Fréttablaðið - 06.09.2012, Side 60
6. september 2012 FIMMTUDAGUR44 44
menning@frettabladid.is
Happdrættisvinningur
að fá Orange-verðlaunin
Nýverið kom út hjá For-
laginu í íslenskri þýðingu
skáldsagan Kona tígurs-
ins. Hún er fyrsta verk Téu
Obreht, sem er fædd árið
1985. Hún er yngsti rithöf-
undurinn sem hlýtur hin
virtu Orange-bókmennta-
verðlaun.
Strax í upphafi skáldsögunnar
Konu tígursins slást lesendur í
för með unglækninum Natalíu, í
leiðangri hennar á Balkanskaga
til að hjálpa munaðarleysingjum
og stríðshrjáðu fólki. Á ferð sinni
fréttir Natalía að afi hennar hafi
dáið í afskekktu þorpi en enginn
veit um erindi hans þangað. Þann-
ig hefst bókin sem Téa byggir á
þjóðtrú og sögnum síns fólks, en
ekki síst nánu sambandi sínu við
afa sinn.
Það kom mörgum á óvart þegar
Téa hlaut Orange-verðlaunin árið
2011 fyrir bókina. Þá var hún 26
ára gömul, en hún er yngsti rit-
höfundurinn sem hlýtur þennan
heiður. Téa sat við skriftir á heim-
ili sínu í New York þegar blaða-
maður Fréttablaðsins sló á þráð-
inn til hennar, til að forvitnast um
ævintýri rithöfundarins í kjölfar
útgáfu bókarinnar. Téa byrjar á
því að lýsa því hvernig þær góðu
viðtökur sem bókin hlaut komu
henni í opna skjöldu. „Ég held
að enginn hafi búist við þessum
viðtökum. Þetta var fyrsta verk
okkar allra sem stöndum að bók-
inni – fyrsta skáldsaga mín, fyrsta
verkefni umboðsmanns míns og
fyrsta bókin sem ritstjórinn minn
tók að sér. Ég var steinhissa þegar
ég vann til Orange-verðlaunanna,
því ég er ekki vön að vinna nokk-
urn skapaðan hlut. Aldrei vann ég
neitt í happdrætti í skólanum! En
þetta var mikill heiður og ég er
mjög þakklát fyrir viðtökurnar
sem bókin hefur fengið.“
Téa segir góðar viðtökur Konu
tígursins hafa opnað henni marg-
ar dyr. Það mikilvægasta sem þó
hafi komið út úr því sé að nú geti
hún lifað alfarið af skrifum sínum.
„Nú get ég kallað sjálfa mig starf-
andi rithöfund, ég skrifa heima hjá
mér og fæ tækifæri til að ferðast
um allan heim þess á milli. Ég hef
fengið að hitta fjöldann allan af
rithöfundum sem ég hef dáðst að í
gegnum árin, svo þetta hefur verið
alveg einstök reynsla.“
Hún er byrjuð á nýrri bók, sem
mætti ímynda sér að gæti verið
erfitt, eftir svo kröftugt upphaf á
ferlinum. „Það var nokkuð erfitt að
byrja á nýrri bók, en mér er farið
að líða betur og betur með þetta.
Þetta ferli er samt allt öðruvísi en
þegar ég skrifaði fyrstu bókina.
Margir rithöfundar hafa hughreyst
mig með því að önnur bókin sé oft
sú erfiðasta. Ég held mér fast í þau
orð,“ segir Téa og hlær.
Téa er fædd í Serbíu en flutt-
ist til Bandaríkjanna með móður
sinni þegar hún var ellefu ára að
aldri. Fram að þeim tíma höfðu
afi hennar, sem var kaþólskur
Slóveni, og amma, sem er Bos-
níuserbi, alið hana upp að mestu.
„Mamma mín var einstæð og
vann mjög mikið. Við bjuggum
hjá ömmu og afa og þau sáu um
mig að mestu. Við mamma flúð-
um Júgóslavíu með ömmu og afa,
fyrst til Kýpur og síðar til Egypta-
lands. Þegar við mamma komum
til Bandaríkjanna fóru amma og
afi aftur til Serbíu og amma býr
þar enn þá, í Belgrad.“
Natalía, aðalsögupersóna Konu
tígursins, á margt sameiginlegt
með Téu. Rétt eins og hún var Téa
afar náin afa sínum og því varð
dauði hans árið 2006 henni mikið
áfall. „Það var andlát afa míns sem
ýtti mér út í að skrifa þessa bók.
