Fjarðarpósturinn - 18.08.2005, Blaðsíða 5
www.fjardarposturinn.is
31. tbl. 24. árg. 2005
Fimmtudagur 18. ágúst
Upplag 7.800 eintök. Dreift frítt í Hafnarfirði
ISSN 1670-4169
Frá flugsýningu á „Hafnarfjarðarflugvelli“: Olaf Sucker hafði fullt vald á flugvélinni og sýndi færni sína.
Verður FH
Íslands-
meistari á
sunnudag? Vilja slá
aðsóknarmetið á
Kaplakrikavelli
Stórleikur verður í Kapla-
krika á sunnudag þegar FH
tekur á móti Val í úrvals-
deildinni í knattspyrnu. FH-
ingum nægir jafntefli til að
verða Íslandsmeistarar en liðið
hefur ekki tapað stigi í
deildinni til þessa svo þeir
munu örugglega ekki slá slöku
við í þessum leik.
FH-ingar bjóða til mikillar
hátíðar og kostar aðeins 1000
kr. á völlinn fyrir fjölskyldu
svo nú geta stóru barna-
fjölskyldurnar fjölmennt á
völlinn.
Engin tilboð
bárust í leigu á
Staumi Fulltrúi D-lista vill selja
Engin tilboð bárust í leigu á
listamiðstöðinni Straumi en
Fasteignafélag Hafnarfjarðar
auglýsti eftir leigjendum fyrir all
nokkru.
Sigurður Þorvarðarson, D-lista
lagði til að eignin yrði seld þar
sem niðurstaða útboðs gæfi til
kynna að engin eftirspurn væri
eftir listastarfsemi í húsinu.
Afgreiðslu málsins var frestað.
Lækjarbergið fegurst
gatna hér í bæ Fegrunarnefnd veitti einnig tíu aðilum verðlaun
Ljósm
.: K
ristjana Þ
órdís Á
sgeirsdóttir
Árlega veitir fegrunarnefnd
eigendum garða viðurkenningu
og hlutu eigendur níu garða
viðurkenningu að þessu sinni.
Þeir voru: Erluás 38, fyrir fallegan
garð í nýju hverfi. Eigendur
Guðrún J. Guðlaugsdóttir og Jó-
hann Guðmundson. Svöluás 34,
fyrir fallegan garð í nýju hverfi.
Eigendur Agnes Sigurðardóttir og
Björn Birgir Björgvinsson. Öldu-
tún 6, fyrir fallegan og fjöl-
skylduvænangarð. Eigendur,
Ágústa Steingrímsdóttir og Helgi
Þórðarson. Grænakinn 19, fyrir
fallegan og vel hirtan garð. Eig-
endur Erla Eiríksdóttir og Sig-
urður Einarsson. Hólsberg 11,
fyrir glæsilegan, vel hirtan garð í
áraraðir. Eigendur Kristín Einars-
dóttir og Haukur Bachmann.
Háaberg 21, fyrir glæsilegan
garð þar sem náttúran fær að njóta
sín. Eigendur eru Sigurlaug Jóns-
dóttir og Ólafur Guðmundsson.
Birkiberg 42, fyrir fallegan og
vel hirtan garð. Eigendur eru Val-
gerður Bjarnadóttir og Haraldur
Árnason. Sævangur12, fyrir
fallegan garð með gróskumiklum
gróðri. Eigendur eru Vigdís Sig-
urðardóttir og Ragnar Valdimars-
son. Fagraberg 46, fyrir fallegan
garð með fjölbreyttum gróðri.
Eigendur eru Carola Frank Aðal-
björnsson og Steinar B. Aðal-
björnsson.
Þá hlutu Hagvagnar/Hópbílar
Melabraut 18 viðurkenningu fyrir
fallega og snyrtilega aðkomu við
fyrirtæki.
Ljósm
.: K
ristjana Þ
. Á
sgeirsdóttir
Hluti íbúa í Lækjarbergi sem tóku á móti verðlaununum.
Eigendur Oldutúns 6Eigendur Fagrabergs 46
Ljósm
.: G
uðni G
íslason
4 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 18. ágúst 2005
Formlegt skólastarf nemenda í
grunnskólum Hafnarfjarðar
hefst 22. ágúst 2005.
