Fréttablaðið - 06.09.2012, Síða 62

Fréttablaðið - 06.09.2012, Síða 62
6. september 2012 FIMMTUDAGUR46 HVAÐ? HVENÆR? HVAR? Bíó ★★★ ★★ Ávaxtakarfan Leikstjórn: Sævar Guðmundsson Leikarar: Ólöf Jara Skagfjörð, Matthías Matthíasson, Ágústa Eva Erlendsdóttir, Helga Braga Jóns- dóttir, Magnús Jónsson, Atli Óskar Fjalarsson, Bára Lind Þórarins- dóttir, Fannar Guðni Guðmunds- son, Birgitta Haukdal. Ávaxtakarfan, hið vinsæla barna- leikrit eftir Kristlaugu Maríu Sig- urðardóttur, er komið í bíó og fáum við að fylgjast með ævintýrum Mæju jarðarbers, Evu appelsínu og allra hinna ávaxtanna á hvíta tjald- inu, en stemningin í körfunni er súr, einelti er liðið og frekjan í ananasn- um er óþolandi. Já, rasistinn og sad- istinn Immi ananas heldur ávaxta- körfunni í gíslingu, og spilar með veikleika hinna til að fá sínu fram- gengt. En eins og svo oft þar sem valdagræðgi og illska ráða ríkjum er uppreisn á næsta leiti. Sviðsmyndin er íburðarmik- il og töff í hráleika sínum. Hins vegar er hún hvorki nægilega stór né fjölbreytileg til þess að virka sem sögusvið heillar kvikmyndar. Í leikhúsinu höfum við nándina við leikarana og sjálft verkið til að bæta upp fyrir þær ýmsu tak- markanir sem leikhúsinu fylgja. Þegar vel tekst til verða þessar takmarkanir jafnvel að styrk- leika. En hér fer bæði börnum og fullorðnum að leiðast sjónrænt til- breytingarleysið þegar síga fer á seinni hlutann. Kvikmyndatakan er engu að síður glæsileg, og hér svífur myndavélin mjúklega um hvern krók og kima. Þá eru litríkir búningarnir vel úr garði gerðir og þola vel nærmyndirnar jafnt sem víðu skotin. Leikararnir eru í góðu stuði og skemmtilegastar eru þær Ólöf Jara og Ágústa Eva. Af öllum leikurunum var Ágústa sú eina sem ég gat virkilega ímyndað mér að kæmist upp með að klæð- ast ávaxtabúningnum sínum á almannafæri. Mér fannst hún satt að segja svolítið smart sem app- elsína. Músíkin spilar auðvitað stórt hlutverk og allir leikararnir eru liðtækir söngvarar. Lögin eru eftir Þorvald Bjarna Þorvaldsson og í þeim má finna margar gríp- andi melódíur til að skaka hausinn við. Og þau bestu eru bara skrambi góð. Það er þó afar erfitt að skella stjörnum á svona verk. Söguþráð- urinn samanstendur af mörg- um misstórum vandamálum sem persónurnar þurfa að leysa. Ef einhvern rauðan þráð er að finna er það eflaust sá heilnæmi boð- skapur að allir séu jafnir og sátt og samlyndi sé betra en sundrung og stælar. Fyrir eldri börnin (svo ég tali nú ekki um okkur fullorðna fólkið) er þetta ef til vill brytjað niður í óþarflega smáa bita. En sem barnaefni fyrir þau yngstu er Ávaxtakarfan nokkuð vel heppnuð. Haukur Viðar Alfreðsson Niðurstaða: Heilnæmt fjör fyrir þau yngstu. Aðrir ættu að hrökkva í gang í tónlistaratriðunum. KARPAÐ Í KÖRFUNNI ÆVINTÝRI „Ef einhvern rauðan þráð er að finna er það eflaust sá heilnæmi boðskapur að allri séu jafnir og sátt og samlyndi sé betra en sundrung og stælar,“ segir í dómi um Ávaxtakörfuna. Stillanleg heilsurúm! Fyrir þínar bestu stundir. D Ý N U R O G K O D D A R TEMPUR® Orginal eða Cloud heilsudýna á C&J stillanlegum botnum. 2x80x200 cm. TILBOÐ Kr. 578.550,- Verð 749.875,- Þú sparar 171.325,- * 3, 5% lántökugjald 12 mánaða vaxtalaus lán á st i l lanlegum rúmum* Þráðlaus fjarstýring Grínistarnir Ari Eldjárn, Þorsteinn Guðmundsson, Steinn Ármann Magnússon og Jóhannes Kristjánsson eftirherma verða hluti af nýrri Thule-uppistandsseríu á Gullöldinni í Grafarvogi. Uppistandarinn Beggi blindi og Davíð Þór Rúnarsson, eigandi Gull- aldarinnar, eru mennirnir á bak við seríuna sem verður haldin tvo fyrstu miðvikudagana í hverjum mánuði fram að jólum. „Beggi blindi kom til okkar og vildi halda uppistand. Okkur datt í hug að gera meira úr því og úr varð átta kvölda sería,“ segir Davíð Þór. „Þetta leggst virkilega vel í mig. Við erum búnir að ná inn öllum stærstu nöfnunum og þetta lítur vel út,“ segir hann en fleiri grínistar eiga eftir að bætast við. „Ég held að þessi hópur hafi aldrei komið saman áður, ekki svona margir og svona þekktir. Þetta verður einn allra glæsilegasti uppistandsvið- burður sem hefur verið haldinn hérlendis.