Fréttablaðið - 06.09.2012, Side 66

Fréttablaðið - 06.09.2012, Side 66
6. september 2012 FIMMTUDAGUR50 50tónlist TÓNNINN GEFINN Trausti Júlíusson Í SPILARANUM tonlist@frettabladid.is Þátttakendur í Lagalistanum: Bylgjan, FM957, Xið 977, Rás 2, Kaninn, tonlist.is. Verslanir í Tónlistanum: Skífan, Hagkaup, Penninn/Eymunds- son, 12 tónar, Harpa, Smekkleysa plötubúð, Elkó, tonlist.is Listarnir eru teknir saman fyrir Félag hljómplötuframleiðenda. Listarnir eru birtir í heild sinni á Vísir.is. Stendur í stað síðan í síðustu viku Fellur um sæti síðan í síðustu viku Hækkar á lista síðan í síðustu viku Nýtt á lista Skýringar: TÓNLISTINN Vikuna 30. ágúst - 5. september 2012 LAGALISTINN Vikuna 30. ágúst - 5. september 2012 Sæti Flytjandi Lag 1 Ásgeir Trausti ................................................. Leyndarmál 2 Lykke Li .......................................................I Follow Rivers 3 Moses Hightower ............................. Sjáum hvað setur 4 Jón Jónsson .........................................................All, You, I 5 Train ....................................... 50 Ways To Say Goodbye 6 Fun ..................................................................Some Nights 7 Eivör ...............................................................................Rain 8 Florence & The Machine .................................Spectrum 9 Jónas Sigurðsson .......................................... Þyrnigerðið 10 Pink ........................................................................Blow Me Sæti Flytjandi Plata 1 Eivör ............................................................................Room 2 Of Monsters And Men ...........My Head Is An Animal 3 Moses Hightower ................................ Önnur Mósebók 4 Sigur Rós ...................................................................Valtari 5 Tilbury .....................................................................Exorcise 6 Ýmsir ...........................................................Ég sé Akureyri 7 Mannakorn ......................................... Í blómabrekkunni 8 Helgi Björns & reiðm. vindanna ........Heim í heiðard. 9 Mugison ........................................................... 5 CD Pakki 10 Ýmsir ............................................................. Hljómskálinn Bob Dylan er mættur aftur með sína 35. hljóðversplötu eftir þriggja ára hlé. Fimm- tíu ár eru liðin síðan hann gaf út sína fyrstu plötu. Bandaríska tónlistargoðsögnin Bob Dylan sendir á þriðjudaginn frá sér sína 35. hljóðversplötu, Tempest. Fimmtíu ár eru liðin síðan fyrsta plata Dylans, sem var samnefnd honum, leit dagsins ljós á vegum útgáfunnar Columbia Records sem hefur kappann enn á sínum snær- um. Síðasta plata Dylans, Together Through Life, kom út fyrir þrem- ur árum og var hún sú fyrsta frá honum sem fór beint á toppinn sam- tímis í Bretlandi og Bandaríkjunum. Sama ár, eða 2009, gaf hann út jóla- plötuna Christmas in the Heart og runnu öll höfundarlaunin til sam- taka sem berjast gegn hungursneyð. Tíu lög eru á Tempest og þar heldur Dylan áfram þar sem frá var horfið með blöndu sína af blús, kántrí, þjóðlagatónlist og rokkabillí. Hljómsveitin sem spilar með honum á tónleikaferðalögum spilaði einnig á plötunni, auk Davids Hidalgo úr Los Lobos. Ofbeldi, harmur og dauði NÚMER 35 Bob Dylan sendir frá sér sína 35. sólóplötu á þriðjudaginn. Fimmtíu ár eru liðin frá því fyrsta platan hans kom út. NORDICPHOTOS/GETTY Fyrsta plata Bobs Dylan var samnefnd honum og kom út á vegum Columbia Records í mars 1962. Upptökstjóri var