fléttur í anda pönk-rómantíkur, fléttufossar, dregnar fléttur og fléttuhnútar tröllríða nú rauða dreglinum og stærstu íþróttaviðburðum heims. Fléttur passa enda við öll tilefni og allir geta lært að flétta. KLIPPTI SIG SJÁLF Á uppvaxtarárunum lærði Agnes að flétta sjálfa sig upp á tíu en gat engan veginn fléttað aðra uns hún lærði réttu tökin. FLÉTTUÐ GALAGREIÐSLA Hér eru fastar fléttur notaðar sem grunnur í gala- greiðslu. Gerðar eru tvær fastar fléttur og snúið upp á endana til að búa til rós í hnakkann. Þetta geta þeir auðveldlega sem kunna að flétta fasta fléttu. MYND/GVA DREGIN FLÉTTA Í dag er þér boðið í 25 ára afmælisveislu Cosmo 25 ÁRA -25% Á milli kl. 19 og 21 • DJ Siggi Hlö • Veglegar veitingar í boði 25% afmælisafsláttur af öllum vörum Happadrætti • Komum og höfum gaman saman Mynd tekin 1990

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.