Fjarðarpósturinn - 05.01.2006, Side 7
www.fjardarposturinn.is 5 Fimmtudagur 5. janúar 2006
©
F
ja
rð
a
rp
ó
stu
rin
n
/H
ö
n
n
u
n
a
rh
ú
sið
–
0
6
0
1
Helstu forgangsverkefni ársins
2006
• Hraunvallaskóli, nýr þriggja hliðstæðu
grunnskóli, fjögurra deilda leikskóli og
íþróttasalur, allt í einni byggingu. Fyrsti
áfangi skólans verður tekinn í notkun í
haust. Fullbyggður verður skólinn
stærsti skóli bæjarins.
• Framkvæmdir við stækkun Flensborg-
arskólans eru í fullum gangi og verður
að fullu lokið í haust fyrir nýtt skólaár.
Samhliða verða gerðar breytingar á
eldri húsum skólans. Gjörbylting í allri
aðstöðu fyrir nemendur og kennara.
• Nýr íþróttasalur og kennsluaðstaða við
Setbergsskóla verður tekin í notkun nú í
janúar.
• Leikskólinn Hjalli verður stækkaður um
2 deildir og jafnframt verður stjórnunar-
álma skólans stækkuð. Tilbúið í haust.
• Stækkun á aðstöðu í Leikskólanum
Kató verður tekin í notkun nú í byrjun
árs.
• Hönnun og framkvæmdir hefjast við
nýjan leikskóla og fyrstu bekki grunn-
skóla í tengslum við um 200 nýjar
námsmannaíbúðirnar á Völlum. Leik-
skólinn tekinn í notkun á næsta ári
• Framkvæmdir hefjast við byggingu
nýrrar Sundmiðstöðvar á Völlum, þar
sem meðal annars á að vera 50 m inni-
laug. Þetta er samstarfsverkefni með
Sundfélaginu og Firði, íþróttafélagi fatl-
aðra. Sundmiðstöðin verður um 5.500
fermetrar að stærð. Sundlaugin verði
tekin í notkun undir lok árs 2007. Verkið
unnið í alútboði og lokið á næsta ári.
• Framkvæmdir hefjast við byggingu
félags- og búningsaðstöðu, frjálsíþrótta-
hús og áhorfendastúku í Kaplakrika í
samvinnu við FH. Gert er ráð fyrir að
mannvirkin verði fullbyggð á árunum
2007 og 2008.
• Farið verður af stað með verklegar
framkvæmdir við endurbyggingu og
lagfæringar Bungalowsins við Vestur-
götu sem móttöku- gesta- og safna-
húss. Framkvæmdum verður lokið að
fullu fyrir 100 ára kaupstaðarafmæli
bæjarins 2008.
• Á árinu 2006 verður haldið áfram upp-
byggingu gervigrassæfingavalla fyrir
börn og unglinga í samstarfi við KSÍ.
Búið er að taka þrjá slíka í notkun, en
stefnt er að því að koma upp völlum við
alla grunnskóla bæjarins.
• Dagvist fyrir minnissjúka í Drafnarhús-
inu sem er rými er fyrir 20 einstaklinga
verður tekin í notkun í byrjun þess árs.
Þörfin er afar brýn en Hafnarfjarðarbær
kostar endurbætur á húsnæði og leigu,
en rekstur er að öðru leyti í höndum
heilbrigðisráðuneytis.
• Ný heilsugæslustöð í verslunarmiðstöð-
inni Firði opnar í byrjun ársins. Viðræð-
ur eru í gangi við heilbrigðisráðuneyti
um næstu áfanga varðandi heilsugæslu
og hjúkrunarheimili á Völlum þar sem
fráteknar lóðir eru til staðar.
• Fráveituframkvæmdum verður haldið
áfram af fullum krafti og lokið við lagn-
ingu aðalæðar og uppbyggingu hreinsi-
og dælustöðvar og útrás við Hraunavík
og jafnframt við nýja dælustöð við
Norðurgarð. Stóráfanga þessa verkefn-
is er nýlega lokið þegar útrás var opnuð
út fyrir nýju fyllingarnar í Suðurhöfninni.
• Undirbúningi að útfærslu og fram-
kvæmdum við nýja stofnæð Vatnsveit-
unnar úr Kaldarárbotnum eða Straums-
seli verður framhaldið en gert er ráð
fyrir að heildarkostnaður við það verk-
efni verði um 500 m.kr. á næstu 5 ár-
um.
