Fréttablaðið - 06.09.2012, Page 56

Fréttablaðið - 06.09.2012, Page 56
6. september 2012 FIMMTUDAGUR40 BAKÞANKAR Friðriku Benónýs 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 krossgáta ■ Pondus Eftir Frode Øverli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman Keyrðu! Flóttabíll! Í alvör- unni! FLÓTTABÍLL! Hún er að verða atvinnumaður í þessu! Heyrðu ... hættu nú! Keyrðu! Jeremy er byrjaður að ávarpa mig með skírnarnafninu mínu. Ég heyrði það. Það er svolítið sætt. Sætt?? Finnst þér ekki að ég ætti að gera eitthvað í því? Nei Brostu bara og láttu sem þú heyrir það ekki... Því bráðum byrjar hann á einhverju sem pirrar þig ennþá meira. Kjúklingasúpa Það er víst margar mæður í stjórninni. Ég fann þennan afgang af afmæliskökunni í frystinum. Namm! Báðar sneiðarnar eru nákvæmlega jafn stórar og með jafn miklu kremi, svo það er ekkert til að rífast um. Það er fleiri sérhljóðar á minni. SVINDL!! LÁRÉTT 2. grasþökur, 6. frá, 8. matjurt, 9. rá, 11. dreifa, 12. goðmögn, 14. bor, 16. fyrirtæki, 17. frjó, 18. keyra, 20. tón- listarmaður, 21. rétt. LÓÐRÉTT 1. jurtatrefjar, 3. klafi, 4. ræsimark, 5. hamfletta, 7. kjánaskapur, 10. beita, 13. bókstafur, 15. hirðing, 16. blaður, 19. ólæti. LAUSN LÁRÉTT: 2. torf, 6. af, 8. kál, 9. slá, 11. sá, 12. tótem, 14. nafar, 16. ms, 17. fræ, 18. aka, 20. kk, 21. satt. LÓÐRÉTT: 1. bast, 3. ok, 4. rásmark, 5. flá, 7. flónska, 10. áta, 13. eff, 15. rækt, 16. mas, 19. at. Bezt eru vorin, ekkert elska ég heitar,“ orti Hannes Pétursson í Söngvum til jarðarinnar og eflaust taka margir sól- þyrstir Íslendingar undir með skáldinu. Ég er ekki í þeim hópi. Haustið hefur alltaf verið minn tími og ég stend mig að því að bíða í ofvæni eftir byrjun september á hverju ári. Hauströkkrið sem annað skáld, Snorri Hjartarson, orti svo fallega um fyll- ir mig vellíðan og bjartsýni, haustlitirnir eru endalaus uppspretta andkafa og hrifn- ingarandvarpa og hvert kvöldið af öðru líður við skoðun á bæklingum leikhúsanna, leit að spennandi námskeiðum á vefsíðum skólanna, kertaljós og kakóbolla undir teppi. HUGURINN fyllist af góðum áformum og alltaf er ég jafn- spennt yfir öllu því skemmtilega sem í vændum er og jafnsannfærð um að þessi vetur verði sá allra besti. Að í ár muni ég drífa mig á ítölskunámskeiðið margumtalaða, vera dugleg að sækja jógatíma, muni sjá nánast allar sýningar leikhús- anna, sækja tónleika í gríð og erg og bjóða fólki í hvert matarboðið öðru glæsilegra. Skítt með það þótt reynslan kenni að hin góðu áform haustkvöldanna eiga álíka langa lífdaga fyrir höndum og mjólkurfernan í ísskápnum. ÞAÐ albesta við haustið er þó biðin eftir jólabókaflóðinu. Spennan eftir að opin- berað verði hvaða uppáhaldsskáld sendi frá sér bók þetta árið, hvaða nýju upp- rennandi uppáhaldsskáldum maður fái að kynnast og hver þeirra komi manni mest á óvart. Ekkert jafnast á við að fá í hendur brakandi nýja bók, velta henni á milli handanna, anda að sér bókailminum, koma sér þægilega fyrir, draga andann djúpt og byrja að lesa. Bækur opna heima sem ekk- ert annað listform er fært um að skapa og eins og fram kom í viðtali við sálfræðing- inn Keith Oatley hér í blaðinu í gær jafn- ast lestur góðs skáldskapar næstum á við meistaranám í sálfræði og félagsfræði, dýpkar skilning á því hvernig annað fólk funkerar og hvað knýr það áfram og sýnir lesanda inn í sálarlíf alls kyns einstak- linga sem hann annars ætti aldrei kost á að kynnast. Og það án þess að hann þurfi einu sinni að standa upp úr sófanum. RIGNINGIN, rokið, myrkrið og sólarleysið draga ekkert úr eftirvæntingu haustsins, auka hana ef eitthvað er. Bráðum, bráðum fyllist sófaborðið af ólesnum bókum, nýjum ævintýrum og spennandi karakt- erum sem unun er að kynnast. Hvers- dagsleikinn hverfur í skuggann af öllum þessum heimum sem bíða þess að verða kannaðir, upplifaðir, meltir og krufnir. Eftir væntingin ber mig ofurliði. Er kannski hægt að hraðspóla fram í október? Hausthamingjan yfir mér

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.