Fréttablaðið - 06.09.2012, Side 37
| FÓLK | 5TÍSKA
Hönnuðurinn Louise Bramstedt vann nýliða-
verðlaun á sænsku tískuvikunni í Stokkhólmi í
lok ágúst. Hún hannar veski, skó og aukahluti
undir vörumerkinu Lobra. Verðlaunin voru
um 400 þúsund króna námsstyrkur. Veskin
sem Louise hannar eru stórglæsileg og stíl-
hrein. Louise segir kvenmannsveski þurfa að
vera skvísuleg en um leið alhliða og íburðar-
mikil. Skóna segir hún vera fulltrúa sjálfsins
og þurfa að falla manni vel í geð og vekja
vellíðan. Aukahlutirnir setja svo punktinn
yfir i-ið og fullkomna glæsileikann. Ekki skemmir fyrir að
Lobra-vörurnar eru á góðu verði og hægt að kaupa þær á netinu á
síðunni www.tlcsweden.com.
LOBRA ER NÝLIÐI ÁRSINS Í HÖNNUN
■ FLOTTUR
Upp úr miðjum ágúst spruttu
upp nokkurra metra háar
styttur af David Beckham á
nokkrum stöðum í Bandaríkj-
unum í tilefni þess að önnur
undirfatalína hans er komin
á markað fyrir tískurisann
H&M. Stytturnar eru alls níu
talsins og voru þær staðsettar
í New York, Los Angeles og
San Francisco. Stytturnar eru
af Beckham á nærbuxunum
einum klæða. Undirfatalínunn-
ar hefur verið beðið með mikilli
eftirvæntingu enda hafa kynn-
ingarnar og auglýsingarnar
fyrir hana verið í heldur óhefð-
bundnari kantinum. Um daginn
var tveimur stórum myndum
varpað á Hvítu kletta við Dover
í Englandi og er það allt að 107
metra hæð.
STYTTUR
AF DAVID
BECKHAM
■ OFURFYRIRSÆTA
Kate Moss er óumdeilanlega
ein þekktasta fyrirsæta allra
tíma. Hún hefur setið fyrir á
fjölmörgum forsíðum tíma-
rita og hefur verið ofarlega
á lista yfir ríkustu fyrirsætur
heims. Kate vakti heimsat-
hygli fyrir skrautleg ástar-
sambönd, skemmtanalíf og
fíkniefnaneyslu. Kate var upp-
götvuð aðeins 14 ára og varð
fljótt eftirsótt fyrirsæta. Hún
blómstraði á tíunda áratugnum
og varð þekkt fyrir að vera al-
gjör andstæða við fyrirsætur á
borð við Cindy Crawford, Clau-
diu Schiffer og Naomi Camp-
bell. Kate er enn í dag að hala
inn samninga og myndatökur
og hefur aldrei verið flottari.
Lífið hefur þó ekki alltaf verið
dans á rósum. Árið 2005 vöktu
myndir af henni að neyta kóka-
íns mikla hneykslun. Í kjölfarið
riftu öll stærstu
tískuhúsin
samningum
sínum við
hana.
UMDEILD EN
FLOTT
Hvað getur NutriLenk
gert fyrir þig?
Liður með slitnum
brjóskvef
Heilbrigður liður
NutriLenk GOLD er sannkallað gull fyrir liðina.
Þúsundir Íslendinga hafa fengið bætta liðheilsu með þessu
frábæra náttúrulega efni.
NUTRILENK
NÁTTÚRULEGT BYGGINGAREFNI FYRIR BRJÓSKVEFINN
Ásdís Hjálmsdóttir 26 ára afreks íþróttakona
Nánari upplýsingar á www.gengurvel.is
Við mikið álag og með árunum getur brjósk-
vefurinn rýrnað sem veldur því að liðirnir
slitna. Þetta er náttúrulegt ferli. Mjög margir
finna fyrir miklum óþægindum þegar beinin
byrja að núast saman, sérstaklega í liðamótum
eins og í mjöðmum, hryggjar og hnjáliðum.
Þess vegna er allt til vinnandi að styrkja
liðbrjóskið á náttúrulegan hátt.
Náttúrulegt byggingarefni fyrir
liðbrjóskið og beinin
NutriLenk inniheldur náttúrulegt byggingarefni
fyrir brjóskvefinn og er mjög góður valkostur
fyrir þá sem þjást af minnkuðu liðbrjóski. Unnið
úr sérvöldum fiskibeinum úr hafinu sem hefur
sýnt fram á að vera fyrsta flokks byggingarefni til
að styðja við brjóskvefinn og viðhalda honum.
NutriLenk hefur hjálpað fjölmörgu fólki.
NutriLenk er 100% náttúruleg vara sem er mjög
gagnleg þeim sem þjást af brjóskvefsrýrnun.
Prófið sjálf-upplifið breytinguna!
Þú færð NutriLenk á eftirtöldum stöðum.
Heilsuhúsið, Apótekarinn, Lyfja, Lyf og heilsa, Árbæjarapótek, Apótekið, Krónan,
Fjarðarkaup, Lyfjaborg, Lyfjaver, Reykjavíkur Apótek, Lyfjaval, Vöruval Vestmannaeyjum,
Apótek Garðabæjar, Siglufjarðar Apótek, Rima Apótek, Urðar Apótek, Akureyrar Apótek ,
Lifandi Markaður, Skipholtsapótek, Hagkaup, Apótek Hafnarfjarðar, Austurbæjar Apótek,
Apótek Ólafsvíkur, Þín verslun Seljabraut, Apótek Vesturlands, Garðsapótek, og Lyfjaval.
Eftirfarandi versla
nir ætla að fagna
góðum árangri
Ásdísar Hjálmsdó
ttur
spjótkastara og b
jóða öllum viðskip
tavinum
20%
afslátt af NutriLen
k GOLD frá 30 ágú
st til 10 septembe
r