Fjarðarpósturinn - 18.08.2005, Blaðsíða 7
www.fjardarposturinn.is 7Fimmtudagur 18. ágúst 2005
Úrslit:
Knattspyrna
Úrvalsdeild karla:
FH - Grindavík: 8-0
Þróttur R. - FH: 1-5
Úrvalsdeild kvenna:
FH - ÍA: 2-2
1. deild karla:
Þór - Haukar: 2-0
1. deild kvenna, a-riðill:
Haukar - Þróttur R.: 3-1
3. deild karla, c-riðill:
Hvíti Riddarinn - ÍH: 2-2
Næstu leikir:
Knattspyrna
19. ágúst kl. 19, Ásvellir
Haukar - Víkingur Ó.
(1. deild karla)
20. ágúst kl. 14, Garðsvöllur
Víðir - Haukar
(1. deild kvenna, A-riðill)
21. ágúst kl. 18, Kaplakriki
FH - Valur
(úrvalsdeild karla)
ÍH sigraði
í C-riðli
ÍH hefur lokið leikjum
sínum í C-riðli í 3. deild í
knattspyrnu og hlaut 27 stig,
sigraði í 8 leikjum, gerði 3
jafntefli og tapaði aðeins
einum leik. Hvöt, sem á einn
leik til góða við Afríku getur
náð 26 stigum með sigri í
leiknum og getur því ekki náð
ÍH að stigum. Þjálfari ÍH er
Jón Aðalsteinn Kristjánsson.
FH Íslands-
meistari 12-14
ára í frjálsum
Meistaramóti Íslands 12-14
ára lauk í dag með yfir-
burðasigri FH-inga. FH fékk
470 stig og næsta lið var með
238 stig.
FHingar kræktu í þrjá bikara
af sex í stigakeppni flokka.
Sigur vannst í flokki telpna 13
ára, pilta 13 ára og 14 ára. Þá
varð FH í öðru sæti í flokki 12
ára stráka, fjórða sæti í flokki
12 ára stelpna og í fimmta sæti
í flokki 14 ára telpna. Heild-
arbikarinn vannst svo mjög
örugglega og er FH-liðið
Íslandsmeistari félagsliða 12-
14 ára í frjálsum íþróttum.
Íþróttir
Nú þegar líður að því að
grunnskólar hefji göngu sína er
rétt að hvetja öku-
menn og í raun alla
vegfarendur til að
sýna sérstaka að-
gæslu og tillitssemi í
umferðinni einkum í
grennd við skóla og
þar sem vænta má að
börn séu á ferð. Stað-
reyndin er að stór
hluti þeirra ung-
menna sem hefja
skólagöngu á þessu hausti eru
að stíga sín fyrstu skref út í um-
ferðina og hafa hvorki öðlast
nægilegan þroska eða þekkingu
til að varast ýmsar hættur í
umferðinni. Foreldrar eru börn-
um sínum afar mikilvæg fyrir-
mynd og nauðsynlegt að þau
kenni þeim að fara
eftir umferðarregl-
unum og sýna
umhverfi sínu og öðr-
um vegfarendum
virðingu og tillits-
semi. Lögreglan mun
á næstu dögum fylgj-
ast sérstaklega með
umferðarhraða í
grennd við grunn-
skóla bæjarins.
Ágætu vegfarendur sýnum
ábyrgð og árverkni í umferð-
inni.
Höfundur er lögreglu-
varðstjóri hjá lögreglunni í
Hafnarfirði
Skólabörn í
umferðinni
Valgarður
Valgarðsson
FH-stúlkur náðu á þriðjudag
tveggja marka forskoti á botnlið
úrvalsdeildar kenna í knatt-
spyrnu, ÍA, sem náði að jafna á
lokasekúndum leiksins og
krækja í sín fyrstu stig í sumar.
Mörk FH skoruðu þær Valdís
Rögnvaldsdóttir og Sif Atladótt-
ir.
Töluvert vantaði á baráttuvilja
FH-stúlkna í síðari hálfleik en
þær eiga leiki við tvö efstu lið
deildarinnar eftir á meðan að
Stjarnan, sem er stigi á eftir FH
á leiki eftir við lið í 4. og 5. sæti.
Ljóst er því að FH-stúlkurnar
verða að bíta í skjaldarendur og
mæta grimmar til leiks ef þær
ætla að halda sæti sínu í
deildinni.
FH-stúlkur í bullandi fallbaráttu
Glopruðu niður unnum leik gegn ÍA
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
FH-ingar, sem hafa ekki tapað
leik í efstu deild karla í Kapla-
krika í tvö ár, tóku Grindvíkinga
í kennslustund fyrir rúmri viku
og sigruðu 8-0. Liðið gerði svo
góða ferð í Laugardalinn og
sigraði Þrótt 5-1 og hafa þá
sigrað í 17 leikjum í deildinni í
röð, meira en nokkurt annað lið
hefur gert.
Á sunnudag leikur liðið svo
við Val sem er í öðru sæti, 11
stigum á eftir FH en aðeins eru
12 stig eftir í pottinum og því
dugir FH-ingum jafntefli á
sunnudag til að verða Íslands-
meistarar. Þetta er jafnframt næst
seinasti heimaleikur FH í sumar
en liðið mætir Fylki 11. septem-
ber og á útileiki við ÍA og Fram.
Ætla að slá aðsóknarmet
FH-ingar settu aðsóknarmet í
síðasta heimaleik sínum í fyrra á
móti Fram og komu þá 3225
áhorfendur á leikinn og nú stefna
FH-ingar að því að slá það met
og blása til mikillar hátíðar á
sunnudaginn sem hefst kl. 15 en
Nylon og Hafnarfjarðarmafían
munu leika, töframenn og fl. auk
þess sem boðið verður upp á fríar
pylsur. Þá munu lið 6. fl. FH og
Vals mætast. FH-ingar bjóða upp
á eitt verð fyrir fjölskyldu, 1000
kr. óháð fjölskyldustærð. Sjá
nánar í auglýsingu á bls. 5.
