Fréttablaðið - 06.09.2012, Page 54

Fréttablaðið - 06.09.2012, Page 54
6. september 2012 FIMMTUDAGUR38 Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is. Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 512 5000. timamot@frettabladid.is Anna Elísabet Ólafsdóttir, fyrrver- andi forstjóri Lýðheilsustöðvar, varði fyrir skemmstu doktorsritgerð sína í lýðheilsuvísindum við Brunel-háskóla í London. Ritgerðin fjallar um áhrif stjórnunarhátta á gæði og afköst heil- brigðiskerfa. Anna Elísabet býr í borginni Dar Es Salaam í Tansaníu og starfar þar sem ráðgjafi hjá rannsóknarstofnun í heilbrigðisvísindum. „Verkefnin mín í Tansaníu lúta að fjármögnun heil- brigðiskerfa og hversu heppilegt sé að árangurstengja laun heilbrigðisstarfs- manna og rekstartekjur heilbrigðis- stofnana,“ útskýrir hún. En af hverju í Tansaníu? Ég fór fyrst til Tansaníu sem ferða- maður árið 2005 og hreifst svo af landi og þjóð að ég fór strax að skipuleggja næstu ferð. Nú er svo komið að mað- urinn minn, Viðar Viðarsson, og ég rekum bændagistingu með ferðaþjón- ustu í þorpinu Bashay, í samvinnu við heimamenn, innan um aðra smábænd- ur sem rækta sinn eigin mat. Á sveitabænum Bashay Village segir Anna Elísabet gott fólk sjá um reksturinn og hún fari þangað reglu- lega en geti hvorki verið þar oft né lengi vegna verkefna sinna í Dar Es Salaam. Húsakynnin á bænum eru einföld og hrein. „Við höfum hreint, rennandi vatn úr okkar eigin borholu og rafmagn sem við framleiðum með sólarorku. Við eldum á gasi en getum líka eldað á kolum fyrir utan og það gerum við oft, sérstaklega þegar verið er að elda eitthvað sem þarf langa suðu eins og baunir,“ lýsir hún og segir gest- ina koma víðs vegar frá, svo sem frá Íslandi, Noregi, Austurríki, Þýskalandi og Kanada. Anna Elísabet kveðst ekki vita til að aðrir Íslendingar búi í landinu en segir sjálfboðaliða stundum koma þangað í hjálparstörf. „Við Viðar eigum þrjá stráka en þeir eru allir á Íslandi. Sá yngsti er í Verslunarskólan- um á þriðja ári. Þeir hafa aldrei verið í skóla í Tansaníu en við skoðuðum þann möguleika fyrir nokkrum árum. Viðar hefur vinnu á Íslandi þannig að það er fyrst og fremst ég sem er að reka þetta áfram hér í Tansaníu.“ Hvernig skyldi svo lífið í Tansaníu koma Önnu Elísabetu fyrir sjónir? „Það er mjög breytilegt eftir því hvar fólk býr. Stéttaskipting er mikil og ég man að þegar ég kom fyrst til borgarinnar Dar Es Salaam frá þorp- inu okkar spurði ég sjálfa mig hvort þetta væri sama landið. Lífið í þorpum úti á landi er mjög erfitt og fátæktin gríðarleg, fólk hefur hvorki rafmagn, hreint vatn né almennilega hreinlætisaðstöðu. Ég veit ekki hvort Íslendingar nútímans geti ímyndað sér hvernig það er að fara svangur að sofa í leirkofa með moldargólfi, þurfa að fara út á kamar í svartamyrkri um niðdimma nótt og geta svo ekki þvegið sér á eftir. En í borgunum, ekki síst í Dar Es Salaam, eru hins vegar stór og flott hús,“ segir Anna Elísabet og verst allra frétta um það hversu lengi hún verði í Tansaníu. „Ég veit ekki hvað ég verð hér lengi, tíminn leiðir það í ljós.“ gun@frettabladid.is ANNA ELÍSABET ÓLAFSDÓTTIR: ER NÝBAKAÐUR DOKTOR Í TANSANÍU Ójöfnuðurinn er gríðarlegur Í HEIMSÓKN Aðstæður fólks í Tansaníu eru víða frumstæðar. ERLA STEFÁNSDÓTTIR álfasérfræðingur á afmæli í dag. „Einlægni, áreiðanleiki, gleði og hjartahlýja eru mikilvægustu kostir hverrar manneskju.