Fréttablaðið - 05.02.2013, Blaðsíða 40

Fréttablaðið - 05.02.2013, Blaðsíða 40
FRÉTTIR AF FÓLKI Mest lesið b ó k a b ú ð f o r l a g s i n s 1 Konan sem hrapaði í Esjunni er látin 2 Twitter logaði í nótt – 5,5 milljónir tístuðu yfi r fl utningi Beyoncé 3 Hæstiréttur skrúbbaður að utan í mótmælaskyni 4 Tveir ungir menn enn í haldi á Akureyri eft ir fólskulega líkamsárás 5 Það er svindlað á þér – enginn staður með löggilta sjússmæla VIÐ SEGJUM FRÉTTIR · SMÁAUGLÝSINGASÍMINN OG SKIPTIBORÐ: 512 5000 DREIFING: dreifing@postdreifing.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060 VÍSIR RITSTJÓRN 512 5313, Fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is PRENTUN Ísafoldarprentsmiðja FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN Meiri Vísir. Vinsæll Hvellur Sýningar á heimildarmyndinni Hvelli eftir Grím Hákonarson byrja vægast sagt með hvelli. Aðsóknin hefur gengið vonum framar og eru aðstandendur myndarinnar mjög ánægðir með viðtökurnar, en alls hafa um þúsund manns séð myndina á einni viku. Hvellur fjallar um einstakan atburð í sögunni þegar bændur sprengdu stíflu við Mývatn árið 1970 og komu þannig í veg fyrir eyðileggingu Lax- ár og Mývatns. Lengi hvíldi mikil leynd yfir því hverjir stóðu að baki sprengingunni og er þetta jafn- framt í eina skiptið sem dínamít hefur verið notað við náttúruvernd á Ís- landi. Fjöldi fylgdist með Ofurskálinni Ofurskálin, eða Superbowl eins og leikurinn nefnist á frummálinu, virðist njóta sífellt meiri vinsælda hér á landi. Þannig mátti fylgjast með miklum fjölda fólks tjá sig um leikinn aðfaranótt mánudags á samfélagsmiðlinum Twitter. Þá voru haldin Ofurskálarboð víða. Meðal annars komu aðstandendur og vinir skemmtistaðarins Harlem saman í lokuðu boði og fylgdust með leikn- um. Meðal þeirra sem mættu voru tónlistarmennirnir Snorri Helgason, Guðmundur Óskar Guðmundsson og Sindri Már Sigfússon, grínistarnir Bergur Ebbi Benediktsson og Jóhann Alfreð Kristinsson, sjónvarpsmaður- inn Ágúst Bent og rithöfundurinn Óttar M. Norðfjörð. - sm, þeb

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.