Fjarðarpósturinn - 05.01.2006, Qupperneq 10
10 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 5. janúar 2006
565 3066Auglýsingarsími:
Lítil stúdíóíbúð í miðbænum, 25 m²
til sölu, með eða án húsbúnaðar.
Uppl. í síma 551 1324.
2ja, 3ja eða fjögurra herbergja íbúð
óskast í 6 mánuði, mögul. á
framlengingu. Fyrirframgreiðsla.
Uppl. í s. 660 1060.
Hjón á besta aldri vantar 3ja - 4ra
herbergja íbúð sem fyrst, helst í
Hafnarfirði.
Reglusemi og góð umgengni
sjálfsögð. Meðmæli ef óskað er. Uppl.
í s. 565 5719, 824 7744.
Vegna flutnings er til sölu ritröð
Almenna bókafélagsins, Saga
mannkyns í 16 bindum, furuskápur
úr Rúmfatalagernum, mjög stór og
rúmgóður og Klik-Klak svefnsófi úr
línunni. Selt ódýrt. Uppl. í s. 555
1534 og 848 5034
Glæsilegt vel með farið
leðursófasett 3+1+1 til sölu.
Verð kr. 50.000,00. Upplýsingar í
síma 865 3809.
Barngóð manneskja með bíl
óskast til að sækja 3 ára dreng á
leikskóla og sinna í nokkra klst. í
senn 10-15 daga í mánuði + þrif 1
sinni í viku.
Einungis reyklaus aðili kemur til
greina. Upplýsingar í síma 866 7226
Gullúr fannst á göngustíg í
Norðubænum á
Gamlársdagsmorgunn.
Eigandi getur vitjað úrsins í síma 863
9982, Pétur.
Þú getur sent
smáauglýsingar á
a u g l y s i n g a r @ f j a r d a r p o s t u r i n n . i s
e ð a h r i n g t í s í m a 565 3066
A ð e i n s f y r i r e i n s t a k l i n g a , e k k i
r e k s t r a r a ð i l a . V e r ð a ð e i n s 5 0 0 k r .
Ta p a ð - f u n d i ð o g f æ s t g e f i n s : F R Í T T
Tapað - fundið
Barnagæsla
Til sölu
Íbúð óskast
Húsnæði í boði
Breiðband - Loftnet
Gervihnattaþjónusta og sala
Rafeindavirkjar.
Loftnet IJ ehf.
Sími 696 1991.
Eldsneytisverð
4. janúar 2006 í Hafnarfirði:
Sölustaður 95 okt. dísil
Atlantsolía 108,3 106,3
Esso, Rvk.vegi 109,7 107,8
Esso, Lækjargötu 109,7 107,8
Orkan, Óseyrarbraut 108,2 106,2
ÓB, Fjarðakaupum 108,2 106,2
ÓB, Melabraut 108,3 106,3
Skeljungur, Rvk.vegi 109,7 107,8
Öll verð miðast við sjálfsafgreiðslu og
eru fundin á vefsíðum olíufélaganna.
Baðvarsla
Íþróttahúsið í Kaplakrika vantar
kvenkyns starfsmann við baðvörslu og
þrif frá og með 9. janúar, í minnsta kosti
hálft ár eða lengur. Vaktavinna.
Nánari upplýsingar veittar
í síma 821 4494, Geir.
Mikil umræða hefur verið um
málefni aldraðra að undanförnu.
Nægir þar að vísa til áramóta-
ávarpa forsetans og forsætisráð-
herra. Viðfangsefnið
hefur jafnvel verið enn
áleitnara hér í Hafnar-
firði en víðast hvar
annars staðar, ekki síst
vegna þeirrar aðstöðu
sem ríkið býr öldruðum
á Sólvangi. Þar vinnur
starfsfólkið kraftaverk
á hverjum degi við
erfiðar aðstæður.
Ég er þeirrar skoðun-
ar að verkaskipting
ríkis og sveitarfélaga í þessum
málaflokki sé stærsti vandinn sem
við er að etja í málefnum aldr-
aðra. Hluti af þjónustunni við
þennan hóp er á hendi ríkisins,
svo sem heimahjúkrun og bygg-
ing og rekstur hjúkrunarheimila, á
meðan annað, svo sem félagsleg
heimaþjónusta, er á hendi sveitar-
félaga.
Ekki benda á mig!