Þrettán - eitt í
tveimur leikjum
Miklir yfirburðir FH í knattspyrnu
Lj
ós
m
.:
G
uð
m
un
du
r A
ri
A
ra
so
n
Á laugardaginn verður upp-
skerudagur skólagarðanna milli
kl. 10 og 15.
Þá er mikilvægt að allir mæti
og taki upp það sem er tilbúið.
Öll fjölskyldan er velkomin en
einhver fullorðinn þarf að koma
með.
Að sjálfsögðu þarf að koma
með poka undir uppskeruna og
ef hægt er áhöld, hníf og gaffal
(garð) þar sem aðeins er til
takmarkað magn í görðunum.
Fyrir þá sem ekki komast á
laugardag verður opið fimmtu-
daginn 25. ágúst frá kl. 16 til 18.
Foreldrar eru hvattir til að
hjálpa börnunum að taka upp
fyrir 10. september en eftir það
er öllum heimilt að taka úr görð-
unum það sem enn er óupptekið.
Uppskerudagur á
laugardag
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Hagnaður SPH fyrstu sex
mánuði ársins nam 214 milljón-
um kr. fyrir skatta samanborið
við 339 milljónir króna á sama
tímabili árið 2004. Þegar tekið
hefur verið tillit til skatta drógst
hagnaður saman um 33,7%.
Vaxtatekjur jukust um 32,6%
og vaxtagjöld jukust um 36,6%.
Hreinar vaxtatekjur námu 661
milljón kr. og hækka þær um
26,3% milli ára.
Aðrar rekstrartekjur námu
421 milljón kr. og lækkuðu um
39,4%. Tekjur af hlutabréfum
og öðrum eignarhlutum voru
115 milljónir kr. og hækkuðu
um 31,3%. Þjónustutekjur
lækkuðu um 15,8% í 195 millj-
ónir kr. Gengishagnaður af
innlendum og erlendum veltu-
verðbréfum nam 162 milljónum
króna og lækkaði um 61%.
Rekstrargjöld námu 768
milljónum kr. og jukust um
17,7%. Hlutfall rekstrarkostn-
aðar af tekjum á tímabilinu var
70,9% og hækkaði úr 53,5%.
Laun og launatengd gjöld
námu 444 milljónum króna á
tímabilinu, jukust þau um
34,6% á milli tímabila. Á tíma-
bilinu var gjaldfærður áætlaður
kostnaður vegna starfsloka-
samninga en það skýrir stóran
hluta hækkunar á launakostn-
aði. Annar rekstrarkostnaður
nam 296 milljónum kr. og jókst
um 6,3%.
Heildareignir SPH þann 30.
júní 2005 námu 38.383 millj-
ónum kr. og hafa þær lækkað
um 201 milljón frá áramótum
eða um 0,5%.
Útlán SPH námu 29.798
milljónum króna á tímabilinu
og jukust um 14,8%. Útlán
sparisjóðsins voru um 77,6% af
heildareignum SPH 30. júní
2005. Innlán námu á tímabilinu
17.595 milljónum kr. og jukust
um 8,4%
Eigið fé SPH nam 3.263
milljónum króna þann 30. júní
2005 og hefur vaxið um 182
milljónir króna frá áramótum
eða um 5,9%.
Eiginfjárhlutfall SPH þann
30. júní 2005 var 13,2%.
Þetta kemur m.a. fram í
tilkynningu frá Sparisjóðnum.
Hagnaður SPH
dregst saman
Traust eiginfjárstaða - gengishagnaður lækkar
Hendir þú
sígarettustubbum út
um gluggann á bílnum
þínum?
Ekki gerir þú það heima hjá þér?
6www.fjardarposturinn.isFimmtudagur 18. ágúst 2005
65m² húsnæði í Hafnarfirði til leigu.
Sér inngangur. Leigist einstaklingi.
Uppl. í s. 867 1552.
Systkini sem eru í skóla óska eftir
2-3ja herb. íbúð í Hafnarfirði frá ca.
1. sept. Reyklaus. Öruggum
greiðslum og ábyrgð heitið.
Uppl. veitir Hanna í s. 846 0421
3-4 herb. íbúð óskast í Hafnarfirði.
Erum reglusöm og reyklaus fjölskylda
af Vestfjörðum með börn í Flensborg
og Iðnskólanum.
Uppl. gefur Pálína í s. 846 8163.
Atvinnu - geymsluhúsnæði óskast.
Óska eftir atvinnu-geymsluhúsnæði
um 50 -100m² til leigu eða kaups,
þarf að hafa bílskúrshurð. Mun ekki
vera notað sem atvinnuhúsnæði.
Uppl. í síma 8206452 Jón Garðar.
Týnd læða í Hafnarfirði.Sóley hefur
ekki sést síðan hún fór út á
sunnudagskvöld. Hún er 6 mánaða
og er til heimilis að Köldukinn 1 í
Hafnarfirði. Er með rauða ól en hafði
síðast á sunnudag á einhvern hátt
losað sig við hluta merkihylkis sem á
ólina var fest. Hún er því ómerkt
þarna úti. Hún er hvít að mestu en að
hluta til grá og rauðbrún.
Uppl. Hans í síma 822 0482.
Þú getur sent
smáauglýsingar á
auglysingar@fjardarposturinn.is
eða hringt í síma565 3066
Aðeins fyrir einstaklinga, ekki
rekstraraðila. Verð aðeins 500 kr.
Tapað-fundið og fæst gefins: FRÍTT
Rekstraraðilar:
Fáið tilboð í rammaauglýsingar!
Tapað fundið
Húsnæði óskast
Húsnæði í boði
Á að kjósa um stækkun álversins í Straumsvík?
Já50%
Nei50%
Taktu þátt á www.fjardarposturinn.is
Breiðband - Loftnet
Gervihnattaþjónusta og sala
Rafeindavirkjar.
Loftnet IJ ehf.
Sími 696 1991.
