Fréttablaðið - 06.09.2012, Side 56
6. september 2012 FIMMTUDAGUR40
BAKÞANKAR
Friðriku
Benónýs
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
krossgáta
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Keyrðu!
Flóttabíll! Í alvör-
unni! FLÓTTABÍLL!
Hún er að verða
atvinnumaður í
þessu!
Heyrðu
... hættu
nú!
Keyrðu!
Jeremy er byrjaður
að ávarpa mig með
skírnarnafninu
mínu.
Ég
heyrði
það.
Það er
svolítið
sætt.
Sætt?? Finnst
þér ekki að ég
ætti að gera
eitthvað í því?
Nei
Brostu bara og
láttu sem þú
heyrir það ekki...
Því bráðum byrjar hann
á einhverju sem pirrar
þig ennþá meira.
Kjúklingasúpa
Það er víst margar
mæður í stjórninni.
Ég fann þennan
afgang af
afmæliskökunni
í frystinum.
Namm!
Báðar sneiðarnar eru
nákvæmlega jafn stórar og
með jafn miklu kremi, svo það
er ekkert til að rífast um.
Það er fleiri
sérhljóðar á
minni.
SVINDL!!
LÁRÉTT
2. grasþökur, 6. frá, 8. matjurt, 9. rá,
11. dreifa, 12. goðmögn, 14. bor, 16.
fyrirtæki, 17. frjó, 18. keyra, 20. tón-
listarmaður, 21. rétt.
LÓÐRÉTT
1. jurtatrefjar, 3. klafi, 4. ræsimark, 5.
hamfletta, 7. kjánaskapur, 10. beita,
13. bókstafur, 15. hirðing, 16. blaður,
19. ólæti.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. torf, 6. af, 8. kál, 9. slá, 11.
sá, 12. tótem, 14. nafar, 16. ms, 17.
fræ, 18. aka, 20. kk, 21. satt.
LÓÐRÉTT: 1. bast, 3. ok, 4. rásmark,
5. flá, 7. flónska, 10. áta, 13. eff, 15.
rækt, 16. mas, 19. at.
Bezt eru vorin, ekkert elska ég heitar,“ orti Hannes Pétursson í Söngvum til
jarðarinnar og eflaust taka margir sól-
þyrstir Íslendingar undir með skáldinu.
Ég er ekki í þeim hópi. Haustið hefur alltaf
verið minn tími og ég stend mig að því
að bíða í ofvæni eftir byrjun september á
hverju ári. Hauströkkrið sem annað skáld,
Snorri Hjartarson, orti svo fallega um fyll-
ir mig vellíðan og bjartsýni, haustlitirnir
eru endalaus uppspretta andkafa og hrifn-
ingarandvarpa og hvert kvöldið af öðru
líður við skoðun á bæklingum leikhúsanna,
leit að spennandi námskeiðum á vefsíðum
skólanna, kertaljós og kakóbolla undir
teppi.
HUGURINN fyllist af góðum
áformum og alltaf er ég jafn-
spennt yfir öllu því skemmtilega
sem í vændum er og jafnsannfærð
um að þessi vetur verði sá allra
besti. Að í ár muni ég drífa mig á
ítölskunámskeiðið margumtalaða,
vera dugleg að sækja jógatíma, muni
sjá nánast allar sýningar leikhús-
anna, sækja tónleika í gríð og erg
og bjóða fólki í hvert matarboðið
öðru glæsilegra. Skítt með það
þótt reynslan kenni að hin góðu
áform haustkvöldanna eiga álíka
langa lífdaga fyrir höndum og
mjólkurfernan í ísskápnum.
ÞAÐ albesta við haustið er þó biðin eftir
jólabókaflóðinu. Spennan eftir að opin-
berað verði hvaða uppáhaldsskáld sendi
frá sér bók þetta árið, hvaða nýju upp-
rennandi uppáhaldsskáldum maður fái að
kynnast og hver þeirra komi manni mest
á óvart. Ekkert jafnast á við að fá í hendur
brakandi nýja bók, velta henni á milli
handanna, anda að sér bókailminum, koma
sér þægilega fyrir, draga andann djúpt og
byrja að lesa. Bækur opna heima sem ekk-
ert annað listform er fært um að skapa og
eins og fram kom í viðtali við sálfræðing-
inn Keith Oatley hér í blaðinu í gær jafn-
ast lestur góðs skáldskapar næstum á við
meistaranám í sálfræði og félagsfræði,
dýpkar skilning á því hvernig annað fólk
funkerar og hvað knýr það áfram og sýnir
lesanda inn í sálarlíf alls kyns einstak-
linga sem hann annars ætti aldrei kost á að
kynnast. Og það án þess að hann þurfi einu
sinni að standa upp úr sófanum.
RIGNINGIN, rokið, myrkrið og sólarleysið
draga ekkert úr eftirvæntingu haustsins,
auka hana ef eitthvað er. Bráðum, bráðum
fyllist sófaborðið af ólesnum bókum,
nýjum ævintýrum og spennandi karakt-
erum sem unun er að kynnast. Hvers-
dagsleikinn hverfur í skuggann af öllum
þessum heimum sem bíða þess að verða
kannaðir, upplifaðir, meltir og krufnir.
Eftir væntingin ber mig ofurliði. Er
kannski hægt að hraðspóla fram í október?
Hausthamingjan yfir mér