Fjarðarpósturinn - 15.02.1996, Page 3
Fjarðarpósturinn 3
Umferðarkönnun lögreglunnar
Margir ökumenn vissu ekki
um leyfilegan hámarkshraða
Lögreglan í Hafnarfirði gerði
nýlega umferðarkönnun í sam-
vinnu við önnur lögregluembætti á
Suðvesturlandi, þ.e. Selfossi,
Grindavík, Keflavík, Kópavogi og
í Reykjavík. Spurt var að því hvort
ökumenn væru meðvitaðir um
þetta samstarf, hvort lögreglan eigi
að auka umferðareftirlit frá því
sem verið hefur, hvort ökumönn-
um finnist viðurlög við umferðar-
lagabrotum nægilega þung, hver
væri leyfður hámarkshraði á þeirri
götu, sem viðkomandi var á og
hvort lögreglan hefði áður þurft að
hafa afskipti af honum vegna um-
ferðarlagabrota.
Þegar niðurstaða í svörum öku-
manna er skoðuð kemur í Ijós að
ákveðin tengsl voru milli svara þeirra
ökumanna, sem svara því játandi að
lögreglan hafi áður þurft að hafa af-
skipti af þeim vegna umferðarlaga-
brota og finnst að viðurlög við um:
ferðarlagarbrotum nægilega þung. I
þeim hópi ökumanna finnast auk þess
flestir þeirra, sem telja að lögreglan
eigi ekki að auka umferðareftirlit sitt.
í ljósi þessa má sjá að þeir, sem að
öllu jöfnu mega teljast hættulegri í
umferðinni en aðrir, vilja ekki aukið
eftirlit eða þyngri viðurlög.
Grunnskólahá-
tíðin 1996
Fimmtudaginn 22. febrúar
verður grunnskólahátíðin haldin
og fer fyrri hluti liennar fram í
Bæjarbíó en um kvöldið verður
dansleikur í Iþróttahúsinu við
Víðistaðaskóla.
Á dagskránni í Bæjarbíó eru leik-
rit og söngleikir sem nemendur af
unglingastigi frá Hvaleyrarskóla,
lækjarskóla Setbergsskóla, Víði-
staðaskóla og Öldutúnsskóla flytja
og hafa samið að hluta. Fyrsta sýn-
ingin verður miðvikudaginn 21. feb.
kl. 20:00 og verður það opin for-
eldrasýning. Á fimmtudeginum
verða sýningar kl. 13:00 og 16:00.
Um kvöldið verður stórdansleik-
ur í Iþróttahúsinu við Víðistaðaskóla
og verður margt á boðstólnum þar
s.s. Botnleðja, Herra og Ungfrú
Hafnarfjörður, sigurvegarar úr kara-
okekeppni Vitans, hljómsveitin Sæl-
gætisgerðin, diskótek og að lokum
mun Páll Óskar troða upp. Dansleik-
urinn er fyrir unglinga í 8. 9. og 10.
bekk í Hafnarfirði.
Að dansleik loknum munu Al-
menningsvagnar keyra unglingana
heimleiðis samkvæmt leiðarkerfi.
fréttatilkynning
Pennasala
Rauða krossins
Hin árlega pennasala Rauða
krossins fer fram á Öskudaginn,
miðvikudaginn 21. feb. Pennar
verða afhentir á söludag í félagsmið-
stöðinni Vitanum eftir kl. 10:00.
Lágmarksaldur sölufólks er 10 ára.
Veitt verða verðlaun fyrir söluhæsta
aðilann. Félagsmiðstöðin Vitinn vill
hvetja alla áhugasama til að leggja
góðum málstað Rauða krossins lið.
fréttatilkvnning
Tæplega 60% aðpspurða öku-
manna í Hafnarfirði voru meðvitaðir
um að lögreglan á Suðvesturlandi
hefði með sér samstarf í umferðar-
málum, en tæplega 70% á öllu svæð-
inu. Um 62% ökumanna í bænum
gerði sér grein fyrir hver leyfður há-
markshraði var á götu þeirri, sem þeir
voru stöðvaðir á. Umhugsunarvert er
þó hversu hátt hlutfall aðspurðra
virðist ekki vita hver leyfilegur há-
markshraði er á götu þeirri, sem þeir
voru stöðvaðir á.
Hlutfallslega flestir aðspurðra öku-
manna telja að lögreglan eigi að auka
eftirlit með umferðinni (74%).
Ef taka á mið af umferðaröryggi
og nauðsyn þess að draga úr líkum á
slysum er eðliiegt að tekið verði
meira mark á afstöðu þeirra, sem lög-
reglan hefur ekki þurft að hafa af-
skipti af vegna umferðarlagabrota.
Eðli málsins samkvæmt hlýtur óneit-
anlega að þurfa að taka meira mið af
réttindum og kröfum hinna lög-
hlýðnu þegar horft er til markmiða
gildandi laga og reglna, segir m.a. í
fréttatilkynningu lögreglunnar á Suð-
vesturlandi í framhaldi af könnun-
inni.
Þessi niðurstaða styður þá vitund
lögreglumanna að vegna afskipta
lögreglu af umferðarlagabrotum
kemur það ekki á óvart að uppi skuli
vera raddir er vilja ekki aukið eftirlit
eða þyngja viðurlög.
Lögreglan á svæðinu mun áfram
hafa með sér samstarf á þessu sviði
með von um að ökumenn og aðrir
vegfarendur leggi henni lið til að
auðvelda henni starfið og stuðli
þannig að fækkun slysa í umferðinni.
45ÁRAAFMÆLI
Hjálparsveitar Skáta í Haíiiaríirði
Opið hús á laugardag 17. febrúar
milli ld. 13 og 17
Biina'öur sveitarínnar sýndur. Börniun vcröur
keirnt sig (fjallabjörgtui). SviÖsctt verður
bílslys og blásturaðferðin kennd. Bömum
verður leylt að fara á snjósleða ef nægur
snjór verður.
Mætið Öll
Hjálpcirsveit Skáta Hafnarfirdi
Hraunbrún 57
HfiNDUNNIN
bútasaumsrúmteppi
koddaver fylgja
fi heildsöluverði fyrir þig
Mörg
munstur
Rúmstærö 90- 120 cm kr. 6.900.-
120 - 170 cmkr. 9.900.-
170 - 21 Ocmkr. 12.900.-
Lánum teppi til mátunar
TILVALIN FERMINGARGJÖF
HEILDVERSLUN DEKOR
GARðAVEG118 S. 555 3716
SPRENGITILBOÐ FRA
15. T!L 18. FEBRÚAR
Trippasnitsel kr. 398 kg.
Flæskesteik kr. 299 kg.
KÞ naggar kr. 398 pk.
Gæðasalat 215 gr. kr. 69
Bókamarkaður
hefst þann
15.feb. 400 titlar
frá kr. 99
Gæðalasagne 400 gr. kr. 249
Tilboðs franskar 700 gr. kr. 99
Heilhveitibrauð skorin kr. 89
Kínakál kr. 138 kg.
Paprika
græn og
rauð kr.
198 kr./kg
NÝTT KORTATÍMABIL!
FYRIR BOLLUDAGINN:
Bollur og bolluvendir í úrvali.
Kjötfars nýtt, saltað og
með beikoni og papriku.
Ömmu fiskfars.
Munið okkar frábæra saltkjöt á
sprengidaginn.
Fjöidi kynninga föstudag og laugardag
Miðvangi 41 s. 555-0292
Stórmarkaður í Hafnaríirði
Opið virka daga frá kl. 9.00 til 22.00
Opið um helgar frá kl. 10.00 til 20.00