Fréttablaðið - 16.11.2012, Blaðsíða 4
16. nóvember 2012 FÖSTUDAGUR4
GENGIÐ 15.11.2012
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
227,9352
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
128,93 129,55
204,41 205,41
164,45 165,37
22,047 22,177
22,346 22,478
19,026 19,138
1,5883 1,5975
196,48 197,66
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Einar Davíðsson einar.davidsson@365.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is,
Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is, Elsa Jensdóttir elsaj@365.is, Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is
RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
STJÓRNSÝSLA Séra Sigurði Helga Guðmundssyni,
þáverandi framkvæmdastjóra hjúkrunarheim-
ilisins Eirar, var óheimilt að greiða tengdasyni
sínum lögmannskostnað með því að láta Eir
kaupa sólarlandaferð fyrir hann og fjölskyldu
hans á 200 þúsund krónur.
Þetta er niðurstaða Ríkisendurskoðunar, sem
leggur til að séra Sigurði verði gefinn kostur
á að ljúka málinu með því að endurgreiða 200
þúsund krónurnar.
„Verði hann ekki við þeirri málaleitan verði á
hinn bóginn nauðsynlegt að íhuga næstu skref í
málinu og mun Ríkisendurskoðun reiðubúin til
þess að láta í ljós álit á þeim möguleikum, sem
þá yrðu í stöðunni,“ segir í svarbréfi sem Ríkis-
endurskoðun sendi til núverandi framkvæmda-
stjóra Eirar, Sigurðar Rúnars Sigurjónssonar,
í fyrradag.
Sigurður Rúnar hafði farið þess á leit við
embættið að það tæki til skoðunar greiðslu til
Jóhannesar Rúnars Jóhannssonar, tengdasonar
séra Sigurðar, í formi ferðar til Alicante á Spáni.
Séra Sigurður segir í svarbréfi sínu að þáver-
andi stjórnarformanni Eirar, Vilhjálmi Þ. Vil-
hjálmssyni, hafi verið „vel kunnugt“ um að hann
hefði leitað lögfræðiaðstoðar fyrir Eir á þessum
tíma.
„Sá er þjónustuna veitti var tregur til að
rukka fyrir veitta þjónustu, sem var í sumum
tilvikum veruleg, og leið mér ekki vel með það.
Ég ákvað því að veita honum umbun fyrir að-
stoðina með ávísun á farseðil, en hefði eins vel
getað verið greitt með peningum. Tel ég reyndar
fullvíst að ef annar háttur hefði verið hafður á
hefði kostnaður Eirar vegna þessa numið mun
hærri fjárhæðum.“
Í svari Ríkisendurskoðunar til Eirar er hins
vegar farið hörðum orðum um þessa ráðstöfun
Sigurðar. „Engin haldbær gögn eða upplýsingar
liggja þannig fyrir um í hverju meint lögfræði-
þjónusta, sem umrætt gjafabréf er sagt hafa
verið endurgjald fyrir, hafi verið fólgin,“ segir
ríkisendurskoðandi. Lögmaðurinn hafi hvorki
gefið út neinn reikning vegna „hinnar meintu
vinnu“ né vísað til samkomulags við hann.
„Af sömu sökum hefur ekki verið gefinn út
verktaka- eða launamiði vegna útgjalda þessara,
svo sem lögskylt er ef um þjónustukaup af
þessu tagi er að ræða. Loks er þess að geta að
umræddur lögmaður, sem fyrrverandi forstjóri
umbunaði með framangreindum hætti, mun
vera tengdasonur hans.“
Ríkisendurskoðandi telur því að líta
verði svo á að greiðslan hafi verið
óheimill örlætisgerningur „með
vísan til lögformlegrar stöðu
Hjúkrunarheimilisins Eirar sem
sjálfseignarstofnunar er starfar
samkvæmt staðfestri skipulags-
skrá, skipulagsskrárinnar sem
slíkrar, umboðs fyrrverandi
forstjóra til að skuldbinda
sjálfseignarstofnunina, trún-
aðarskyldu hans gagnvart
henni og tengsla fyrrverandi
forstjóra við umræddan lög-
mann svo og með hliðsjón
af meginreglum laga um
bókhald og laga um árs-
reikninga, sem og laga
um tekjuskatt og laga um
virðisaukaskatt.“
stigur@frettabladid.is
Fram kemur í bréfi Ríkisendur-
skoðunar að Alicante-ferð
tengdasonar Sigurðar hafi verið
greidd úr „þróunarsjóði“ sem
hafi haldið utan um afslátt af
innkaupum á sjúkrableyjum. Í
svarbréfi frá séra Sigurði segir
að með tilkomu þess sjóðs hafi
komið „möguleikar til að standa
undir kostnaði sem rekstrarsjóður
réði ekki við. Þar má til dæmis
nefna að þegar formaður og
varaformaður fóru í kynn-
isferð til Hollands var það
greitt úr Þróunarsjóði.“
Á þeim tíma voru Vil-
hjálmur Þ. Vilhjálmsson og
Magnús L. Sveinsson for-
maður og varaformaður stjórnar
Eirar.
Fóru til Hollands fyrir bleyjusjóðinn
ESKIFJÖRÐUR Kólígerlar hafa fund-
ist í neysluvatni á Eskifirði og
eru íbúar í bænum beðnir um
að sjóða allt neysluvatn. Tekið
var sýni úr vatnsbóli bæjarins
í fyrradag og bárust niðurstöð-
urnar í gær. Búið er tilkynna
öllum íbúum bæjarins þetta
bréfleiðis.