John H. Hammond, starfsmaður Columbia, sem hafði sjálfur fengið Dylan til liðs við útgáfuna. Á plötunni eru aðeins tvö lög eftir Dylan, eða Talkin´New York og Song to Woody, sem var tileinkað átrúnaðargoði hans Woody Guthrie. Dylan hefur síðar látið hafa eftir sér að hann hafi ekki verið tilbúinn til að stíga skrefið til fulls sem lagahöfundur á þessum tíma og því spilað eigin útgáfur af gömlum lögum á borð við House of the Rising Sun og gospellaginu In My Time of Dying, sem Led Zeppelin gerði eigin útgáfu af fimmtán árum síðar. 50 ÁR FRÁ FYRSTU PLÖTU BOBS DYLAN Textarnir eru flestir myrkir með tilheyrandi ofbeldi, dauða og harmleik. Þar má nefna titillagið, sem er fjórtán mínútna langt og 45 erinda og fjallar um Titanic- slysið. Fyrsta tóndæmið sem heyrðist af plötunni var úr laginu Early Roman Kings sem var notað í stiklu til að kynna nýja þáttaröð HBO, Strike Back, sem fjallar um hryðjuverk. Nýlega sendi Dylan svo frá sér myndband við lagið Duquesne Whistle sem er ofbeld- isfullt í meira lagi. Einnig er á plötunni morðballaðan Tin Angel og lagið Roll on John til heiðurs hinum sáluga John Lennon. Í grein í breska dagblaðinu The Guardian spyr blaðamaður hvort Tempest sé mögulega svanasöng- ur hins 71 árs Dylans. Þar vísar hann í að The Tempest var síðasta leikrit Shakespeares en Dylan er mikill aðdáandi enska leikrita- skáldsins. Í viðtali við Rolling Stone, þar sem platan fær fullt hús, eða fimm stjörnur, vísar Dylan þessu á bug og tekur fram að leikritið heiti The Tempest en platan hans Tempest og því séu titlarnir ekki þeir sömu. Spurð- ur út í Titanic-lagið segir Dylan: „Fólk á eftir að segja að það sé ekki allt satt í textanum. En laga- höfundi er alveg sama um það. Hann skrifar um það sem hefði átt að gerast og hvað gæti gerst. Það er ákveðinn sannleikur fólg- inn í því.“ freyr@frettabladid.is ROOM með Eivøru Pálsdóttur er plata vikunnar ★★★★ „Eivør og eiginmaðurinn Tróndur með frábæra plötu.“ - tj Gamli Talking Heads-söngvarinn David Byrne hefur nóg að gera í tónlistinni þessa dagana. Hann syngur eins og kunnugt er eitt lag á nýju Ghostigital-plötunni og næsta mánudag kemur út platan Love This Giant sem hann gerði með bandarísku tónlistarkonunni St. Vin- cent. Það er nokkur aldursmunur á þeim, Byrne fagnaði sextugs- afmæli í maí síðastliðnum en St. Vincent, sem heitir réttu nafni Annie Erin Clarke, verð- ur þrítug eftir nokkra daga. St. Vincent byrjaði tón- listarferilinn sem meðlimur í indie-rokkkórn- um The Polypho- nic Spree og var hluti af tónleika- hljómsveit Sufjans Steven, en stofnaði sína eigin hljómsveit árið 2006. Fyrsta platan hennar Marry Me sem kom út árið 2007 var frábær og það sama má segja um seinni plöturnar tvær, Actor (2009) og Strange Mercy (2011). St. Vincent þykir frábær á tónleikum og Byrne hafði séð hana nokkr- um sinnum spila. Þau voru bæði á svæðinu þegar Björk og Dirty Proj- ectors spiluðu tónlist sem þau höfðu unnið saman til styrktar góðu málefni. Sömu aðilar báðu Byrne og St. Vincent að koma fram saman á góðgerðartónleikum. Þannig kom það til að þau fóru að búa til tón- list saman. Nú er plata með þeim að koma út, en af góðgerðartónleik- unum hefur ekkert orðið enn. Tónlistin á Love This Giant er popp sem er að mestu leyti spilað á blásturshljóðfæri. Þetta er skemmtileg plata, hiklaust á meðal þess besta sem David Byrne hefur gert í langan tíma … Gamli og gyðjan Ótrúlegt úrval íbúða til sölu eða leigu! STÆRSTI HÚSNÆÐISVEFUR LANDSINS The Vintage Caravan Voyage Swans The Sees Bob Dylan Tempest

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.