• Gatnagerðarframkvæmdir verða fyrir
um 2 milljarða á árinu 2006 í nýjum
íbúðasvæðum á Völlum og Áslandi og
atvinnusvæðum á Völlum og Hellna-
hrauni. Þar hefur verið úthlutað lóðum
fyrir hátt í 1000 nýjar íbúðir.
• Ásókn í lóðir undir atvinnuhúsnæði
hefur aldrei verið jafnmikil. Bæjastjórn
úthlutaði skömmu fyrir jól lóðum á
nýjum atvinnusvæðum samtals um 270
þús. ferm. Það landrými samsvarar um
38 stórum knattspyrnuvöllum.
• Haldið verður áfram uppbyggingu við
þéttingu byggðar á miðbæjarsvæðinu.
Þar verða stærstu verkefnin á Norður-
bakka þar sem framkvæmdir eru
komnar af stað og eins á olíutanka-
svæðinu á Hvaleyrarholti þar sem fram-
kvæmdir munu hefjast snemma á
komandi ári. Á þessum tveimur svæð-
um verða um 800 nýjar íbúðir.
• Lokið verður framkvæmdum við bygg-
ingu Hvaleyrarbakka í nýju Suðurhöfn-
inni.
Áhersla á skóla og
æskulýðsmál
Sú mikla vinna sem starfsmenn
og stjórnendur bæjarfélagsins
hafa lagt á sig í því að mæta
óskum og eftirspurn varðandi
uppbyggingu og framkvæmdir í
bæjarfélaginu hefur skilað ótví-
ræðum árangri en þessi mikla
drift í bænum mun treysta og efla
allt mannlíf og samfélag í
Hafnarfirði í komandi framtíð.
Aukið svigrúm sem hefur skap-
ast til frekari þjónustu við íbúa
vegna bættrar afkomu bæjar-
félagsins hefur verið og verður
með aukinni viðbót á árinu 2006,
sérstaklega varið til þróunar og
innra starfs í grunn- og leik-
skólum og til að auka enn frekar
við æskulýðs- og íþróttamál með
hækkun aldursmarka í 12 ár við
niðurgreiðslu æfinga- og félags-
gjalda. Hér er um ræða viðbót-
arframlög hátt í 200 milljónir
króna.
Það sem skiptir þó ekki
minnstu er að samhliða þessari
bættu þjónustu við íbúa Hafnar-
fjarðar og öflugu sókn og upp-
byggingu á öllum sviðum hefur
skuldasöfnun sveitarfélagsins
verið stöðvuð. Bætt rekstraraf-
koma og hagstæðar aðstæður í
gengismálum hafa verið nýttar til
að greiða verulega niður skulda-
byrði sveitarfélagsins með skipu-
legri og markvissri skulda-
stýringu og létta þannig verulega
undir rekstri sveitarfélagsins á
komandi árum. Þetta er árangur
sem svo sannarlega er ástæða til
að fagna sérstaklega og allir
bæjarbúar geta lýst ánægju sinni
með.
Bjart framundan í Hafnarfirði
Hafnarfjörður er eftirsóttur og
áhugaverður búsetustaður í huga
allra landsmanna. Það skiptir afar
miklu því við daglega stjórn og
rekstur bæjarfélagsins er horft til
þess að veita góða og metnaðar-
fulla þjónustu þar sem við erum í
öflugri samkeppni við okkar
nágrannabæi og einnig okkar ná-
grannalönd um að fá til bæjarins
bæði nýja íbúa og ný atvinnu-
tækifæri.
Við höfum staðið okkur vel í
þeirri samkeppni og það er full
ástæða til að þakka af heilum hug
öllum þeim starfsmönnum Hafn-
arfjarðarbæjar og öðrum íbúum
sem hafa lagt sitt af mörkum við
að skapa og byggja upp þessi
sóknarfæri og þann árangur sem
náðst hefur. Það er bjart fram-
undan hér í Hafnarfirði í vaxandi
og kröftugu bæjarfélagi.
Ég færi bæjarbúum öllum mín-
ar bestu óskir um gleðilegt nýtt ár
og þakka jafnframt fyrir ánægju-
legt samstarf og samvinnu á liðn-
um árum. Megi nýtt ár verða
okkur öllum og bæjarfélaginu
okkar bæði farsælt og til framfara
á öllum sviðum.
