Fjarðarpósturinn - 13.12.1990, Side 5
FJflRDfK
pösturmn
RITSTJÓRI OG ÁBM.: FRÍÐA PTOPPÉ
AUGLÝSINGASTJÓRI: HANNA FRIÐJÓNSDÓTTIR
ÍÞRÓTTIR: ÞÓRÐUR BJÖRNSSON OG SVEINBJÖRN BERENTSSON
DREIFINGARSTJÓRI: HALLDÓRA GYÐA MATTHÍASDÓTTIR
LJÓSMYNDIR OG ÚTLIT: FJARÐARPÓSTURINN
INNHEIMTUSTJÓRI: SIGURÐUR GÍSLI BJÖRNSSON
PRENTVINNSLA: GUÐMUNDUR STEINSSON OG BORGARPRENT
SKRIFSTOFA FJARÐARPÓSTSINS ER AÐ BÆJARHRAUN116,3. HÆÐ, PÓSTFANG 220 HAFNAR-
FIRÐI. OPIÐ ER ALLA VIRKA DAGA FRÁ KL. 10-17. SÍMAR 651945 (SÍMSVARI EFTIR LOKUN) OG
651745. FJARÐARPÓSTURINN ER AÐILI AÐ SAMTÖKUM BÆJAR- OG HÉRAÐSFRÉTTABLAÐA.
Hrikalegar lýsingar
Þær eru hrikalegar lýsingarnar sem Gísli Sigurðsson,
læknir, gefur okkur af lífi þess fólks, sem býr í stríðshrjáðu
landi. Við getum haft stórar áhyggjur af því hvort við getum
keypt nógu stórkostlegar jólagjafir; hvort við eigum nógu
góð jólaföt; hvað við eigum að borða á jólunum og með
hverjum. Allt er þetta hjómur einn, er við hlustum á Gísla
lýsa störfum sínum í stríðshrjáðu landi síðustu vikur og
mánuði.
Lítli börn eru skotin á færi, menn eru drepnir, ef hermönn-
um sýnist svo, -bara ef þeirfara í taugarnaráþeim. Fjöldinn
hefur hvorki í sig né á. Það er áreiðanlega rétt, sem Gísli
sagði við heimkomuna til íslands: Líklega hafa allir gott af
því að upplifað það sem fjölskylda Gísla Sigurðssonar og
Birnu Hjaltadóttur hefur reynt síðustu mánuðina. Eflaust
megum við þakka fyrir margt og mikið, sem við tökum sem
sjálfsögðum hlutum.
Til hamingju Kristín
Kristín Loftsdóttir heitir ung hafnfirsk stúlka. Fyrirtveimur
árum vann hún til bókmenntaverðlauna fyrir barna- og ungl
ingabókina „Fugl í búri“. Kristín lét ekki þar við sitja og gaf út
nú fyrir jólin bókina „Fótatak tímans", sem útnefnd hefur
verið, ásamt sex örðum fagurfræðibókum, til bókmennta-
verðlauna.
Þeir sem lesið hafa bækur Kristínar, geta áreiðanlega
verið sammála Fjarðarpóstinum, að þarna er á ferðinni at-
hyglisverður „penni“. Þrátt fyrir ungan aldur sýnir Kristín
óvenjulegt næmi og persónulýsingar hennar í þessum
tveimur bókum láta engan ósnortinn.
Til hamingju Kristín. Vonandi fáum við sem fyrst meira að
heyra, þ.e.a.s. að lesa.
Verslum í heimabyggð
Það þarf varla að ítreka mikilvægi þess, að Hafnfirðingar
versli í heimabyggð fyrir jólin. Ekki er nokkur leið að efla og
bæta þjónustuna við bæjarbúa, ef þeir rjúka síðan til Reykja-
víkurtil innkaupa.