Eldsneytisverð 17. ágúst 2005 í Hafnarfirði:
Sölustaður95 okt.dísil
Atlantsolía112,7112,2
Esso, Lækjargötu113,8113,3
Esso, Rvk.vegi114,2113,7
Olís, Vesturgötu113,3112,9
Orkan, Óseyrarbraut112,6112,1
ÓB, Fjarðakaupum112,7112,2
ÓB, Melabraut112,7112,2
Skeljungur, Rvk.vegi114,4113,9
Öll verð miðast við sjálfsafgreiðslu og
eru fundin á vefsíðum olíufélaganna.
Fallegir legsteinar
á góðu verði
www.englasteinar.is
Helluhrauni 10
Sími: 565-2566
Englasteinar
Heilsunudd Höfum opnað nuddstofu að Bæjarhrauni 2, 2h.
Bjóðum upp á heilsunudd og höfuðbeina- og
spjaldhryggsjöfnun
Upplýsingar og pantanir í símum
699 0858 og 692 0858
Erlendur M. Magnússon, heilsunuddari
Lilja Petra Ásgeirsdóttir, hbs-jafnari
Í smábænum Vildbjerg á
Jótlandi er haldið eitt elsta
alþjóðlega knattspyrnumót fyrir
börn og unglinga. Bærinn telur
tæplega 4.000 íbúa og er
bæjarfélagið undirlagt þegar
mótið er haldið. Þátttakendur
voru um 8.000 og aðrir gestir um
7.000, þannig að íbúar
bæjarfélagsins margfölduðust
þessa daga sem mótið var haldið.
Þátttakendur voru frá 14 löndum
og fjöldi liða rúmlega 530.
FH og Haukar sendu sína
fulltrúa á mótið og voru 44
fulltrúar Hafnfirðinga
þátttakendur. FH sendi 4. flokk
stúlkna, 28 stúlkur fæddar 1991
– 1992 og kepptu þær í 2 liðum,
þ.e. Alið og B lið. Haukarnir
sendu 3. flokk drengja, 16 drengi
fædda 1989-1990.
FH liðið var það eina sem kom
bæði með Aog B lið til keppni í
s.k. 11 manna fótbolta, það var
algengara að liðin reyndu að
styrkja sig með því að sameina
nágrannalið, þannig að þau ættu
meiri möguleika á góðum
árangri. A-lið FH gekk
frábærlega og vann sinn riðil
með yfirburðum. Fékk fullt hús
stiga, 9 stig á meðan lið nr. 2 í
riðlinum fékk 4 stig. Minnsti
sigur í riðlakeppninni var 5-1,
þannig að FH komst örugglega
inn í A-úrslitakeppnina. A-lið
FH varð síðan í 5ta sæti stúlkna í
sínum aldursflokki og er það
ótrúlega góður árangur á jafn
sterku alþjóðlegu móti.
Haukadrengjum gekk vel, en
þeir urðu í 2. sæti í sínum riðli. Í
16 liða úrslitum töpuðu þeir 1-0 í
leik sem gat farið hvernig sem
var og voru Haukarnir síst lakari
aðilinn.
Framkoma ungmennanna var
þeim til mikils sóma og geta
Hafnfirðingar verið stoltir af
fulltrúum sínum á þessum
vettvangi.
Gunnar Linnet
FH Kaplakrika
óskar strax eftir karlkyns
starfsmanni í íþróttahúsið
Kaplakrika við bað- og húsvörslu.
Þrískiptar vaktir.
Nánari upplýsingar gefur Geir
í símum 565 0711 / 821 4494
Hafnfirsk börn og
unglingar til
fyrirmyndar
Þegar þessi pistill birtist munu
víða í Hafnarfirði liggja frammi
undirskriftalistar, þar
sem skora má á bæjar-
stjórna Hafnarfjarðar
að láta fara fram at-
kvæðagreiðslu um
stækkun álversins í
Straumsvík. Listarnir
eru á almenningsstöð-
um, kaffihúsum, bensín-
stöðvum, vídeóleigum
verslunum og víðar.
Með því að setja nafnið þitt á
þennan lista, gerir þú eftirfar-
andi:
1.Þú segir að þú viljir taka
ákvörðun um eigið nærum-
hverfi
2.Þú segir að þú viljir koma að
ákvörðun um gríðarlega
veigamikinn þátt í ímynd
bæjarins.
3.Þú stuðlar að því að Hafn-
firðingar muni í sameiningu
taka ákvörðun um stóran þátt
í framtíð bæjarins.
4.Þú hafnar því að utanaðkom-
andi aðilar geti hlutast til um
málefni þín, heldur
sækir þér rétt þinn til
að koma að ákvörðun.
Við vitum að á
teikniborðinu er meira
en tvöföldun álversins í
Straumsvík. Við sem
viljum hafa eitthvað
um það að segja hvort í
þessa framkvæmd
skuli ráðist í grennd
við það svæði þar sem íbúa-
fjölgun Hafnarfjarðar er hvað
mest. Við sem viljum hafa eitt-
hvað um það að segja hvort
stækka skuli álver sem verður í
miðbænum, milli sameinaðs
sveitarfélags Hafnarfjarðar og
Voga. Við sem viljum halda
sjálfsákvörðunarrétti okkar, við
skrifum undir þessa lista og
skorum þannig á bæjaryfirvöld að
rödd Hafnfirðinga fái að heyrast!
Höfundur er formaður VG í
Hafnarfirði.
Gestur Svavarsson
Setbergsskóli Aðstoðarskólastjóri
Fræðsluráð tók fyrir umsóknir
um stöðu aðstoðarskólastjóra
Setbergsskóla í síðustu viku.
Skólastjóri lagði til að Róbert
Grétar Gunnarsson yrði ráðinn
og tók Fræðsluráð undir tillögu
skólastjóra.
Róbert varð aðstoðarskóla-
stjóri í Hvolsskóla enn hann var
ráðinn þangað á vordögum á
síðasta ári.