Höfundur er bæjarstjóri.
Hafnarfjarðarbær er það sveit-
arfélag á Íslandi sem er nú í hvað
mestri sókn og hefur styrkt fjár-
hagslega stöðu sína með af-
gerandi hætti á síðustu
árum. Niðurstöður árs-
reikninga nýliðinna ára
sýna með skýrum hætti
að það meginmarkið
sem stefnt hefur verið
að við rekstur og fjár-
málstjórn sveitarfélag-
ins á þessu kjörtímabili
hefur náðst í öllum
lykilatriðum. Áfram
verður haldið á sömu
braut framfara og framkvæmda á
nýju ári.
Stórframkvæmdir í skólamál-
um og aukin og bætt þjónusta í
grunnskólunum hafa verið helstu
framkvæmdaverkefni Hafnar-
fjarðarbæjar síðustu
árin og sú verður einn-
ig raunin á árinu 2006.
Heildarframlag Hafn-
arfjarðarbæjar til ný-
framkvæmda Eigna-
sjóðs Hafnarfjarðar í
leik-, grunn- og fram-
haldsskólum verður
samtals um 1.045
milljónir króna en
heildarfjárfestingar
nettó með gatnagerð á nýjum
íbúða- og atvinnusvæðum verða
tæplega 2,8 milljarðar kr.
6 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 5. janúar 2006
Esso Lækjargötu
– Laus störf –
Olíufélagið ehf. leitar að þjónustulipru
og samviskusömu framtíðarfólki til
starfa á Esso í Lækjargötu.
Fólk á besta aldri er hvatt til að
sækja um.
Eftirfarandi störf eru í boði:
• Almenn afgreiðsla
- úti og inni
Nánari upplýsingar veitir
starfsþróunardeild Olíufélagsins í
síma 560 3300.
Einnig er hægt að sækja um á
www.esso.is
©
F
ja
rð
a
rp
ó
st
u
ri
n
n
/H
ö
n
n
u
n
a
rh
ú
si
ð
–
0
6
0
1
Færum bókhald fyrir aðila í atvinnurekstri
og lögaðila. Sjáum um uppgjör og skattskil.
Vönduð vinna og persónuleg þjónusta.
Reykjavíkurvegi 60, s. 565-2189, 863-2275
Framkvæmdir og framfarir á nýju ári
Lúðvík Geirsson
Fjórir hegrar virðast hafa
haldið til í skurðum við Urriða-
kotsvatn í vetur. Þeir voru á
flögri rétt fyrir áramót þegar
Árni Áskelsson var þar á ferð.
Hegri er ekki mjög algengur
fugl hér en hefur oftar sést á
sumrin.
Allar upplýsingar um hegrana
eru vel þegnar.
Hegrar við
Urriðakotsvatn
L
jó
s
m
.:
F
ja
rð
a
rp
ó
s
tu
ri
n
n
-
Á
rn
i
Á
s
k
e
ls
s
o
n
Svipmynd úr
jólaþorpinu
L
jó
s
m
.:
G
u
ð
n
i
G
ís
la
s
o
n
8www.fjardarposturinn.isFimmtudagur 5. janúar 2006
Ýsa var það heillin
Fjölmenni var á íþróttahátíð
Hafnarfjarðar í Íþróttahúsinu við
Strandgötu 28. desember sl. þar
sem Auðun Helgason knatt-
spyrnumaður úr FH var krýndur
Íþróttamaður Hafnarfjarðar.
Auðun varð m.a. Íslandsmeistari
2005 með M.fl. karla FH í
knattspyrnu, fastur liðsmaður í
landsliði Íslands, kjörinn besti
leikmaður Landsbankadeildar-
innar í ár af Morgunnblaðinu og
valinn besti varnarmaður í efstu
deild og í lið ársins af KSÍ. Með
framgöngu sinni og ástundun er
Auðun mikil og góð fyrirmynd
ungra íþróttamanna.
Þrettán afreksmenn fengu sér-
staka viðurkenningu fyrir árang-
ur og frammistöðu í sínum
íþróttagreinum á þessu ári:
Björn Þorleifsson, Björk
- tae kwon do.
Þórey Edda Elísdóttir, FH
- frjálsar íþróttir.
Auðun Helgason, FH
- knattspyrna.
Ragnar Ingi Sigurðsson, FH
- skylmingar.