Nemendur mæti í skólana samkvæmt
þessari tímatöflu:
Kl. 9.00 8., 9., og 10. bekkir
Kl. 10.00 5., 6. og 7. bekkir
Kl. 11.00 3. og 4. bekkir **
Kl. 13.00 1. bekkur *
Kl. 14.00 2. bekkur **
* Nemendur í 1. bekk Hraunvalla-
skóla, Setbergsskóla og Öldutúns-
skóla verða boðaðir á öðrum tíma.
** Nemendur í 2., 3., og 4. bekk
Hraunvallaskóla mæti 22. ágúst
kl. 9.00 í Íþróttamiðstöð Hauka á
Ásvöllum.
Foreldrar eru velkomnir við
skólasetningar með börnum sínum.
Fræðslustjórinn í Hafnarfirði
Skólaskrifstofa
Hafnarfjarðar
Skólabyrjun
Þó margir þurfi að taka á sig
krók til að versla eldsneyti hjá
Atlantsolíu láta þeir það ekki á
sig fá, ekki síst á fimmtudag
þegar boðinn var 2 kr. afsláttur.
Fyrirtækið hóf fyrst sölu á
díselolíu í Hafnarfirði á lægra
verði og síðar á bensíni og varð
það til þess að aðrar stöðvar
lækkuðu sín verð og hafa því
Hafnfirðingar notið góðs af frum-
kvæði Atlantsolíu og bíleigendur
sparað umtalsverða upphæð.
Fjölmargir nýttu sér tilboð
fyrirtækisins um viðskiptakort
og voru 10 heppnir viðskiptavin-
ir dregnir út og fengu fría áfyll-
ingu á bílinn sinn:
Baldur Ólafsson - Hjallabraut
Bjarni Nikulásson - Lindarbergi
Emil Sigurðsson - Lækjarbergi
Guðrún Sæmundsdóttir -
Hverfisgötu
Ingvar Árnason - Lækjarbergi
Kristína Kristjánsdóttir -
Miðvangi
Sveinn Eggertsson - Álfaskeiði
Valdimar Þ Valdimarsson -
Ásbúðartröð
Valgeir Kristinsson - Miðvangi
Viktor Hrafn Guðmundsson -
Vesturholti.
Ostur og áfylling hjá Atlantsolíu
Fjölmargir tóku þátt í Atlantsolíudeginum sl. fimmtudag
Hugi Hreiðarsson, markaðsstjóri Atlantsolíu (t.h.) við kaffivagninn
þar sem viðskiptamenn fengu kaffi og kleinu og nýir viðskiptavinir
fengu ostakörfu.
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Allir í skólann ...
– en fyrst í Pennann
Strandgötu 31, sími 555 0045
www.penninn. i s
Fj
ar
ða
rp
ós
tu
rin
n
- ©
H
ön
nu
na
rh
ús
ið
0
50
8
Opið
alla h
elgin
a!
Laugardag 10-18
Sunnudag 13-17
Innkaupalistarnir eru komnir
Skiptibókamarkaður
Elísabet hringdi og benti á að
mikill hundaskítur væri á sand-
ströndinni við Hvaleyrarvatn og
víðar. Hún komi þarna reglulega
með börnin sín og á laug-
ardaginn hafi ungt barn hennar
verið komið með hundaskít upp í
sig við litla ánægju. Þarna er
lausaganga hunda bönnuð og
enn einu sinni er brýnt fyrir
hundaeigendum að vera með
plastpoka undir hundaskítinn svo
allir geti nýtt þessa úti-
vistarparadís í sátt og samlyndi.
Hundaskítur við Hvaleyrarvatn
Börnum og öðru útivistarfólki til mikils ama
Lj
ós
m
.:
K
ris
tja
na
Þ
ór
dí
s
Á
sg
ei
rs
dó
tti
r
Búast má við að þúsundir
Hafnfirðinga leggi leið sína í
höfuðborgina á menningarnótt á
laugardaginn ef veður verður
skaplegt en búist er við hægum
vindi og einhverri rigningu.
Dagskráin er einstaklega glæsi-
leg og viðburðir á þriðja
hundruð. Dagskrána má finna á
vefnum menningarnott.is
Menningarnótt á laugardag
Hafnfirðingar leggja leið sína í höfuðborgina
DAGVINNA
Starfsfólk óskast í Jolla,
Helluhrauni 1.