Geymsluhúsnæði
Byggðasafnsins Magnús Sigurðsson (D) hefur
lagt til að nýtt geymsluhúsnæði
verði fundið fyrir Byggðasafnið
en undanfarið hefur safnið notast
við húsnæði í Þjónustumiðstöð
Hafnarfjarðar sem Magnús segir
Þjónustumiðstöðina hafa mikla
þörf fyrir sjálfa að nýta það
húsnæði. Fasteignafélagsins
samþykkti tillöguna.
Byggðasafnið hefur oft á tíð-
um búið við ófullkomið
geymsluhúsnæði og væri brýnt
að byggt væri vandað geymslu-
húsnæði fyrir safnið til að tryggja
örugga varðveislu muna.
Kort ekki uppfærð Þrjú kort er að finna á vef
Hafnarfjarðarbæjar, eitt þeirra
hefur ekki verið uppfært í ein-
hver ár, annað sjaldan en kortið á
Íbúavefnum, sem keyrt er á
Infrapath, virðist vera uppfært að
hluta en þar á að vera hægt að
sækja mikið magn upplýsinga.
Ákveðum þetta sjálf!
2 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 18. ágúst 2005
Það er í sjálfu sér óðs manns æði að ætla að hafa
skoðun á frumvarpi forsætisráðherra um rétt
samkynhneigðra enda ætla ég mér ekki að hætta
mér langt út á þann hála ís. Hins vegar get ég ekki
látið vera að hugsa um rétt ófæddra barna til
föðurs og móður af réttu kyni. Einhvern veginn
finnst mér eins og eigingirni okkar mannanna sé
alltof mikil þegar kemur að grundvallarspurn-
ingum um lífið og tilveruna. Við gleymum oft að
hugsa um rétt annarra þegar við krefjumst réttar okkar og ekki síður
að hugsa um siðfræði og trú manna. Biblían er ekkert loðin þegar
kemur að annarri kynhneigð manna og kvenna en til hvors annars en
samt vilja ýmsir að kirkjan gefi saman hjón af sama kyni. Þarna hriktir
í stoðum kristinnar trúar en er reyndar dæmigert fyrir sérstaka
trúarskoðun Íslendinga sem svo ólíkt öðrum þjóðum eru duglegir við
að blanda saman kristinni trú við t.d. trú á stokka og steina, álfa og fl.
eins og skýrt hefur komið fram í könnunum sem gerðar hafa verið hér
á landi.
Þeir sem ekki vilja samþykkja öll sömu réttindi handa samkyn-
hneigðum hjónum og venjulegum hjónum eru sagðir fordómafullir og
þá er málið afgreitt. Svona einfalt er lífið ekki og í kristinni trú er
umburðarlyndi geysilega mikilvægt. Ekki ætla ég neinum sem vill
ekki sömu réttindi handa samkynhneigðum að hatast út í þá. Ég held
að allir sem þekkja samkynhneigt fólk virði það og meti eins og annað
fólk en það er ekki sjálfgefið að menn þurfi að vera sammála þeirra
lífsskoðunum.
Mikið er lagt upp úr mikilvægi þess að börn fái að alast upp hjá
föður og móður eins og náttúran býður upp á. Engin börn verða til
nema fyrir tilstuðlan þeirra. Ófædd börn eiga engan talsmann og ég
hef ekki séð umboðsmann barna fjalla um þetta mál þó það geti samt
verið. Það er í raun ótrúlegt hversu fáir hafa tekið upp hanskann fyrir
ófæddu börnin og skoðað málið frá þeirra sjónarhóli. Réttur hvers er
mikilvægari?
Guðni Gíslason
1. Bjarkarhús - breytingar
innanhúss
Tekið fyrir að nýju erindi frá
Fimleikafélaginu Björk, dagsett
27.júní 2005, þar sem farið var
fram á endurskipulagningu á eign-
arhluta Fasteignafélagsins m.t.t.
skrifstofuaðstöðu. Bæjarráð í um-
boði bæjarstjórnar tók jákvætt í
erindið á fundi þann 30. júní sl. og
vísaði því til afgreiðslu forstöðu-
manns. Erlendur Árni Hjálmarsson
gerir grein fyrir stöðu málsins.
Endanlegir uppdrættir og kostn-
aðaráætlun verða lagðir fram á
næsta fundi. Forsvarsmenn Bjark-
anna hafa beðist afsökunar á
framgangi málsins.
5. Strandgata 31 og Strandgata 33
Farið yfir stærðir og notkun á
eignunum. Forstöðumaður óskar
eftir því við stjórn félagsins að fá
heimild til að auglýsa eftir aðilum
sem eru tilbúnir til að kaupa
eignirnar og leigja Hafnarfjarðar-
bæ hluta af eignunum aftur til allt
að 10 ára.
Afgreiðslu frestað.
4. Hansadagar
Sviðsstjóri greindi frá því að
Hafnarfjarðarbær væri orðinn
meðlimur í Städtebund der Hansa,
fyrst íslenskra bæjarfélaga en 169
borgir eru í sambandinu. Mun
sögu Hansakaupmanna verða
gerð góð skil á Hansadögunum
sem verða 21.-23. október nk.
Sviðsstjóri fór yfir undirbúning
að Hansadögum og greindi einnig
frá því að Forseti Íslands mun
koma í opinbera heimsókn til Hafn-
arfjarðar 20. og 21. október nk.
Þjónustu- og þróunarráð hvetur
miðbæjarnefnd og menningar- og
ferðamálanefnd til að koma að
málinu og að allir leggist á eitt til að
Hansadagar takist sem best.
2. Fjárhagsáætlun 2005,
breytingartillögur
Lagðar fram tillögur bæjarstjóra,
dags. 11. ágúst ́ 05, um breytingar
á fjárhagsáætlun Hafnarfjarðar-
bæjar 2005. Fjármálastjóri mætti til
fundarins og kynnti tillögurnar.
