Fréttablaðið - 06.09.2012, Side 40
KYNNING − AUGLÝSINGBólstrun FIMMTUDAGUR 6. SEPTEMBER 20122
vígi að sögn Sigurjóns. „Eftir hrun
fékk íslensk húsgagnaframleiðsla
meðbyr en datt ekki niður eins og
sala á innfluttum húsgögnum.
Auðvitað vonumst við eftir því að
Íslendingar versli íslensk húsgögn
séu þeir að versla á annað borð.
Þannig höldum við gjaldeyri inni
í landinu og sköpum störf inn-
anlands. Við höfum þekkinguna
enn þá en það eru ekki margir að
læra þessa iðn. Mér finnst líka
skipta miklu máli að það verði
ákveðin hugarfarsbreyting varð-
andi kaup á íslenskri framleiðslu
því við höfum helling fram að
færa. Það má einnig nefna að
opinberar stofnanir hérlendis
ættu að sjá sóma sinn í því að fjár-
festa í íslenskum húsgögnum og
versla við íslenska framleiðend-
ur. Víðast hvar erlendis hefur slíkt
nánast verið sett í lög. Ég tala nú
ekki um þegar kreppir að.“
Innlend framleiðsla
Öll húsgögnin sem Bólstursmiðj-
an framleiðir eru framleidd hér-
lendis. Sigurjón segir húsgögnin
þó ekki úr íslenskum efnivið enda
ekki mikið framboð hérlendis af
honum. „Á bak við eina mublu
er fullt af fyrirtækjum sem koma
nálægt framleiðslunni. Við erum
að tala um viðinn, stálið, svamp
og áklæði svo eitthvað sé nefnt.
Allt áklæði þarf að flytja inn, til
dæmis leður sem er stór hluti
framleiðslunnar, en stofnanir og
fyrirtæki vilja oft endingarbetri
efni.“ Sigurjón segir eingöngu
besta hráefnið vera valið í fram-
leiðslu fyrirtækisins, til dæmis
dýrustu dýnurnar, fjaðrakerfi
sem hafa sannað sig og grindur
sem eru smíðaðar til að endast
mjög lengi.
Framleiðsla fyrirtækisins er
bæði ætluð fyrirtækjum, stofn-
unum og heimilum. „Mesta salan
hingað til hefur verið til fyrir-
tækja og stofnana en við erum
að vinna í því að auka hlutdeild
okkar á heimilismarkaðnum.
Á næstu vikum koma til dæmis
nýir sófar frá Syrussyni og Pétri
sem ættu að nást inn fyrir jóla-
mánuðinn.“ Sig urjón horf-
ir björtum augum á framtíðina.
Hann segist sannfærður um að
íslensk húsgagnaframleiðsla eigi
eftir að vaxa á næstu árum. „Við
hjá Bólstursmiðjunni hugsum
a.m.k. stórt og horfum björtum
augum til framtíðarinnar. Fram-
leiðslan á vafalaust eftir að eflast
mikið á næstu árum. Við erum að
minnsta kosti bjartsýn.“
Fyrirtækið Bólstursmiðjan var stofnað af Sigurjóni Krist-ensen fyrir tveimur árum
og hefur sérhæft sig í framleiðslu
á íslenskum húsgögnum byggð-
um á íslenskri hönnun. Sjálfur
hefur Sigurjón starfað um árabil
sem bólstrari og við húsgagna-
framleiðslu þar til hann setti eigið
fyrirtækið á fót. „Ég var búinn
að vinna lengi sjálfstætt og hjá
öðrum framleiðendum en kynnt-
ist svo framleiðslunni sjálfur af
eigin raun fyrir tíu árum síðan. Ég
fann mig strax mjög vel þar enda
mjög skapandi og spennandi að
vinna með íslenskum hönnuð-
um og arkitektum og búa til eitt-
hvað nýtt. Um leið er spennandi
að hjálpa við að koma fótum undir
framleiðslu á íslenskri húsgagna-
hönnun. Sú vinna varð kveikjan
að stofnun Bólstursmiðjunnar.“
Farsæl samvinna
Bólstursmiðjan framleiðir meðal
annars húsgögn fyrir hönnunar-
húsið Syrusson og á framleiðslu-
rétt á húsgögnum sem húsgagna-
hönnuðurinn Pétur B. Lúthersson
teiknar fyrir fyrirtækið. Syrus-
son er ungt og framsækið fyr-
irtæki sem sérhæfir sig í hönn-
un og framleiðslu á húsgögnum,
innréttingum og öðru sem við-
kemur fyrirtækjum og heimil-
um. Pétur er einn farsælasti hús-
gagnahönnuður Íslands. „Sam-
vinna við þessa aðila hefur skilað
af sér mörgum skemmtilegum af-
urðum. Við erum ekki að herma
eftir hönnun erlendis frá held-
ur erum við að skapa okkar eigin
stíl. Samvinna Bólstursmiðjunn-
ar við þessa aðila er ólík. Syrus-
son lætur okkur framleiða meira
eftir pöntunum en við Pétur förum
nánar yfir hverja hönnun fyrir sig
og rýnum betur í teikningarn-
ar. Ef mér finnst til dæmis vanta
sófa í móttöku þá teiknar hann
einn slíkan og við búum til prótó-
týpu. Síðan þegar allir aðilar eru
ánægðir komum við honum í sölu.
Draumurinn er auðvitað að geta
framleitt á lager, það er það sem
þetta allt snýst um. Það er líka búið
að vera mikið ævintýri að vinna
með Pétri sem er búinn að vera í
þessum bransa í mörg ár. Hann
veit hvað hann er að gera og það er
mikill heiður að vinna með svona
mönnum. Sófi frá okkur er meðal
annars til sölu hjá Epal.“ Samfara
framleiðslunni sér Bólstursmiðj-
an líka um hefðbundna bólstrun,
að klæða gömul húsgögn og einnig
um viðhald húsgagna. „Við höfum
einnig tekið að okkur bólstrun og
viðhald í öllum vélum Flugfélags
Íslands, til dæmis leðurklædd
sæti. Að sama skapi sjáum við um
bólstrun bílasæta og þyrlusæta svo
dæmi séu tekin. Þannig að bólstr-
un kemur víða við. Hún er alls
staðar, hvort sem maður er í bíó
eða í bílnum, alls staðar er bólstr-
aður hlutur að horfa á þig.“
Björt framtíð
Íslensk hönnun og framleiðsla á
húsgögnum stendur ágætlega að
Fótum komið undir íslenska
húsgagnaframleiðslu
Íslensk húsgagnahönnun og framleiðsla stendur traustum fótum. Bólstursmiðjan smíðar öll húsgögn sín hérlendis og þar er horft
björtum augum til framtíðar. Húsgögn Bólstursmiðjunnar eru ætluð fyrirtækjum, stofnunum og heimilum.
Íslensk hönnun og framleiðsla á húsgögnum stendur ágætlega að vígi að sögn Sigurjóns Kristensen, framkvæmdastjóra Bólstursmiðjunnar. MYND/GVA
Bólstursmiðjan á framleiðslurétt á húsgögnum sem húsgagnahönnuðurinn Pétur B. Lúthersson teiknar fyrir fyrirtækið. MYND/ÚR EINKASAFNI