Dýpt sambandsins sem Natalía
á við afa sinn byggir á sambandi
mínu við afa minn. Að öðru leyti
er þetta skáldskapur.“
holmfridur@frettabladid.is
Í JÚNÍ 2011 Téa Obreht tók á móti Orange-verðlaununum í júní árið 2011, þremur
mánuðum eftir að fyrsta skáldsaga hennar, Kona tígursins, kom út í Bandaríkjunum.
Téa er yngsti rithöfundurinn sem hefur hlotið þessi virtu verðlaun, en hún er fædd
árið 1985. NORDICPHOTOS/GETTY
Barna- og unglingabókaverðlaun
Vestnorræna ráðsins verða veitt
í sjötta sinn á morgun við hátíð-
lega athöfn. Þau eru að verðmæti
1,2 milljónir. Tilnefndar eru þrjár
bækur, ein frá Færeyjum, ein
frá Grænlandi og ein frá Íslandi.
Dagný Kristjánsdóttir prófessor
er í dómnefnd. Hún segir markmið
verðlaunanna að styrkja barna- og
unglingamenningu í þessum lönd-
um sem eigi margt sameiginlegt
en þekki hvert annað svo lítið.
Hingað til hafa Íslendingar hlot-
ið verðlaunin í öll skiptin nema eitt
og Dagný segir ástæðuna þá að á
Íslandi komi út 84 frumsamdar,
íslenskar barnabækur á ári en
bara fimm í Grænlandi, þar af
bara tvær frumsamdar. Valið fari
hins vegar ekki eftir fjölda heldur
gæðum. „Hin vestnorrænu lönd-
in hafa ekki sömu barnabókahefð
og við, þess vegna er svo mikil-
vægt að styrkja hana og í ár eru
ofboðslega góðar bækur bæði frá
Grænlendingum og Færeyingum,
þannig að þeir eru að sækja í sig
veðrið,“ upplýsir hún.
Dagný segir verðlaunabækurn-
ar jafnan þýddar á hin vestnor-
rænu málin. Hins vegar hafi þær
hingað til ekki verið gefnar út
nema í upprunalandinu. „Til að ná
markmiðum verðlaunanna þyrfti
bókin sem vinnur, og helst allar
sem tilnefndar eru, að koma út í
öllum þremur löndunum,“ segir
hún. „Við vonumst til að Vestnor-
ræna ráðið fylgi verðlaununum
eftir með því að styrkja útgáfu á
bókunum.“ -gun
Mikilvægt að styrkja
barnabókamenningu
DAGNÝ KRISTJÁNSDÓTTIR Segir barnabókamenningu vera að sækja í sig veðrið í
Grænlandi og Færeyjum og því þurfi að fylgja eftir.
HEIÐURSGESTIR
Raggi Bjarna,
Jón Páll Bjarna
son
og Guðmundur
Steingrímsson
MIÐASALA HEFST 13. SEPTEMBER Á MIÐI.IS
ANDREA GYLFADÓTTIR · DIDDÚ · EIVÖR · ELLEN KRISTJÁNSDÓTTIR · GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
KRISTJANA STEFÁNSDÓTTIR · LAY LOW · RAGGA GÍSLA · SIGGA BEINTEINS
BJÖRGVIN HALLDÓRSSON · EGILL ÓLAFSSON · GISSUR PÁLL GISSURARSON · STEFÁN HILMARSSON
ÚTSETNINGAR & STJÓRN STÓRSVEITAR SAMÚEL JÓN SAMÚELSSON STJÓRN STRENGJASVEITAR GRÉTA SALÓME
HANDRIT & LAGAVAL GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR · GUNNAR HELGASON · MARGRÉT BLÖNDAL · SAMÚEL JÓN SAMÚELSSON
SVIÐSMYND MÓEIÐUR HELGADÓTTIR BÚNINGAR ELLEN LOFTSDÓTTIR
KYNNIR MARGRÉT BLÖNDAL LEIKSTJÓRI GUNNAR HELGASON
ALLAR HELSTU SÖNGKONUR LANDSINS SAMANKOMNAR Á EINUM STAÐ
ÁSAMT STÓRSKOTALIÐI KARLSÖNGVARA, HRYNSVEIT, BLÁSURUM OG STRENGJASVEIT
Á GLÆSILEGUM STÓRTÓNLEIKUM Í HÖLLINNI
www.sena.is/elly
MÁLSTOFA UM KAPÍTALISMA Suðurkóreski hagfræðingurinn Ha-Joon Chang heldur erindi um bók sína 23 atriði um
kapítalisma sem ekki er sagt frá í Lögbergi klukkan 14 í dag. Í pallborði verða þeir Jóhann Páll Árnason, heimspekingur og heiðurs-
doktor við HÍ, Stefán Ólafsson, forstöðumaður Þjóðmálastofnunar, og Páll Skúlason, prófessor í heimspeki.