“ Uppistandið hófst í gærkvöldi þegar Beggi blindi, Björk Jakobs og Daníel Geir Moritz, fyndnasti maður Íslands, stigu á svið. Næsta miðvikudagskvöld skemmta Ari Eldjárn, Þórhallur Þórhallsson og Leifur hressi. Öll kvöldin byrja klukkan 22 og er frítt inn. Þrír til fjórir uppistand- arar koma fram á hverju kvöldi og reiknar Davíð Þór með því að eitt kvöldið verði til- einkað kvenkyns uppistöndurum. -fb Átta kvölda uppistandssería Hljómsveitin Nóra ætlar að safna um hálfri milljón króna í gegn- um vefsíðuna Pledgemusic.com. Peningarnir verða notaðir í gerð annarrar plötu sveitarinnar sem kemur út í haust. „Þetta er svipuð síða og Kick- starter.com nema þetta er bara fyrir tónlist. Það er fjöldinn allur af tónlistarmönnum sem notfær- ir sér þetta,“ segir Egill Við- arsson úr Nóru en hljómsveitin gefur plötuna út sjálf. Pledgemusic.com virkar þann- ig að hljómsveitir skrá sig á síð- una og velja ákveðin tímamörk – 30, 60 eða 90 daga – til að ljúka við söfnunina. Fram að þeim tíma selja þær ýmsar vörur úr sínum herbúðum og geta til dæmis selt plötuna sína fyrir fram. Pening- arnir sem safnast fara svo upp í kostnaðinn á plötunni. Upptökurnar hófust í febrúar og er þeim nánast lokið. Fram undan er hljómjöfnun og fram- leiðsla plötunnar og er Nóra að hefja söfnun fyrir því. Egill hvet- ur aðrar íslenskar sveitir til að prófa Pledgemusic.com. „Okkur finnst þetta mjög sniðugt og þess vegna fannst okkur um að gera að vekja smá athygli á þessu.“ Þeir sem vilja leggja Nóru lið geta kíkt á slóðina pledgemusic. com/project/nora. - fb Ætlar að safna hálfri milljón á vefsíðu NÓRA Upptökur á nýrri plötu hljómsveitarinnar Nóru hófust í febrúar og er nánast lokið. MYND/INGÓLFUR JÚLÍUSSON Fimmtudagur 6. september 2012 ➜ Sýningar 17.30 Veggspjaldasýning til heiðurs 100 ára minningu Egils Pálssonar verður sett upp í Safnahúsi Borgar- fjarðar. Hátíðardagskrá verður á neðri hæð hússins í tilefni opnunarinnar. 21.00 Óperusýningin Ráðskonuríki verður flutt á Café Rosenberg. Það er Alþýðuóperan sem setur verkið á svið á hátt sem aldrei hefur þekkst hérlendis. Miðaverð er kr. 2.500. ➜ Tónlist 19.00 Opnunartónleikar Norræna kirkjutónlistarmótsins fara fram í Hallgrímskirkju. Meðal þeirra sem fram koma er Sinfóníuhljómsveit Íslands ástamt Guðnýju Einarsdóttur, Mótettu- kór Hallgrímskirkju og Hljómeyki. 20.30 Björg Þórhallsdóttir sópran- söngkona, Elísabet Waage hörpu- leikari og Hilmar Arnar Agnarsson organisti halda tónleika í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar. Tónleikarnir eru hluti af sumartónleikaröðinni Í ást sólar. 21.00 Hljómsveitin Contalgen Funeral heldur útgáfutónleika á Græna Hatt- inum í tilefni af splunkunýjum disk sínum, Pretty Red Dress. Myrra Rós hitar upp, en hún gaf út diskinn Kveld- úlfur í sumar. Miðaverð er kr. 1.000. 21.00 Moses Hightower og Snorri Helgason koma fram á KEX Hostel. Tónleikarnir eru hluti af tónleikaröðinni Gym & Tonic á vegum Smirnoff og gogoyoko. Miðaverð er kr. 1.500. 22.00 Bítladrengirnir blíðu halda tónleika á Ob-La-Dí-Ob-La-Da Frakkastíg 8. Aðgangseyrir er kr. 1.000. 22.00 Hymnodia-kammerkór, Kór Áskirkju, Kór Langholtskirkju og Gradualekór Langholtskirkju flytja nýja íslenska kórtónlist í Hallgrímskirkju. Tónleikarnir eru hluti af Norræna kirkju- tónlistarmótinu. Upplýsingar um viðburði sendist á hvar@frettabladid.is og einnig er hægt að skrá þá inni á visir.is. UPPISTAND Ari Eldjárn kemur fram.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.