Vatnsból Eskfirðinga saman-
stendur af nokkrum lindum í
fjallinu við bæinn en þær eru
viðkvæmar fyrir leysingum. Nú
er verið að tengja varavatns-
ból, sem er inni í dal, við krana
bæjarins og verður þeirri aðgerð
líklega lokið á næstu dögum.
Kólígerlar á Eskifirði:
Þurfa að sjóða
neysluvatnið
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
20°
10°
4°
8°
7°
12°
8°
8°
23°
11°
20°
10°
23°
5°
9°
17°
7°
Á MORGUN
Strekkingur eða allhvasst
norðan- og vestanlands
annars hægari.
SUNNUDAGUR
Strekkingur víða með
ströndum annars
hægari.
-2
-3
-3
-4
-40
0
-1
-2
-2
0
1
2
1
-1
00
-2
0
-6
-2
7
11
15
10 7
5
6
9
18
10
15
5
13
KÓLNAR
Það kólnar á land-
inu næstu daga og
má búast við tals-
verðri snjókomu
norðanlands. Með
snjókomunni
verður nokkuð
hvasst og því fylgir
skafrenningur. Víða
má búast við hálku
að minnsta kosti
fram yfi r helgi.
Ingibjörg
Karlsdóttir
veður-
fréttamaður
DÓMSMÁL Hæstiréttur hefur snúið
sýknudómi Héraðsdóms Reykja-
víkur í meiðyrðamáli Jóns Ásgeirs
Jóhannessonar gegn Svavari Hall-
dórssyni, fréttamanni á RÚV.
Hæstiréttur sakfellir Svavar og
gerir honum að greiða Jóni Ásgeiri
300 þúsund krónur í miskabætur.
Málið snerist um sjónvarpsfrétt
sem Svavar flutti 6. des ember 2010.
Hún fjallaði um svokallað Pace-
mál, þegar félagið Fons, í eigu
Pálma Haraldssonar, lánaði Pace
Associates í Panama þrjá milljarða
króna vorið 2007. Í fréttinni sagði
að yfirvöld leituðu fjárins og hefðu
undir höndum gögn sem bentu til
þess að það hefði ratað, eftir króka-
leiðum, aftur til Íslands og í vasa
Pálma, Jóns Ásgeirs og Hannesar
Smárasonar.
Í niðurstöðu Hæstaréttar segir
að ummælin í fréttinni verði ekki
skilin á annan veg en að með þeim
sé Svavar að bera Jóni Ásgeiri
refsiverða háttsemi á brýn. Hann
hafi hins vegar engin gögn lagt
fram sem styðji ummælin og ekki
sýnt fram á að hann hafi leitað
eftir upplýsingum frá Jóni Ásgeiri
um efni hennar.
Fyrir nánast réttu ári var
Svavar dæmdur fyrir meiðyrði
í garð Pálma Haraldssonar. Þau
ummæli snertu annað mál. - sh
Hæstiréttur snýr dómi í máli Jóns Ásgeirs Jóhannessonar gegn fréttamanni RÚV:
Svavar dæmdur sekur um meiðyrði
TVÍDÆMDUR Svavar Halldórsson var
viðstaddur dómsuppkvaðninguna í
Hæstarétti í gær. MYND/SIGURJÓN ÓLASON
BRETLAND, AP Nýjustu hagtölur
frá Evrópusambandinu sýna að
samdráttur upp á 0,1 prósent
varð á evrusvæðinu á milli
annars og þriðja ársfjórðungs
þessa árs.
Þetta er í fyrsta sinn síðan
2009 sem samdráttur mælist á
svæðinu, en vegna langvarandi
skuldavanda margra evruríkj-
anna, með miklu atvinnuleysi
og ströngum aðhaldsaðgerðum,
er búist við því að þessi kreppa
muni dýpka fram á næsta ár.
- gb
Eftir þriggja ára hægan vöxt:
Aftur kreppa á
evrusvæðinu
SIGURÐUR HELGI
GUÐMUNDSSON
MÓTMÆLI Í MADRID Sjálfsvíg varð til
þess að stjórnin skipti um stefnu.
NORDICPHOTOS/AFP
SPÁNN, AP Spænska stjórnin hefur
ákveðið að næstu tvö árin verði
einstaklingar ekki bornir út úr
húsum sínum vegna vanskila, upp-
fylli þeir viss skilyrði.
Stjórnin breytti um stefnu í
þessu máli tæpri viku eftir að
kona, sem sá fram á útburð úr íbúð
sinni vegna vanskila, svipti sig
lífi. Stjórnin er hins vegar gagn-
rýnd fyrir að taka ekki á málum
þeirra, sem gefa húsnæði sitt upp
á bátinn en geta áfram verið stór-
skuldug, jafnvel til æviloka. - gb
Skuldugum hjálpað á Spáni:
Engir útburðir
næstu tvö árin
Sigurður á svig við ótal reglur
Ríkisendurskoðandi vill gefa fyrrverandi forstjóra Eirar færi á að endurgreiða 200 þúsund króna sólar-
landaferð sem hann gaf tengdasyni sínum úr bleyjusjóði hjúkrunarheimilisins fyrir meint lögmannsstörf.
Engin haldbær gögn eða upp-
lýsingar liggja þannig fyrir um í
hverju meint lögfræðiþjónusta […] hafi
verið fólgin.
ÚR SVARI RÍKISENDURSKOÐUNAR