Fjarðarpósturinn - 14.03.1996, Page 4
4 Fjarðarpósturinn
ÚtgefandúALMIÐLUN ehf. Bæjarhraun 16, 220 Hafnarfjörður.
Símar, ritstjóm 565 1766, auglýsingar 565 1745. símbréf 565 0835.
Framkvæmdastjóri: Oli Jón Olason, ritstjóri: Friðrik Indriðason
innlreimta og dreifing: Steinunn Hansdóttir, umbrot: Fjarðarpósturinn,
prentun: Steinmark
Fjarðarpósturinn er aðili að Samtökum bæjar- og héraðsfréttablaða
Upp með
húmorinn!
Tóbakssala
til unglinga
Tvær kannanir á vegum Æskulýðs- og tómstunda-
ráðs frá áramótum á því hve vel lög um tóbakssölu til
unglinga í bænum eru haldin sýna að þar er víða pottur
brotinn. Ef niðurstöður úr jreim báðum eru lagðar
saman kemur í ljós að næstum hver einasti söluaðili tó-
baks virðir að vettugi þær reglur sem í gildi eru og
banna sölu tóbaks til unglinga undir 16 ára aldri. Ohætt
er að taka undir með ÆTH að þessar niðurstöður séu
geysileg vonbrigði.
Það hefur víst aldrei talist glæpur hérlendis að selja
unglingum tóbak og endurspegla þessar kannanir þann
raunveruleika. Þeir sem bera ábyrgð á því ættu hins-
vegar að endurskoða afstöðu sína því kannanir á
neysluvenjum unglinga sýna að þeir sem reykja eru
mun líklegri en hinir að prófa áfengi. Og þeir sem
drekka eru mun líklegri en hinir til að prófa ólögleg
fíkniefni.
Seinni könnunin sem ÆTH gerði kom forráðamönn-
um þar á bæ verulega á óvart því að óreyndu var talið
að fyrri könnunin myndi hafa þau áhrif að söluaðilar
tóbaks myndu draga töluvert úr sölu á því til unglinga.
Svo reyndist ekki og raunar kom fram í seinni könn-
uninni að ástandið hafði versnað en ekki batnað. Eini
munurinn á þessum tveimur könnunum var að í þeirri
fyrri var um unglingspilt að ræða sem reyndi að kaupa
tóbak en í hinni síðar var um unglingsstúlku að ræða.
Skýringin á því afhverju söluaðilar tóbaks selja ung-
lingi þessa vöru getur vart legið í því að um stórt fjár-
hagslegt spursmál sé að ræða fyrir söluaðilann. Alagn-
ingin er ekki það há. Og vart getur skýringin legið í því
að viðkomandi viti ekki betur því i'yrri könnunin hlaut
umtalsverða umfjöllun bæði í hafnfirskum fjölmiðlum
og þeim sem eru á landsvísu. Skýringin liggur að öll-
um líkindum í því að menn taka lög og reglur um söl-
una ekki alvarlega.
Það er til lítils að hafa lög í landinu sem þorri al-
mennings virðir að vettugi og spumingin hér er hvort
ekki þurfi að taka tóbaksvarnarreglugerðir til endur-
skoðunnar í ljósi þess að enginn virðist fara eftir þeim.
Hér er ekki verið að leggja til að gefa tóbakssölu frjálsa
heldur fremur að gera lög og reglur um hana þannig úr
garði að fólk fari eftir þeim.
Ástæða er til að fagna því framtaki ÆTH að kanna
hvernig þessum málum er háttað í Hafnarfirði. Eflaust
myndu kannanir á öðrum þéttbýlisstöðum sýna svip-
aðar niðurstöður en kannanir sem þessar og umfjöllun
um þær eru ein af leiðunum sem til staðar eru til að
bæta ástandið.
Friðrik Indriðason
-eftir Ásu Maríu Valdimarsdóttur, formann ferðamálanefndar
Eins og alþjóð veit eru Hafnfirð-
ingar skemmtilegasta fólk landsins!
Flestir þekktustu grínarar þjóðarinn-
ar eiga einhverjar rætur í Hafnarfirði,
góðir húmoristar leynast hér út um
allt og hvað væri íslenska þjóðin án
Hafnarfjarðarbrandaranna?
„Hláturinn lengir lífið“
Grín, glens, spaug, skop, brandarar
og allt það. Það er vissulega einstak-
lingsbundið hvað hverjum og einum
finnst fyndið. Grínið getur líka verið
vandmeðfarið, ekki síst þegar það
blandast háði og ádeilu. A hinn bóg-
inn er það óyggjandi staðreynd að
kátína, gleði, bros og hlátur kallar
fram jákvæð viðbrögð á sál og lík-
ama. Hverjum finnst ekki gott að fá
bros? Hver kannast ekki við líkam-
lega vellíðan eftir hressilegt hláturs-
kast? Vísindin hafa sannað gildi
hláturs til að slaka á spennu og ný-
lega heyrði ég að til væru hópar fólks
sem hittust reglulega í þeim eina til-
gangi að hlæja saman! Gottmálþað!
Ef til vill segir einhver: „Hverjum
kemur hlátur eða jákvæðni í hug í
allri þessari eymd, volæði og nei-
kvæðu umræðu sem viðgengst út um
allt?“ Jú, nokkuð til í því, en ég spyr
á móti: „Hefur einhver séð hlutina
batna með því að vera neikvæður og
fara í fýlu?“ Hvernig væri því að
taka höndum saman og prófa í eina
viku eða svo að horfa einungis á
björtu, skoplegu og jákvæðu fletina á
tilverunni?