Meirihluti bæjarráðs í umboði
bæjarstjórnar vísar tillögunum til
seinni umræðu í bæjarstjórn.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks óska
bókað:
„Bæjarráðsmenn Sjálfstæðis-
flokksins eru að sjá breytingatil-
lögur Samfylkingarinnar við
fjárhagsáætlun yfirstandandi árs
fyrst núna á fundinum og munu því
koma á framfæri athugasemdum
sínum, ábendingum og afstöðu til
tillagnanna á næsta fundi
bæjarstjórnar.“
7. Merkúr hf., lóðarumsókn
Lagt fram bréf, dags.
03.08.2005, frá stjórnarformanni
Merkúrs hf. þar sem óskað er eftir
lóð fyrir starfsemi Merkúrs hf.
Vísað til umsagnar umhverfis-
og tæknisviðs.
Dan Kai Teatro í Gamla
Lækjarskóla
Leikhópnum Dan Kai Teatro hefur verið
boðið að taka þátt í menningarnótt á
laugardaginn, í annað sinn en þau
sýndu verkið Beauty á seinasta ári. Af
því tilefni hafa þau ákveðið að sýna
einnig í húsnæði Leikfélags Hafnar-
fjarðar í Gamla Lækjarskóla tvo stutta
þætti, Fear, eftir Eyrúnu Ósk Jóns-
dóttur. Leikritið er skrifað í ljóðrænum
stíl undir áhrifum íslenskra og
spænskra þjóðsagna. Seinna verkið
heitir Nana del Caballo (Vögguvísa
hestsins) og er spunaverk sem er byggt
á leikritinu El Puplico (áhorfendurnir)
eftir Federico García Lorca. Leikritið
skoðar hugmyndir um kynhlutverk og
kynhneigð. Verkin verða flutt á ensku.
Leikhópinn skipa ungt fólk frá Spáni,
Íslandi og Englandi. Sýningar verða í
dag fimmtudag (forsýning), föstudag
og sunnudaginn kl. 20. Miðaverð er
1000 kr. Áhorfendum verður boðið upp
á kaffi og meðlæti í hléi.
Síðasta sýningarhelgi í
Hafnarborg
Sýningum listamannanna Wilhelm
Sasnal (f. 1972), Bojan Sarcevic (f.
1974), On Kawara (f. 1933) og Elke
Krystufek (f. 1970) sem staðið hafa yfir
í sumar lýkur nú um helgina.
Sýningarnar hafa vakið nokkuð umtal,
ekki síst sýning Elke Krystufek í aðalsal
safnsins en hún gerir verk sem eru
grafískt unnar myndir af sambandi
hennar við eigið sjálf og líkama. Þau
vekja spurningar varðandi kvenleikann
og sögu Vínarborgar, þar sem karlar
hafa verið mjög ráðandi. Í málverkum
sínum, gjörningum, innsetningum og
ljósmyndum breytir listakonan innstu og
viðkvæmustu kenndum sínum í upp-
lýsingar fyrir almenning og hún afhjúpar
sjálfa sig í verkum sínum í því skyni að
varpa fram spurningum um gægju-
hneigð og stjórn.
Því er hver að verða síðastur að skoða
sýningarnar en brátt hefst 80 ára
afmælissýning Eiríks Smith.
Sunnudagurinn 21. ágúst
Guðsþjónusta kl. 11
morgunsöngur
Lofgjörðarsamkoma
í Vonarhöfn Strandbergs
(gengið inn frá
Suðurgötu) kl. 20 á
föstudagskvöldum.
Útgefandi: Keilir ehf.
Fjarðarpósturinn, Bæjarhrauni 2, 220 Hafnarfirði
Ritstjórn: 565 4513, 896 4613, ritstjorn@fjardarposturinn.is
Ritstjóri og ábm.: Guðni Gíslason
Auglýsingar: 565 3066, auglysingar@fjardarposturinn.is
Umbrot: Hönnunarhúsið, umbrot@fjardarposturinn.is
Prentun: Steinmark ehf. Dreifing: Íslandspóstur
ISSN 1670-4169 – Vefútgáfa: ISSN 1670-4193
www.fjardarposturinn.is
www.hafnarf jardark i rkja. is Eina hafnfirska fréttablaðið
Lækjar- eða
menntasetur?
Alls bárust 75 tillögur um nýtt
nafn á gamla Lækjaskólanum og
valdi fræðsluráð fjórar þeirra til
að setja í kosningu á heimasíðu
Hafnarfjarðar, Gamli barna-
skólinn, Lækjarsetrið, Mennta-
setrið við Lækinn og Skólagerðið.
Gamli barnaskólinn gæti því
orðið menntasetur eða lækjar-
setur hvernig svo sem menn
skilja það orð. Kosningin stendur
til 22. ágúst og virðist nafnið
Gamli barnskólinn fá flest at-
kvæði en hægt er að sjá hverning
kosning gengur.
Óskilamunir
Óskilamunir frá leikjanám-
skeiðum Hafnarfjarðarbæjar og
róló má nálgast á skrifstofu
Vinnuskólans, Hrauntungu 5.
Frekari upplýsingar í síma
5651899.
Landslið Belgíu
æfir í
Bjarkarsalnum
Landslið Belgíu í fimleikum
kvenna er með æfingabúðir hér á
landi ásamt meistarahópi fim-
leikadeildar Gróttu 5.-19. ágúst.
Í hópnum eru 16 fimleika-
stúlkur á aldrinum 12 - 18. ára og
fjórir erlendir þjálfarar.
Meðal stúlknanna er ein besta
fimleikastúlka Belgíu, Aagie
Vanwallegheim, 18 ára, sem
keppti á Olymíuleikunum í
Aþenu 2004 og á Evrópumótinu
2005 en þar varð hún í 6. sæti í
fjölþraut og 3. sæti í stökki.
Einnig Gaelle Mys, 14 ára, sem
lenti í 7. sæti í fjölþraut á
Olympíuleikum æskunnar sem
fram fóru á Ítalíu í síðasta
mánuði.
Stúlkurnar æfa í Íþróttamið-
stöðinni Björk frá kl. 15-18.30
en salurinn er leigður út til þeirra
á þessu tímabili.