Það verður fróðlegt að fylgjast með vilja bæjarbúa í þess-
um efnum nú fyrir jólin. Ung stúlka, sem vinnur í verslun í
Kringlunni, sagði við þann sem þetta ritar, að hún hefði
aldrei séð eins marga Hafnfirðinga á einum stað eins og í
vinnunni fyrir síðustu jól. - Eflum og bætum eigin þjónstu.
Verslum í heimabyggð.
JJ
Þaö var fyrir 16 kílóum síðan
((
- Rætt við Sólveigu Fríðjónsdóttur, sem náöhefur undraverðum árangii
í keppninni viö aukakílóin.
„Það var fyrir 16 kflóum síðan, eða í maímánuði sl., að ég var beðin
að taka þátt í tiiraun þriggja kvenna á vegum tímaritsins Mannlífs. Til-
raunin fólst í því að fara í megrunarkúrinn Nutrilet undir eftirliti og
leyfa blaðinu að fylgjast með mér. Kúrinn kom mér af stað, þannig að
ég er nú 16 kflóum léttari. Reyndar er ég núna 27 kflóum léttari en ég
var 1986, en þá var ég reyndar nýbúin að eiga barn“, sagði Sólveig
Friðjónsdóttir, húsmóðir og fulltrúi hjá Eimskip, en af meðfylgjandi
myndum má sjá þann gífurlega mun sem orðinn er á henni.
Sólveig er ekki hávaxin, er 164 Á þessum tíma setti ég mér
cm á hæð, þannig að 16 kg þýða grundvallarreglur. Ég steinhætti
að nota mjólk í kaffi, og skil ekki
ennþá hvernig ég fór að því. Þá
hætti ég að nota smjör á brauð.
Það er enginn vandi, osturinn er
nægur og það má rista brauðið, ef
fólki finnst smjörið ómissandi. Þá
forðast ég sósur og nota þær helst
ekki. Fiskur, sem eldaður er í lok-
uðu íláti, hefur nógu mikinn safa
eða vökva þannig að sósa er
óþörf. Á meðan ég var í kúrnum
minnkaði einnig löngunin í sæl-
gæti, en það nota ég helst ekki í
umtalsverða breytingu á vexti.
Við báðum Sólveigu að segja okk-
ur svolítið frá því, hvernig hún fór
að þessu, þó ekki væri nema til að
gefa okkur hinum von, sem sjáum
fram á þyngdaraukningu yfir „át-
hátíðina" miklu, jólin.
Sólveig segir svo frá: „Það var í
byrjun maí. Ég hafði náð af mér
12-14 kg eftir síðasta barnsburð
en virtist þá ætla að standa í stað.
Ég greip tækifærið og reyndi
þennan kúr. Hann er unninn af
norskum lækni og samansettur af
næringardufti, sem hrært er út í
vatni. Fimm skammtar, samtals
420 hitaeiningar, af duftinu fuil-
nægja dagsþörf eins manns, en
auk þess fylgja með lýsis- og bæti-
efnapillur sem nauðsynlegt er að
taka inn daglega. Einnig er leyfi-
legt að fá sér l;;tt grænmeti ef við-
komandi finnur til svengdar eða
máttleysis meðan á kúrnum
stendur, sem ég var í í tíu daga.
Mér leið ágætlega þessa daga og
fann ekki til máttleysis eða
þreytu. Ég hafði mikið að gera í
vinnunni og tók á tímabilinu tvö
próf í Öldungadeildinni og gekk
bara vel. Á ellefta degi var ég sjö
kílóum léttari. Það var á þeim
punkti sem ég ákvað að halda
áfram. Ég hef farið í marga megr-
unarkúra um ævina og geri mér
því grein fyrir, að það sem skiptir
höfuðmáli er að léttast hægt og
jafnt og þétt. Mataræðið skiptir
öllu, en alls ekki einstakir tíma-
bundnir kúrar. Því ákvað ég að
gera í eitt skipti fyrir öll róttækar Sólveig, eins og hún leit út í upp-
breytingar í lífi mínu. hafi megrunar í maísl.
dag. Ég læt mér einnig nægja eina
brauðsneið á dag. Það er fyllilega
nóg, en ég vil ekki vera án þess.“
- Hvað með kartöflur? Eru
þær ekki bannvara?
