Fréttablaðið - 06.09.2012, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 06.09.2012, Blaðsíða 38
FÓLK|TÍSKA TÍSKUBLOGG | ÞÓRUNN ÍVARSDÓTTIR FATAHÖNNUÐUR ELSKAR AÐ VERSLA ÓDÝRT ■ Þórunn Ívarsdóttir býr í Los Angeles þar sem hún vinnur sem fatahönnunar- nemi hjá Nasty Gal. Fyrirtækið hefur vakið mikla athygli og fékk töluverða umfjöllun í Los Angeles Times fyrir nokkrum dögum. Þórunn heldur úti afar skemmtilegu tískubloggi www.double- pizzazz.com sem margir lesa. Hvað ertu að gera í Los Angeles og hvað ertu búin að vera lengi? Ég flutti til Los Angeles árið 2010 til að stunda nám í fatahönnun og útskrifaðist í sumar. Núna er ég að vinna sem fata- hönnunarnemi hjá Nasty Gal. Hefur þú alltaf haft áhuga á tísku? Já, ég hef alltaf haft brennandi áhuga á því að skapa fallega hluti, hvort sem það hafa verið föt, húsgögn eða eitt- hvað annað. Ég hef vitað það frá blautu barnsbeini að ég myndi enda í ein- hverju hönnunartengdu. Hvað leggur þú áherslu á þegar þú bloggar? Ég legg áherslu á það að bloggin mín séu persónuleg og skemmtileg, ég brosi alltaf fyrir mynda- vélina. Þetta átti í fyrstu ekki að verða tískublogg en svo þróaðist það óvart út í það. Hvað gerir þú í þínum frístundum? Ég elska að skoða matarmenninguna í Los Angeles því borgin hefur upp á svo margt að bjóða. Ég fer einnig oft í fjall- göngur í Orange County og þess á milli getur þú fundið mig í búðunum. Hvernig hefur borgin mótað þig sem tískuáhugakonu? Mér finnst ég hafa breyst rosalega mikið eftir að ég flutti til Los Angeles, ég er orðin miklu opnari fyrir öllu, klæðist til dæmis orðið litum. Áttu þér uppáhaldsverslanir? Ég fer orðið á margar „sample sales“ eða sýningarfatasölur og það toppar allar búðir. Ég elska að kaupa ódýrt það sem er glænýtt og ekki komið í búðirnar. Seinasta föstudag keypti ég níu flíkur á 35 dollara og næsta föstudag ætla ég á Isabel Marant „sample sale“. Hvaða hönnuðir eru í uppáhaldi? Í dag erum við stelpurnar í Nasty Gal uppáhaldshönnuðirnir mínir. Fyrirtækið var að koma með sína fyrstu hönnunar- línu (collection) og mig langar í hverja einustu flík. Er einhver flík sem þú stenst ekki? Ég elska allar kápurnar með leðurerm- unum og öll flatbotna stígvélin sem eru í gangi núna, verð að fjárfesta í slíkum fyrir veturinn. Einhver skemmtileg tískuupplifun í Englaborginni? Margir halda að það sé voðalega lítið um tísku í Los Angeles, en borgin er öll stútfull af tísku og flestir frægustu tískubloggararnir eru héðan. ■ elin@365.is SMART HÖNNUÐUR Þórunn hefur haldið úti skemmtilegu tískubloggi á netinu. Skráðu þig núna í síma 560 1010 eða á mottaka@heilsuborg.is Vertu með í kvennaleikfimi! Gamla góða leikfimin fyrir allar konur sem vilja auka styrk og vellíðan • Þri og fim kl. 10:00 • Hefst 11. september - 4 vikur • Verð kr. 12.900 kr. eða 9.900 í áskrift • Þjálfari er Árndís Hulda, íþróttafræðingur Bíldshöfða 18 | Sími 567 1466 | Opið frá kl. 8–22 Ótrúlegt úrval íbúða til sölu eða leigu! STÆRSTI HÚSNÆÐISVEFUR LANDSINS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.