Lögreglumál
Eins og að undanförnu voru
umferðarmálin í brennidepli í
umdæmi lögreglunnar á Álfta-
nesi, í Garðabæ og Hafnarfirði í
síðustu viku. Höfðu lögreglu-
menn haft afskipti af 35 öku-
mönnum vegna brota á umferð-
arlögum. Brotin voru allskonar,
allt frá því að tala í farsíma án
handfrjáls búnaðar á meðan á
akstri stendur og til þess að aka á
139 km hraða á Reykjanesbraut
þar sem leyfður hámarkshraði er
90 km. Þá hafa farið fram
hraðamælingar í íbúðarhverfum,
einkum á svæðum þar sem
hámarkshraði hefur verið lækk-
aður í 30 km og hafa allmargir
ökumenn verið kærðir og aðrir
áminntir fyrir að aka of hratt. Hert
eftirlit verður í grennd við grunn-
skólana í næstu viku. Alls voru 27
ökumenn kærðir vegna hrað-
aksturs síðustu viku.
Helgin var að mestu friðsöm í
umdæmi lögreglunnar á Álfta-
nesi, í Garðabæ og Hafnarfirði.
Aðfaranótt sunnudags bárust lög-
reglunni þó óvenju margar kvart-
anir vegna hávaða frá samkvæm-
um, bæði utan- og innandyra.
Mjög stillt veður var þessa nótt og
barst hljóð því vel um næsta ná-
grenni. Sjö umferðaróhöpp voru
tilkynnt til lögreglunnar. Í einu
þeirra, þegar bifreið var ekið á
ljósastaur á mótum Byggðar-
brautar og Hamrabyggðar,
snemma á sunnudagsmorgun,
slasaðist ökumaður lítillega og
var fluttur á slysadeild. Tveir
ökumenn voru kærðir vegna
gruns um ölvun við akstur. Alls
var 21 ökumaður kærður vegna
umferðarlagabrota þessa helgi,
þar af 12 vegna hraðaksturs.
Tómas Meyer í
Samfylkinguna
Átti ekki lengur
samleið með
Framsóknarmönnum
Tómas Meyer sem hefur
verið einn helsti drifkrafturinn í
Framsóknarflokknum í Hafn-
arfirði hefur sagt skilið við
flokkinn og gengið til liðs við
Samfylkinguna. Tómas, sem
sat í miðstjórn flokksins og í
stjórn Sambands ungra Fram-
sóknarmanna, segir ástæðurnar
vera annars vegar persónulegar
og hins vegar þær að ekkert
hafi verið að gerast í flokknum
í Hafnarfirði og að hann hafi
fjarlægst hugmyndafræði
flokksins. Hann hafi áhuga á að
vinna að málefnum Hafnar-
fjarðar og eini kosturinn í stöð-
unni hafi verið þessi.
Tómas segist hafa fylgst með
Samfylkingunni í um ár og sjái
tækifæri fyrir þjóðfélagið þar
og að hann hlakki til að vinna
með því fólki sem þar er.
Jóhann Skagfjörð Magnús-
son, annar ungur framsóknar-
maður hefur einnig sagt sig úr
flokknum en það mun hann
hafa gert er hann gerðist blaða-
maður á DV.
www.fjardarposturinn.is 3 Fimmtudagur 18. ágúst 2005
3ja rétta
kvöldverður:
– frá kr. 1.990,-
2ja rétta
hádegisverður:
– frá kr. 990,-
Náðu til Hafnfirðinga í
hafnfirsku blaði!
555 3066 www.fjardarposturinn.is
Þann 16. júní sl. samþykkti
Skipulags- og byggingarráð Hafn-
arfjarðar að heimila Alcan að aug-
lýsa tillögu að deiliskipulagi fyrir
hugsanlega stækkun
álversins í Straumsvík.
Með stækkun álversins í
460 þúsund tonna árs-
framleiðslu yrði það
með stærstu álverum í
Evrópu. Ráðið gerði
ýmsa fyrirvara við deili-
skipulagið bæði í grein-
argerð með deiliskipu-
lagstillögunni og í skipu-
lagsforsögn. Bæjarstjórn
samþykki samhljóða bæði þær
breytingar sem Skipulags- og bygg-
ingarráð gerði á greinargerð deili-
skipulagsins og skipulagsforsögn
ráðsins. Það er t.d. alveg ljóst að
ráðið og bæjarstjórn samþykkir
ekki að svæði takmarkaðrar ábyrgð-
ar eins og það er nú verði að þynn-
ingarsvæði fyrir álverið ef af stæk-
kun þess verður. Það er einfaldlega
ekki hægt eins og lögum og reglu-
gerðum er háttað í dag enda er nú
þegar íbúabyggð innan þess svæðis.
Með því að heimila Alcan að aug-
lýsa deiliskipulagið er Skipulags-
og byggingarráð Hafnarfjarðar og
bæjarstjórn að sinna skyldu sinni
þ.e. að heimila Alcan að kynna
áform sín og upplýsa bæjarbúa um
áform þeirra. Í þeirri heimild felst
engin samþykkt á framkvæmdinni
og heldur ekki afstaða einstakra
nefndarmanna eða bæjarstjórnar-
manna til stækkunarinnar. Þetta
kemur greinilega fram í fyrirvörum
við deiliskipulagstillöguna. Ein-
stakir bæjarfulltrúar eða nefndar-
menn geta hugsanlega verið búnir
að gera upp hug sinn um hvort leyfa
eigi stækkun álversins eða ekki en
fyrrgreind samþykkt felur ekki þá
afstöðu í sér.
Mengun og mengunarvarnir
Það er alveg ljós að það er fjöldi
fólks í Hafnarfirði sem mun aldrei
samþykkja að álverið verði stækkað
ef ekki verða notaðar bestu meng-
unarvarnir, þar með talið að álverið
noti t.d. vothreinsun til að draga sér-
staklega úr breinnisteinsmengun.