„Nei, í raun er fátt í sjálfum
fæðuhringnum bannvara. Það er
þó algjör óþarfi að borða eins
mikið af kartöflum og við höfum
flest vanið okkur á. Ég tel núna
kartöflurnar í pottinn. Ein meðal-
stór á mann er fyllilega nóg.“
Sólveig er síðan spurð um fram-
haldið. Hvernig gekk að halda í
farinu, en flestir sem ná góðum
árangri uppgötva allt í einu, að öll
kílóin eru komin aftur og jafnvel
fleiri til viðbótar: „Frá því í maí
hef ég farið þrisvar í Nutrilett-
kúrinn, eða í þau skipti sem mér
hefur fundist að ég sé að detta í
gamla farið.
Þá er hreyfingin stór þáttur í
þessu. Hress í Hafnarfirði bauð
okkur mánaðarmánskeið á með-
an á þessu stóð. Þá fór ég í nudd
og í rafmagnsnuddtæki, svonefnt
Trimm Form, sem vinnur gegn
cellulit, jafnframt sem það styrkir
og þjálfar. Allir þessir þættir sam-
verkandi hjálpuðu með þeim ár-
angri sem ég bý við í dag.“
Það kom einnig fram í viðtalinu
við Sólveigu, að þessi „hreingern-
ing“ hennar á eigin líkama hefur
enn meiri þýðingu fyrir hana en
marga aðra. Hún hefur átt við
sjúkdóm að stríða þar sem hún
mæðist hraðar en gengur og
gerist. Sólveig sagði í því sam-
bandi: „Ég gat til dæmis ekki orð-
ið skúrað gólfin í húsinu án þess
að nota úðalyf fyrir lungu. f dag
finn ég ekki næstum því eins mik-
ið fyrir þessu, þó svo ég skúri allt
húsið og skrúbbi.
- Það væri gaman að kíkja í
fataskápinn þinn? Samvisku-
spurning: Ertu búin að henda
fötunum af „feitu Sólveigu?“
„Nei, ég hef engu hent enn þá
en ætla mér að gera á næstu
Jólaljósin í
Hafnarfjarðarkirkjugarði
Ljósin verða afgreidd frá og með laugardeginum 15.
desember til og með sunnudeginum 23. desember.
Opið frá kl. 13-19 virka daga
og frá kl. 10-19 laugardag og sunnudag
Sólveig í dag.
dögum. Því ég er ákveðin í því að
þurfa ekki þessa stærð af fötum
aftur.
- Ertu ekkert hrædd við af-
leiðingar átveislunnar miklu um
jólin? Er nú ekki í lagi að leyfa sér
svolítinn munað og ná því svo aft-
ur af sér eftir jólin?
„Bíddu við. Þetta er einmitt
stóri misskilningurinn. Hér er
maður ekki góður við sjálfan sig,
heldur virkilega vondur. Þetta er
misnotkun á líkamanum. Það er
til dæmis engin afsökun að þyngj-
ast um einhver fimm kíló og ná
þeim síðan af sér „einhvern tíma
síðar, og nota jólin sem afsökun.“
- Hvað með fjölskylduna. Fær
hún eintóman megrunarmat alla
daga og engar kökur á jólunum?
„Nei, en ég vildi gjarnan að
fjölskyldan gerði sér einnig grein
fyrir þessum grundvallarþætti í
meðferð líkamans. Það kemur þó
áreiðanlega. Ég hef engu breytt í
þeirra mataræði, nema til góðs
með meira grænmeti og ferskari
mat. Talandi um jólin, þá ætla ég
að baka fjórar smákökutegundir
og láta það nægja. Ég verð með
allt mögulegt í jólamatinn í þrem-
ur jólaboðum, meðal annars
steikt lambalæri og kjúklinga.