Ólöf M. Jónsdóttir, Keilir - golf.
Birkir Í. Guðmundsson, Haukar
- handknattleikur.
Hanna G. Stefánsdóttir, Haukar
- handknattleikur.
Helena Sverrisdóttir, Haukar
- körfuknattleikur.
Hafsteinn Æ. Geirsson, Þytur
- siglingar.
Örn Arnarson, SH - sund.
Andri Jónsson, BH - tennis.
Atli Guðmundsson, Sörli
- hestaíþróttir.
Sigurþór Jóhannesson, SÍH
- skotfimi.
Á íþróttahátíðinni voru veittar
viðurkenningar til 565 íþrótta-
manna, allra þeirra sem urðu
Íslandsmeistarar (440) og bikar-
meistarar (120) með félögum
sínum auk sérstakra viður-
kenninga fyrir norðurlanda-
meistaratitla (5).
Þá voru einnig veittir styrkir í
viðurkenningarskyni frá Hafnar-
fjarðarbæ til þeirra íþróttafélaga
sem unnið hafa Íslands- eða
bikarmeistaratitill í efstu flokk-
um á árinu, alls níu hópa og nam
styrkupphæðin 300 þús. kr. fyrir
hvern titil. Þá var úthlutað til
íþróttafélaganna samkvæmt
samningi Hafnarfjarðarbæjar,
Alcan og ÍBH vegna íþróttastarfs
16 ára og yngri með tilliti til
menntunarþáttar þjálfara og
námskrárgerðar. Styrkupphæðin
samkvæmt samkomulaginu var
3,6 millj. kr.
Á hátíðinni afhenti formaður
ÍBH, ÍSÍ bikarinn sem er veittur
fyrir framúrskarandi íþróttastarf
og að þessu sinni varð Fim-
leikafélagið Björk fyrir valinu en
gríðarleg sprenging hefur orðið í
starfsemi félagsins síðustu ár.
Auðun Helgason
íþróttamaður Hafnarfjarðar
Afreksmennirnir þrettán sem fengu viðurkenningu fyrir frammistöðu í sínum íþróttagreinum á þessu ári
L
jó
s
m
.: K
ris
tja
n
a
Þ
ó
rd
ís
Á
s
g
e
irs
d
ó
ttir
L
jó
s
m
.: K
ris
tja
n
a
Þ
ó
rd
ís
Á
s
g
e
irs
d
ó
ttir
Ólafur Haukur Magnússon,
fomaður Bjarkar og Ellert
Schram forseti ÍSÍ.
Ungir dansarar úr Dans-
íþróttafélagi Hafnarfjarðar
sýndu dans.
L
jó
s
m
.: K
ris
tja
n
a
Þ
ó
rd
ís
Á
s
g
e
irs
d
ó
ttir
Virkuðu
forvarnirnar?
Róleg áramót
Óhætt er að segja að
áramótin hafa verið róleg í
umdæmi lögreglunnar á Álfta-
nesi, í Garðabæ og Hafnarfirði.
Fjöldi fóks kom að brennum,
sem haldnar voru í öllum
sveitarfélögunum og fór þar
allt fram slysalaust og með
friði.
Einnig var rólegt eftir að
nýja árið var gengið í garð. Fá
útköll bárust lögreglu vegna
ölvunar, en tveir ökumenn
voru stöðvaðir vegna gruns um
ölvun við akstur
Bjuggu til
stensla Ágæt þátttaka var á
námskeiði í stenslagerð í
Gamla bókasafninu í síðustu
viku. Fosti „Jack“ Gunnarsson
kenndi og var árangurinn
framar væntingum.
Þrír þátttakendanna við verk
hópsins.
www.fjardarposturinn.is 7Fimmtudagur 5. janúar 2006
Hver og einn fær leiðsögn í tækjunum
og sérsniðna æfingaáætlun.
Við bjóðum upp á ókeypis
prufutíma sem fer fram
undir leiðsögn þjálfara.
Panta þarf tímann.
16 ára aldurstakmark.
Nautilus heilsurækt • Suðurbæjarlaug Hafnarfirði • sími 565 3080
Árskort í líkamsrækt
og sund á tilboðsverði
aðeins 23.990 kr. fullt verð 29.990 kr.
Tilboðið gildir til 6. febrúar 2006
©
H
ö
n
n
u
n
a
rh
ú
si
ð
/F
P
–
0
6
0
1