Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 05.01.2006, Blaðsíða 12

Fjarðarpósturinn - 05.01.2006, Blaðsíða 12
12 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 5. janúar 2006 Við kunnum að meta eignina þína! Áfram Haukar! FJÖRÐUR Fjarðargötu 13-15 Móttaka lækna og hjúkrunarfræðinga Slysa- og bráðaþjónusta Opið kl. 8-16 virka daga, síðdegisvakt kl. 16-18 virka daga Sími: 540-9400 Heilsugæslan Fjörður Heimilislæknarnir Guðrún Gunnarsdóttir, Gunnsteinn Stefánsson og Vilhjálmur Ari Arason flytjast frá Heilsugæslunni Sólvangi. Skráðir skjólstæðingar þeirra munu flytjast sjálfkrafa yfir í nýju stöðina og fá þjónustu þar og þurfa því ekki að skrá sig sérstaklega. En óski þeir eftir að nýta sér þjónustu Heilsugæslunnar Sólvangi áfram býðst þeim að skrá sig þar. Við opnun tekur Guðrún Inga Benediktsdóttir heimilislæknir til starfa á Heilsugæslunni Firði. Auk þess munu heimilislæknarnir Jörundur Kristinsson og Benjamín Bjartmarsson taka til starfa á Heilsugæslunni Firði innan nokkurra mánaða. Íbúum með lögheimili á Álftanesi og í Hafnarfirði býðst að nýskrá sig á stöðina frá opnun hennar með því að fylla út eyðublað og afhenda í móttöku heilsugæslustöðvarinnar. Vinsamlega leitið til starfsfólks stöðvarinnar sé frekari upplýsinga þörf í síma 540-9400 Heimasíða www.hr.is Okkur er mikil ánægja að kynna fyrir íbúum Álftaness og Hafnafjarðar nýja heilsugæslustöð í miðbæ Hafnarfjarðar sem verður opnuð 9. janúar 2006. Opið hús verður laugardaginn 28. janúar 2006 kl. 11:00 - 14:00 VERIÐ VELKOMIN Hin nýja heilsugæslustöð mun hafa aðsetur á 3. og 4. hæð í norðurturni verslunarmiðstöðvarinnar Firði (rauða lyftan) og þar verður almenn læknis- og hjúkrunarþjónusta, síðdegisvakt, mæðravernd, ungbarnavernd, rannsóknarþjónusta, bólusetningar og einnig verður skólaheilsugæslu og heimahjúkrun sinnt. F.h. starfsfólks Heilsugæslunnar Firði Guðrún Gunnarsdóttir, Ingibjörg Ásgeirsdóttir, yfirlæknir hjúkrunarforstjóri Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins

x

Fjarðarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.