Hvað varðar sjálfa mig þá ætla
ég ekki að láta jólin eyðileggja
neitt fyrir mér. Ég fór í fimm
vikna sumarfrí í sumar og bætti þá
á mig einu kílói, sem ég náði strax
af aftur og það verður ekki öðru
vísi núna.“
- Hvernig er það með vigtina?
Stendur þú ekki á henni allan lið-
langan daginn?
„Ég vigta mig daglega, enda eru
fimm kíló ekki lengi að koma, - en
miklu lengur að fara. Auðvitað er
ég ánægð en geri mér fyllilega
grein fyrir því hversu auðvelt er
að tapa þessum leik, ef ekki er
gætt fyllstu aðgæslu. Mataræðið
verður að vera orðið hluti af lífinu
til þess að það geti kallast eðlilegt
hverjum og einum.“
- Getur þú ekki ráðlagt þeim,
sem enn erum „hinum megin“ við
rétta þyngdarpunktinn eitthvað,
sem að góðu gagni kemur svona
rétt fyrir jólahátíðina?
„Það væri þá í fyrsta og síðasta
lagi, að segja ekki: „Ég byrja á
mánudaginn", þ.e. að geyma það
ekki fram yfir jólin. Það er ekki að
vera góður við sjálfan sig, heldur
vondur, eins og ég sagði áðan.
Vellíðanin sem fylgir þessum
árangri er ólýsanleg. Ég óska
bara öllum góðs gengis sem hyggj-
ast takast á við sjálfa sig.
- Ein mikilvæg spurning í
lokin, Sólveig. Hvaðborðaðirþú í
dag?
„í morgunmat: Eina brauðsneið
og einn tómat. I hádeginu: Brauð
með skinku og osti, á hlaupum í
vinnunni. Kvöldmaturinn var
pönnusteiktar frampartssneiðar,
ferskt hrásalat með ávaxtasafa í
stað majoness. Með því drakk ég
appelsínusafa. - Ekkert annað,
enda nóg.“
Við þökkum Sólveigu fyrir
spjallið og hvatninguna til allra
hinna, „hinum megin við línuna".
JÓLABLAP FJARÐARPÓSTSINS
Jólablað Fjarðarpóstsins kemur út miðvikudaginn 19. desember.
Auglýsendur: Tryggið ykkur auglýsingapláss
í tíma fyrir jólin
1
Hún sagðist í lokin eiga eftir
mikilvægan hlut, en það er aðgát
og hreyfing. Við óskum henni
góðs gengis, og vonum að ein-
hverjir hafi haft gagn af.
Selt blað
er lesið
blað
FJflRÐflR
póstunnn
Alúeblweklíáaitttb
g& pa*da jólakosdin
-------<2/--------
LJÓSMYNDA
HÚSID
DALSHRAUNI 13 HAFNARFIRÐI SlMI: 91-53181
ALLT TIL JÓLAGJAFA
I|V
RAYMOND WEIL
GENEVE
LE TEMPS CRÉATEUR
FIDELIO
Sígild hönnun, handunnið,
með 18 K. gullhúð, vatnsþétt.
Einnig til í dömustærð með
eða án steina.
Verð frá kr. 69.000,-.
ÚR OG SKARTGRIPIR
Strandgötu 37, sími 650590
B Y fil 1 K C
2 1' 00 -<
z ihi í DVIffl
Q Tilvaldar vörur til jólagjafa o
LL fyrir heimasmiðinn. -n
LL Einnig jólaskraut í úrvali B 1
73 0
o BYKO —
X. >. Z c
m VIÐ REYKJANESBRAUT 1 1 2
S í M 1 5 4 4 1 1
4
5