Athuga ber að vothreinsun er viðbót
við þurrhreinsun. Tillögur í mats-
skýrslu gera ráð fyrir að losun á
brennistein verði, ca. 14.5-18 kg pr.
tonn, eða ca. 6500 - 8000 tonn á ári
sem fara út í andrúmsloftið, um 20
tonn á dag(þetta getur hugsanlega
orðið lægra, 14.4 kg/t kynnt í mati,
með minna brennisteinsinnihaldi í
rafskautum ef það fæst á markaði
og ef gerð er krafa um það í starfs-
leyfi og með minni olíunotkun).
Þessi losun er óásættanlegt fyrir
íbúa í Hafnarfirði og á Álftanesi og
aðra Íslendinga. Þetta er einnig óá-
sættanlegt fyrir aðra atvinnustarf-
semi á iðnaðarsvæði umhverfis
álverið. Þetta er sérstaklega óá-
sættanlegt fyrir íbúa næst álverinu
og fyrir framtíðar íbúabyggð. Þetta
er einnig óásættanlegt vegna loft-
mengunar á hnattræna vísu. Í ljósi
byggðaþróunar kemur ekki til
greina að mínu mati annað en að
Alcan aðlagi sig að nútíma kröfum
almennings um mengunarvarnir
ætli það að stækka álverið.
Í starfsleyfi fyrir álverið í Reyðar-
firði er gert ráð fyrir losun á brenni-
steini upp á 12 kg. pr. tonn af fram-
leiddu áli. Norsk Hydro forveri
Alcoa í Reyðarfirði gerði ráð fyrir
vothreinsun með losun á brenni-
steini upp á ca. 2 kg. pr. tonn. Það
sjá það allir að ef það væri vot-
hreinsun í Straumsvík mundi þetta
þýða verulega minnkun á losun
breinnisteins.
Vothreinsun mun
vissulega færa meng-
unina út í sjó að hluta en
þar er brennisteinn nán-
ast skaðlaus þar sem
hann verður að súlfati
og fólk þarf ekki að
anda honum að sér.
Huga þarf sérstaklega
að því að útrás fyrir frá-
rennsli fari nægjanlega
djúpt og langt frá landi og sé lögð
þar sem minnstur skaði verður. Vot-
hreinsun mun ekki hafa eins mikil
áhrif hlutfallslega á losun flúoríðs
en mun samt draga úr losun flestra
mengandi efna út í andrúmsloftið
svo sem brennisteins (verulega),
ryks og einnig flúoríðs og annarra
efna, einnig krabbameinsvaldandi
efna, sjá töflu hér að neðan. Það að
íbúar í Hafnarfirði þurfi ekki að
anda að sér meiri mengunarefnum
en nauðsynlegt er er það sem málið
snýst um. Það er það sem Alcan á
að hugsa um þegar það fjallar um
þetta mál út frá mengunarforsend-
um svo ekki sé talað um gróð-
urhúsavandamál og lofmengun í
heiminum almennt.
Taflan hér að neðan sýnir losun
nokkurra efna frá stækkuðu álveri
annars vegar þegar notuð er vot-
hreinsun að viðbættri þurrhreinsun
og þegar einvörðungu er notuð væri
þurrhreinsun. Taflan sýnir einnig
hver losunin væri vegna stækkaðs
álvers ef aðeins næst sami árangur
með mengunarvörnum og hingað til
hefur náðst. Taflan sýnir greinilega
að vothreinsun dregur verulega úr
mengun út í andrúsmloftið.
Ákvörðunarferli - mat á umhverf-
isáhrifum, skipulag, starfsleyfi -
lýðræðislegar kosningar
Það er óskiljanlegt að í hvert
skipti sem talsmenn álversins koma
fram opinberlega þá benda þeir á að
fram hafi farið mat á umhverfis-
áhrifum og þar með hafi fengist nið-
urstaða. Á þeim tíma sem matið fór
fram stóð Hafnarfjarðarbær sig ekki
nógu vel í að gera almennilegar
athugasemdir við matsskýrsluna
auk þess sem ýmsar forsendur eru
sífellt að breytast. Úrskurður í mati
á umhverfisáhrifum er hins vegar
enginn endanlegur dómur í þessu
máli og Hafnarfjarðarbær er ekki
skyldugur til að fara í einu og öllu
eftir honum. Hafnarfjarðarbær hef-
ur skipulagsvald í sínu landi og er
einnig sá aðili sem veitir fram-
kvæmdaleyfi/byggingarleyfi og
getur sett þau skilyrði sem eiga við
hverju sinni. Þetta eru sjáfstæð ferli
sem og veiting starfsleyfis sem
Hafnarfjarðarbær getur einnig haft
áhrif á. Til dæmis getur bærinn sett
kröfur um að vilji álverið stækka þá
verði það að hafa mengunarvarnir
sem gera það að verkum að það rýri
ekki möguleika á íbúabyggð eða
annari atvinnustarfsemi sem bærinn
telur ákjósanlegt að bjóða upp á í
framtíðinni. Hafnarfjarðarbær getur
einnig hafnað stækkun álversins
kjósi hann það.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar getur
látið fara fram kosningu um álverið
kjósi hún það. Til dæmis er hægt að
spyrja bæjarbúa um hvort þeir sam-
þykkja fulla stækkun og/eða minni
stækkun og þá með mun betri
mengunarvörnum en hingað til
hefur verið talað um eða að spyrja
um hvort alfarið eigi að hafna
stækkun álversins.
Fyrirtækið Alcan stjórnar ekki
Hafnarfjarðarbæ og er vægast sagt
einkennilegt að talsmenn fyrir-
tækisins komi fram í sjónvarpi og
efist um að bærinn geti látið fara
fram kosningu/skoðanakönnun um
álverið. Bæjarstjórn Hafnarfjarðar
sem er kosin af bæjarbúum, og hef-
ur umboð frá þeim, getur leitað eftir
áliti hverra þeirra aðila sem hún kýs
þ.m.t. bæjarbúa til að aðstoða sig
við að taka ákvörðun um hvaða
málefni sem er.
