Fjarðarpósturinn - 14.03.1996, Síða 1
Héraðsdómur kveður upp dóm um Einarsreit
Bænum gert að greiða
18 milljónir kr. íviðbót
Héraðsdómur Rcykjanes hcfur
kvcðið upp dóm í dcilumáli bæj-
aryfirvalda við Einar Þorgilsson
& co hf. uni svokallaðan Einars-
reit við Reykjavíkurveginn. Sam-
kvæmt dóminum cr bænum gert
að greiða eigendum Einarsreitar
rómlegalS milljónir kr. til viðbót-
ar þeim 16 milljónum sem þegar
höfðu verið greiddar eða samtals
um 35 milljónir kr. Guðmundur
Benediktsson bæjarlögmaður
segir að málinu verði áfrýjað
enda sé dómurinn rangur og ekki
í samræmi við fræðin.
Upphaf þessa máls má rekja til
ársins 1991 þegar bæjaryfirvöld
ákváðu að taka Einarsreit eignar-
námi enda um skipulagt svæði að
ræða og eignamámið í samræmi við
skipulagslög. Alls er svæðið um 2
ha. að stærð, og aðallega notað undir
fiskverkun en síðustu árin fyrir
eignarnámið var voru þar ýmis
verkstæði. Eigandinn gerði kröfu um
að fá rúmlega 100 milljónir kr. í
bætur en Matsnefnd eignarnáms-
bóta úrskurðaði honum 16 milljónir
kr. fyrir reitinn og þá upphæð
greiddi bærinn á sínum tíma. Þetta
sætti eigandinn sig ekki við og fékk
undirmatsnefnd og síðan yfirmats-
nefnd til að úrskurða í málinu en
niðurstaðan úr yfirmatsnefnd var að
honum bæri að fá tæplega 40 millj-
ónir kr. fyrir reitinn og á það sjón-
armið hefur dómurinn fallist.
Guðmundur Benediktsson segir
að sér finnist þessar fébætur fyrir
reitinn alltof háar því þar sé verið að
úrskurða um verðmæti sem haft ekk-
ert fjárhagslegt gildi. „Fordæmin
sýna að ekki beri að úrskurða bætur
fyrir verðmæti sem hafa ekkert fjár-
hagslegt gildi eins og hér hefur ver-
ið gert og því verður þessu máli
áfrýjað," segir Guðmundur.
Spurningakeppni
Setberg
sigraði
I byrjun mars fór fram spurn-
ingakeppni Vitans milli unglinga-
deilda grunnskólanna í Hafnar-
firði. Setbergsskólinn sigraði í
keppninni eftir harða baráttu.
Til úrslita kepptu lið Setbergsskóla
og Víðistaðaskóla en þau höfðu áður
slegið út lið annarra skóla. Keppnin
var í mörgum hlutum og dundu á
keppendum spurningar af ýmsum
toga í 60 mínútur. Síðari hluti keppn-
innar var vísbendingaspumingar og
réðust úrslitin á næst síðustu spum-
ingu eftir æsispennandi keppni.
Lið sigurvegaranna úr Setbergs-
skóla var skipað þeirn Þóri Sæ-
mundssyni, Magnúsi Inga Einarssyni
og Hjalta Snæ Ægissyni.
Sigurvegararnir taka við verðlaunum frá Geir Bjarnasyni forstöðumanni Vitans.
Þorra-
mótið
í boccia
-sjá bls. 7
Þrjár
sýn-
ingar
-sjá bls. 6
ís>
FASTEIGNASALA
Sími 565 2790
Fax 565 0790
Lvngberg 19b
Skipti. Sérlega fallegt og vel innréttað
parhús á einni hæð, ásamt bílskúr. 3
góð svefnherbergi sólskáli, parket og
flísar. Áhvílandi BSJ.RÍK. OG HÚS-
BR.7,3 millj.Verð 13,9 millj.
Miðvangur 92
LAUS STRAX. Sérlega vel með farin
og góð 138fm neðri sérhæð, ásamt 26
fm. bílskúr. 4 svefnherb. rúmgóð
stofa. Verð 10.9 millj.
Smárabarð 2c
SKIPTI. Nýleg falleg 117fm 4ra her-
bergja „PENTHOUSE“ íbúð á 2. hæð í
litlu fjölbýli 3 góð svefnherbergi. Fal-
legt útsýni. AHVÍLANDI BYGG-
SJ.RÍK. 3,6 millj. Verð 8,5 millj.
HVAMMAR. SÉR
HÆÐ MEÐ BÍLSKÚR
ÓSKAST.
Vantar góða sérhæð með bfl-
skúr í SUÐURHLUTA BÆJ-
ARINNS fyrir ákveðin kaup-
anda, stærð 120-140 fm.
ásamt bflskúr.
INGVAR GUÐMUNDSSON, LÖGGILTUR FASTEIGNARSALI - JÓNAS HÓLMGEIRSSON -KÁRI HALLDÓRSSON