Upplýsingar gefa Líney og Inga á
staðnum eða í síma 565 4990.
Jón Björgvin Jónsson og
Kristinn Hrannar Hjaltason voru
meðal þeirra fjölmörgu módel-
flugáhugamanna sem sýndu
vélar sínar á „Hafnarfjarðarflug-
velli“ sem heitir reyndar Hamra-
nesflugvöllur á laugardaginn.
Jón hefur flogið í eitt ár og
smíðað tíu módel. Kristinn er
nýbúinn að kaupa sitt fyrsta
módel og þeir reyna að fara á
hverjum degi þegar viðrar til að
fljúga og segjast læra af
mistökunum.
Þjóðverjinn Olaf Sucker fékk
hvern mann til að gapa sem
fylgdist með, slík var færni hans
við stjórnun 40% stærðar módels
sem hann flaug. Hann hreinlega
lék sér með flugvélina og flaug
henni jafnvel á hlið auk þess sem
hann þegar fór að blása sýndi
kúnstir úti í hrauni í gjótu þar
sem hann flaug vélinni af mikilli
snilld alveg niður við jörð,
jafnvel á mjög litlum hraða.
Á sýningunni mátti sjá alls
konar vélar og flestar flughæfar,
þotur, þyrlur, tvíþekjur, þrí-
þekjur, svifflugvélar, smáar vélar
og stórar og margir hafa lagt
geysilega vinnu í smíði vélanna
og eflaust hafa margir lagt
verulegan kostnað í líka.
8www.fjardarposturinn.isFimmtudagur 18. ágúst 2005
Við kunnum
að meta
eignina þína!
Frá Flensborgarskólanum:
Upphaf skóla haustið 2005
Nýnemar (f. 1989) eru boðaðir í skólann fimmtu-
daginn 18. ágúst kl. 13 og fá þá stundatöflur o.fl.
auk þess að taka þátt í kynningu á skólanum.
Aðrir nemendur geta sótt stundatöflur sínar föstu-
daginn 19. ágúst frá kl. 9-15.
Skólasetning fer fram í Íþróttahúsinu við Strandgötu
mánudaginn 22. ágúst kl. 8.30 og að henni lokinni
verður kennt skv. hraðtöflu frá kl. 9.05 til um kl. 13.10.
Kennt eftir stundatöflu frá og með þriðjudeginum
23. ágúst.
Velkomin til starfa!
Skólameistari
Esso Lækjargötu
– Laus störf –
Olíufélagið ehf. leitar að þjónustulipru
og samviskusömu framtíðarfólki til
starfa á Esso í Lækjargötu.
Lágmarksaldur umsækjanda er
18 ára – fólk á besta aldri er hvatt til
að sækja um.
Eftirfarandi störf eru í boði:
•Nesti - afgreiðsla
•Dagmaður - hlutastarf
•Næturvaktir
Nánari upplýsingar veitir
starfsþróunardeild Olíufélagsins í
síma 560 3300.
Einnig er hægt að sækja um á
www.esso.is
©
Fjarðarpósturinn/H
önnunarhúsið – 0507
varahlutir.is
S. 511 2222 varahlutir.is – Bæjarhrauni 6
Bretti - húdd - ljós - stuðarar ...
Boddývarahlutir í bílinn þinn
Fjölmenni á flugdegi á
„Hafnarfjarðarflugvelli“ Mikil gróska í módelflugi
Jón Björgvin Jónsson og Kristinn Hrannar Hjaltason
Vélarnar voru af öllum gerðum.
Skólar hefjast
á mánudag Förum sérstaklega
varlega í umferðinni
Börn í grunnskólum mæta í
skólann eftir sumarfrí á
mánudaginn. Krakkarnir eru
fjörugir eftir sumarið og því
mjög áríðandi að ökumenn fari
sérstaklega varlega í nánd við
skólana. Þá er nauðsynlegt að
foreldrar ræði við börnin sínum
um hættur í umferðinni en
umfram allt sýni gott fordæmi
því án þess eru allir fyrirlestrar
algjörlega gagnslausir.
www.fjardarposturinn.is 5Fimmtudagur 18. ágúst 2005