Fréttablaðið - 06.09.2012, Qupperneq 36
FÓLK|TÍSKA
■ SKRÍTIN TÍSKA
Í sumar hefur verið mikið um
það að búið sé að klippa búta
af tískufötum. Algengast er
að búið sé að klippa út yfir
axlirnar eða yfir rifbeinin.
Þetta er ekki aðeins tíska sem
fólk hefur verið að prófa heima
hjá sér, heldur eru allar helstu
fatabúðir og tískuhús byrjuð
að selja slíkan fatnað. Holly-
wood-stjörnurnar hafa skartað
klipptum kjólum á rauða
dreglinum og kemur
það oftast ótrúlega
vel út. Sumar flíkur
eru djarfari en aðrar
og sýna meira en
mörgum finnst
siðsamlegt.
Lítið mál
er að prófa
þetta heima
með því ein-
faldlega að
klippa út yfir
aðra öxlina.
Mikilvægt er
þó að mæla
vel svo allt
sé jafnt og
muna að
sauma fyrir
endana.
KLIPPT Í
FÖTIN
Anna Gréta Sveinsdóttir, nagla- og förðunarfræðingur, segir það alltaf vera að aukast að stelp-
ur og konur fái sér skreyttar neglur.
„Fyrir nokkrum árum voru steinar eina
skrautið sem var notað en nú er þetta
orðið miklu fjölbreyttara þó steinarnir
séu enn þá notaðir með. Það er alltaf
klassískt að vera með hvítt fremst á
nöglunum, svokallað „french“, það
verður alltaf í tísku. Nú eru að koma
fleiri litir inn í þetta og margar sem
velja að hafa litað fremst á nöglunum.
Alls kyns mynstur eru líka að aukast
en þau eru þá handmáluð,“ segir Anna
Gréta.
Hún gerir ótrúlegustu mynstur með
naglalakki og segir það ekki vera mikið
mál. „Þetta er fyrst og fremst spurning
um æfingu. Svo er að sjálfsögðu mikil-
vægt að hafa fengið góða kennslu. Það
þarf að prófa sig áfram og ég nota netið
mikið til að fá hugmyndir. Stelpurnar
koma svo oft sjálfar með hugmyndir að
ákveðnu mynstri og skrauti.“
Anna Gréta segir að gellökkun sé að
aukast en þá er öll nöglin lökkuð með
föstu lakki. „Þetta er mjög sniðugt fyrir
þær sem vilja hafa fallegt lakk en nenna
ekki að vera að laga það daglega. Þær
velja sér þá frekar náttúrulega liti til
að fá ekki leið á þeim. Svo er auðvitað
munur á milli einstaklinga, sumar eru
frakkar og velja þá sterkari liti og meira
skraut.“
„Akrýlneglur eru að verða vinsælli
en þær eru sterkari en gelneglurnar og
haldast betur. Áður fyrr voru þær tald-
ar verri og fara illa með neglurnar en í
dag eru þær jafngóðar og gelneglurnar.
Það er meira hægt að leika sér með ak-
rýlinn, það er til dæmis hægt að blanda
tveimur litum saman á eina nögl.“
Svokallaðar stiletto-neglur hafa
verið að ryðja sér til rúms undan-
farna mánuði. Þær eru oddmjóar en
hið hefðbundna kassalaga form hefur
alltaf verið vinsælt. „Kassalaga formið
dettur ekki úr tísku, margar stelpur eru
hræddar við að breyta um form en eru
frekar til í að breyta um liti og skraut.
Hópurinn sem kemur til mín er mjög
breiður, bæði hvað varðar aldur og
hvað þær vilja fá. Stærsti hópurinn er
á aldrinum 15 til 35 ára. Margar koma
mjög reglulega, þær vilja halda nöglun-
um við og koma á fjögurra til átta vikna
fresti. Sumar koma af og til og einhverj-
ar koma í eitt og eitt skipti fyrir sérstök
tilefni,“ segir Anna Gréta sem sjálf er
alltaf með lakkaðar og skreyttar neglur.
■ lilja.bjork@365.is
SKREYTTAR NEGLUR
MYNSTUR OG STEINAR Anna Gréta segir naglalökk í dekkri litum verða í
tísku í haust og að æ fleiri láti skreyta neglurnar með alls skyns skrauti.
FLOTTAR NEGLUR
Anna Gréta er nagla- og
förðunarfræðingur sem
er óhrædd við að nota
liti og mynstur til að
skreyta neglur sínar og
annarra.
MYND/GVA
1 GLÆSILEGT
Fallega skreyttar akrýl-
neglur með hvítu french.
2 ODDMJÓAR
Svokallaðar stiletto-
neglur eru í tísku þessa
dagana.
3 DOPPUR
Litríkar akrýlneglur með
slaufum.
1
2 3
Tökum upp
nýjar
vörur í hver
ri viku
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517-6460
www.belladonna.is
Facebookerslunin Belladonna á V
Flott föt fyrir
flottar konur
st. 40 – 58
Stærðir 38-46
50% afsláttur af völdum skokkum
áður 16.990,-
nú 8.490,-
áður 16.990,-
nú 8.490,-
Við erum á Facebook
Vertu vinur okkar á Facebook
Vandaðir ítalskir
leðurskór og stígvél
WU SHU ART
TAI CHI
KUNG FU
FYRIR ALLA
DREKINN
WUSHU FÉLAG REYKJAVÍKUR
Skeifunni 3j · Sími 553 8282
www.heilsudrekinn.is
Í samstarfi við Kína
-Capital Institute of
Physical Education
www.saft.is
RÆDDU UM ÞÁ
ÁHÆTTU SEM FYLGIR
ÞVÍ AÐ HITTA NETVIN