Heildaráhrif
Ég hef ekki farið hér inn á heild-
aráhrif vegna stækkunar álversins
vegna bygginga svo sem vegna
sjónmengunar, lagningu nýrra vega,
landrýmis o.s.frv. Ég hef heldur
ekki farið inn á áhrif vegna ýmissa
annarra mengunarefna eins og PAH
efna (hluti þeirra er krabbameins-
valdandi), ryks, kerbrota (11500
tonn á ári og innihalda þau meng-
andi efni), gróðurhúsalofttegunda,
hljóðmengunar o.s.frv. Ég hef held-
ur ekki farið inn á lagningu nýrra
háspennulína og þau áhrif sem það
veldur né þau áhrif sem verða
vegna orkuöflunar sem er eins og
allir vita ekki sama hvernig staðið er
að og getur Hafnarfjarðarbær ekki
einangrað sig frá þeirri umræðu.
Hér hefur heldur ekki verið fjall-
að um þær tekjur sem bærinn fær og
fær ekki. Ég hef heldur ekki fjallað
hér um hvort stækkun álversins sé
yfirleitt þjóðhagslega hagkvæmt en
á því málí eru margar neikvæðar
sem jákvæðar hliðar. Ég erhér
fyrst og fremst að fjalla um þetta
mál í því samhengi að íbúarbæj-
arins eiga rétt á að búa við heil-
næmt andrúmsloft.460 þúsund
tonna álver mun auka mengun
verulega alveg sama þó talsmenn
álversins beri málið þannig á borð
fyrir almenning að þeir muni
standast þessi og hin umhverfis-
mörk. Það er nefnilega þannig að
þeir gefa sér þá forsendu að svæði
takmarkaðrar ábyrgðar verði þynn-
ingarsvæði álversins en það er ekki
ásættanlegt. Mengunarefni munu
aukast um ca. 150% frá því sem
nú er.
Það þarf að endurskoða alla
samninga sem hafa verið gerðir
vegna álversins í Straumsvík þ.m.t.
það sem varðar svæði takmarkaðrar
ábyrgðar. Álver Alcan á að bera
ábyrgð alveg eins og hvert annað
fyrirtæki.
Vissulega snýst þetta mál líka um
atvinnu og gera allir sér grein fyrir
því. En atvinnuástand er mjög gott í
dag auk þess sem það getur vel
verið að álverið muni hreinlega fæla
frá ýmsar tegundir af atvinnustarf-
semi. Það er því rétt hjá umhverfis-
nefnd Hafnarfjarðar að benda á að
svona stórt álver inni í „miðjum“
bæ með öllum þeim afleiðingum
sem það veldur getur haft verulega
neikvæð áhrif.
Á að stækka álverið ?
Forsvarsmenn Alcan hafa ekki
gefið út neinar endanlegar yfirlýs-
ingar um að fyrirtækið ætli að
stækka álverið. Í ljósi þess er mjög
óeðlilegt að setja Hafnarfjarðarbæ í
þá stöðu að taka afstöðu til einhvers
sem kannski verður aldrei af og
binda þar með bæinn á ýmsa lundu.
Álverið þarf að endurnýja starfs-
leyfi sitt á þessu ári. Það er ekkert
því til fyrirstöðu að það sé gert. Það
hefur hins vegar komið fram á
fundum með fulltrúum álversins að
þeir vilja fá starfsleyfi fyrir 460 þús-
und tonna framleiðslu þegar að
starfsleyfið verður endurnýjað. Ég
vil hér taka fram að það er að mínu
mati ekki eðlilegt og sjálfgefið að
fyrirtæki geti fengið starfsleyfi fyrir
framleiðslumagn sem ekki er búið
að taka ákvörðun um hvorki frá
hendi fyrirtækisins sjálfs né heimila
af öðrum yfirvöldum. Úrskurðurí
mati á umhverfisáhrifum erekki
slík heimild.
Ég vil að lokum taka skýrt fram,
til að það sé enginn misskilningur á
ferðinni, að það er ekki búið að
staðfesta deiliskipulag né veita nein
leyfi fyrir stækkun álversins í
Straumsvík. Íbúar Hafnarfjarðar
eiga eftir að fá tækifæri til að segja
sitt um þetta mál bæði nú á aug-
lýsingatíma deiliskipulagsins og
þegar og ef það kemur að öðrum
leyfisveitingum. Ég hvet því alla
bæjarbúa til að senda inn athuga-
semdirvið deiliskipulagið hafi
þeireinhverjar. Ég hvet sérstak-
lega þá sem búa næst álverinu til
að segja skoðun sína á þessu máli.
Fyrst þegar þetta mál hefur fengið
lýðræðislega meðferð verður hægt
að taka endanlegar ákvarðanir. Ég
hef enga trú á öðru en að bæði
meirihluti og minnihluti bæjar-
stjórnar Hafnarfjarðar muni styðja
það að þetta máli fái bæði lýðræðis-
lega meðferð og rétta meðferð svo
ekki komi til óþarfa átaka.
Höfundur situr í Skipulags- og
byggingarráði Hafnarfjarðar
fyrir hönd Samfylkingarinnar.
Stækkun álversins í Straumsvík Dragbítur fyrir hafnfirskt samfélag eða kostur?
Efni/losun
Brennisteinn
Heildarflúor**
Ryk
Vot- og þurrhreinsun
ca. 975 - 1.200 tonn* / ár
9,2-92 tonn / ár
46-138 tonn / ár
Þurrhreinsun
ca, 6.500 - 8.000 tonn / ár
23 -138 tonn / ár
92-230 tonn / ár
Meðaltal ‘98-’01***
6565 tonn / ár
318 tonn / ár
391 tonn / ár
* Miðað er við 85 % hreinsun á brennistein. ** Heildarflúor er loftkendur flúor + flúor í ryki.
*** Meðaltalslosun frá núverandi verksmiðju árin 1998-2001 framreiknað fyrir stækkað álver.
Reiknað út fra töflu 20.6 í matsskýrslu. Reiknað út fra tölu 22.1 í matsskýrslu.
Trausti Baldursson
Mörk svæðis
takmarkaðrar ábyrgðar
Eldri mörk
þynningarsvæðis