„Hin alþjóðlega hafn-
firska grínhátíð 1996“
Af þessu tilefni hefur Ferðamála-
nefnd Hafnarfjarðar ákveðið að
gangast fyrir grínhátíð í Hafnarfirði
Ása María Valdimarsdóttir.
Vísindin hafa sannað gildi
hláturs til að slaka á
spennu og nýlega Iteyrði
ég að til vœru hópar fólks
sem hittust reglulega í
þeim eina tilgangi að
lilæja saman!
dagana 1.-8. júní n.k. Markmiðið er
að fá sem flesta bæjarbúa til að taka
þátt í hátíðinni, ekki aðeins sem
áhorfendur heldur ekki síður sem
þátttakendur. Raunar er verið að
skipuleggja skemmtisamkomur af
ýmsu tagi, en við viljum hvetja alla
bæjarbúa að hafa einnig frumkvæði
og leggja sitt að mörkum til að láta
bæinn iða af kátínu, að snúa sem
flestu við og fara úr hefðbundu fari
þessa einu viku. Gaman væri að sjá
starfsfólk fyrirtækja setja upp litaðar
hárkollur eða skondinn símsvara (já
líka Ráðhúsið!), verslanir og veit-
ingahús með „öðruvísi" vöru á
boðstólum (t.d. alvöru „blávatn"),
listamenn „slá á létta strengi", fjöl-
skyldur eða húsfélög „gera garðinn
sinn frægan", saumaklúbba með eitt-
hvað spaugilegt „á prjónunum", skó-
smiði sem „hringsóla“ eða bakara
sem „setja á sig snúð“, svo eitthvað
sé nefnt. Glens og gaman hefur engin
aldursmörk og skal því ná til sem
flestra.
„Grínlandsliðið“
að störfum
Ferðamálanefnd hefur ráðið tvo
góða Hafnfirðinga, þá Hall Helgason
og Ingvar Þórðarson sem fram-
kvæmdastjóra hátíðarinnar. Þeim til
halds og trausts auk nefndarinnar eru
ekki minni menn en hafnfirsku
spaugaramir Siggi Sigurjóns, Laddi,
Magnús Olafsson og Radíusbræðum-
ir Davíð og Steinn Armann. Þeir em
þegar komnir á fullt í undirbúningi
og með aðstoð fjölmiðla og með út-
gáfu á alls kyns gríni munu þeir
smám saman fara að kynna lands-
mönnum öllum hvað hér muni gerast
á afmælishátíð bæjarins 1.-8. júní
n.k. (Bærinn verður 88 ára 1. júní!).
En fyrst óskum við eftir því að bæj-
arbúar taki höndum saman, faðmist,
brosi, hlæi og láti sér detta eitthvað í
hug sem gæti sett skemmtilegan blæ
á hátíðina. Allir sem hafa eitthvað til
málanna að leggja eru hvattir til að
hafa samband við Hall og Ingvar eða
koma við á Vesturgötu 8 (Upplýs-
ingamiðstöð ferðamanna ). Upp með
húmorinn Hafnfirðingar!
Fjölsmíð og Utfararþjónustan
Samstarf um útfarar-
þjónustu í Hafnarf irði
Fjölsmíð, sem er nýlegt tré-
smíðaverkstæði hér í bæ og smíð-
ar m.a. líkkistur, og Útfararþjón-
ustan ehf í Reykjavík, sem hefur
undanfarin ár hefur rekið alhliða
útfararþjónustu, Itafa tekið upp
samstarf á þessu sviði, þar sem fyr-
irtækin hvggjast bjóða Hafnfirð-
ingum upp á sams konar þjónustu
og rekin hefur verið af einkaaðil-
um í Reykjavík og Kirkjugörðum
Reykjavíkur.
Jafnframt hyggjast þessir aðilar
bjóða Kirkjugörðum Hafnarfjarðar
og sjúkrastofnunum hér í bæ upp á
þjónustu sína og hafa þegar sent
Kirkjugörðum Hafnarfjarðar erindi
þar að lútandi.
Fjölsmíð er trésmíðaverkstæði
sem stofnað var síðastliðið haust og
starfar á Stapahrauni 5. Fyrirtækið
annast alla almenna trésmíði en að
sögn Ásgeirs Bjamasonar eins af eig-
endum Fjölsmíð, var gert ráð fyrir
því að einn þáttur starfseminnar yrði
líkkistusmíði, þar sem Hafnfirðingar
m.a. gætu nýtt sér þessa framleiðslu
fyrirtækisins. Með samstarfinu við
Útfararþjónustuna verður hægt að
bjóða Hafnfirðingum alla þá þætti
sem tengjast undirbúningi útfarar, s.s.
mismunandi gerðir líkkistna, líkflutn-
ing fyrir og við útför, útvegun tónlist-
arfólks og blómaskreytingar, svo að
nokkuð sé nefnt. Rúnar Geirmunds-
son hefur undanfarin sex ár rekið Út-
fararþjónustuna ehf en til rekstrar út-
fararþjónustu þarf tilskilin leyfi frá
dóms- og kirkjumálaráðuneytinu.