“ 77 Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, ÁSLAUG HULDA MAGNÚSDÓTTIR lést á heimili sínu miðvikudaginn 5. september. Haukur Guðjónsson Margrét Hauksdóttir Haraldur Olgeirsson Sigurlaug Hauksdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, JÓHANNA THORLACIUS lést sunnudaginn 2. september á Droplaugarstöðum. Margrét Oddný Hannesdóttir Borg Curt Erik Borg Guðmundur Hannesson Ása Jónsdóttir Þorsteinn Hannesson Karólína Eiríksdóttir Sigmundur Hannesson Hildur Einarsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir okkar, KRISTÍN ÓSKARSDÓTTIR (DÍDÍ) lést á hjúkrunarheimilinu Mörk 22. ágúst. Jarðsungið verður frá Laugarneskirkju fimmtudaginn 6. september kl. 13. Fyrir hönd aðstandenda, Ingibjörg Ármannsdóttir Björgvin Ármannsson Hlynur Þór Ingólfsson Óskar Ármannsson Bjarnfreður Ármannsson Ægir Örn Ármannsson Anna Jóna Ármannsdóttir Guðný Björk Ármannsdóttir Þórleif Ármannsdóttir Erla Dögg Ármannsdóttir Sigurbergur Ármannsson HINRIK HINRIKSSON húsgagnabólstrari, áður til heimilis að Aðalstræti 6, Akureyri, lést á dvalarheimilinu Hlíð laugardaginn 25. ágúst. Útför hans hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Innilegar þakkir til starfsfólksins á dvalarheimilinu Hlíð fyrir góða umönnun. Einnig þakkir til þeirra sem sýnt hafa okkur samúð og hlýhug. Þorbergur Hinriksson Bryndís Friðriksdóttir Sigurlaug Hinriksdóttir Rannveig Ágústsdóttir og fjölskyldur. Ástkær móðir okkar, HULDA KRISTÍN EMILSDÓTTIR, áður til heimilis í Austurbrún 29, Reykjavík, lést á hjúkrunarheimilinu Mörk föstudaginn 31. ágúst. Útför Huldu verður gerð frá Áskirkju mánudaginn 10. september og hefst athöfnin kl. 13.00. Rúnar Valdimarsson Emil Breki Hreggviðsson Ástkær eiginkona, móðir, tengdamóðir, amma og systir, ANNA LILJA STEFÁNSDÓTTIR lést þriðjudaginn 14. ágúst. Útför fór fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Fyrir hönd aðstandenda, Guðmundur Ólafsson Ólafur Stefán Guðmundson Jóhanna B Guðmundsdóttir Jón Björnsson Soffía Rut Guðmundsdóttir Helga Steinunn Guðmundsdóttir Brynjar Magnússon og barnabörn. Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, systir og amma, HANNA JÓNSDÓTTIR Hrísateig 26, Reykjavík, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi mánudaginn 3. september. Jarðarförin verður auglýst síðar. Júlíus Óskar Sigurbjörnsson Margrét Gróa Júlíusdóttir Jón Júlíusson Ragna Ingimundardóttir Sigurður Tryggvi Júlíusson Sirigorn Inthaphot Kristín Ósk Júlíusdóttir systkini og barnabörn.Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, HÖRÐUR G. HELGASON rafvirkjameistari, Staðarhrauni 15, Grindavík, sem lést á gjörgæsludeild Landspítalans miðvikudaginn 29. ágúst, verður jarðsunginn frá Grindavíkurkirkju föstudaginn 7. september kl. 14.00. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Björgunarsveitina Þorbjörn í Grindavík. Sigurbjörg Ásgeirsdóttir Helgi Einar Harðarson Ármann Ásgeir Harðarson Ólafía Helga Arnardóttir Sigurbjörg Brynja Helgadóttir Katrín Lilja Ármannsdóttir Ásgeir Bjarni Ármannsson Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, amma og langamma, ÞÓRHILDUR ÞORLEIFSDÓTTIR andaðist á gjörgæsludeild sjúkrahússins í Torrevieja á Spáni þann 31. ágúst. Útför auglýst síðar. Gunnar Á Mýrdal Sigurður Þór Mýrdal Þórdís Ingibjartsdóttir Ása Mýrdal Jón Gunnar Mýrdal Steinunn Björg Gunnarsdóttir barnabörn og barnabarnabarn. Miðhraun 22 b, 210 Garðabæ, Sími 571 0400 granit@granit.is Ástkær faðir okkar, stjúpfaðir, tengdafaðir, afi og langafi, JÓN VIGFÚSSON áður til heimilis að Dalatanga 6, Mosfellsbæ, lést á hjúkrunarheimilinu Eir 2. september sl. Jarðarförin auglýst síðar. Stefán Már Jónsson Hrefna Lind Borgþórsdóttir Kolbrún Jónsdóttir Bæring Sigurbjörnsson Edda Melax Günter Willi Schmid barnabörn og barnabarnabarn.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.