Þetta er afleitt fyrirkomulag,
því það leiðir til þess að ríkið
heldur að sér höndum og ýtir mál-
unum yfir á sveitarfélögin, sem
streitast á móti því að taka að sér
verkefni sem heyra undir ríkis-
valdið - nema tryggt sé að því
fylgi tekjur til að standa undir
kostnaði. Þessi togstreita bitnar
síðan á þeim sem síst skyldi -
hinum aldraða.
„Bæjarstjórn Hafnarfjarðar
hefur ítrekað og einróma lýst yfir
vilja sínum til að taka þennan
málaflokk yfir, en heilbrigðis-
ráðuneytið ekki viljað ræða það.
Undanfarnar vikur hefur þó verið
í gangi uppbyggilegt starf í nefnd
sem ráðherra skipaði til að gera
tillögur um framtíðarfyrirkomu-
lag öldrunarmála í bænum. Í
henni eiga sæti fulltrúar ríkisins
og tveir fulltrúar bæjarins. Ég
treysti mér til að fullyrða að frá
þessum hópi munu koma ítar-
legar og góðar tillögur. Verði
þeim fylgt eftir, mun það þýða
gerbyltingu á stöðu eldri borgara
í Hafnarfirði á næstu árum.
Án þess að tillögurnar séu
fullmótaðar, er ljóst að þær munu
meðal annars fela í sér að auka
þurfi þjónustu inni á heimilum
aldraðra, bæði heimahjúkrun og
heimaþjónustu. Til að undirstrika
vilja og áform Samfylkingarinnar í
þá veru, fluttu bæjarfulltrúar
flokksins eftirfarandi tillögu á bæj-
arstjórnarfundi 20. desember sl.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar
samþykkir að hefja átak sem
miðar að því að gera öldruðum
kleift að halda heimili með reisn
eins lengi og kostur er og þeir
kjósa sjálfir. Þetta felur í sér að
auka þarf þá þjónustu sem veitt er
á heimilum viðkomandi.
Hryggstykkið í þeirri þjónustu
er það góða samstarf sem hefur
tekist milli heima-
þjónustu og heima-
hjúkrunar. Leitað verði
leiða til að auka það
enn frekar, með auk-
inni samþættingu.
Meðal þeirra þjón-
ustuþátta sem huga
þarf að til viðbótar við
hefðbundna heima-
þjónustu eru m.a. hirð-
ing lóða á sumrin og
snjómokstur á veturna.
Sérstaklega verði hugað að því
að rjúfa félagslega einangrun
aldraðra. Áhersla á að ná til
þeirra og fræða þá um þjónustu
og félagsstarf verði aukin og
hringi- og innlitsþjónusta verði
skipulögð í samvinnu heima-
þjónustu og heimahjúkrunar og
leitað samstarfs við félög eins og
Rauða Krossinn og trúfélög í því
sambandi.
Meta þarf þörf fyrir öryggis-
hnappa og leita leiða til að koma
þeim fyrir hjá sem flestum þeim
sem á þurfa að halda. Jafnframt
verði leitað leiða til að meta eigið
húsnæði aldraðra með tilliti til
breytinga sem hugsanlega þarf að
gera á íbúðum til að gera viðkom-
andi kleift að búa lengur í þeim.
Unnið verði að þessum verk-
efnum í samráði og samvinnu við
Heilbrigðis- og tryggingamála-
ráðuneytið og leitað eftir sam-
vinnu við fjármögnun verkefna.
Með aðgerðum á borð við það
sem hér er talið, má bæta lífsgæði
aldraðra og auka verulega mögu-
leika þeirra á sjálfstæðri búsetu.
Unnið verði að frekari útfærslu
þessa verkefnis í samráði við
aldraða, m.a. á fyrirhuguðu „öld-
ungaþingi“ og í framhaldinu í
„Öldungaráði“.“
Full samstaða var um af-
greiðslu tillögunnar í bæjarstjórn.
Fulltrúar minnihlutans fluttu
einnig tillögu um aukningu
heimaþjónustu, þannig að það er
breið samstaða um málið í
bæjarstjórn. Fjölskylduráði hefur
verið falið að vinna áfram að
framgangi málsins.
Ég vona að þó okkur finnist á
stundum ganga hægt, þá sé heldur
að þokast í áttina hér í Hafn-
arfirði. Það krefst þess auðvitað
að allir gangi í sömu átt og í takt.
Viðfangsefnið er hafið yfir
flokkadrætti og að því gefnu að
efndir fylgi fyrirheitum úr heil-
brigðisráðuneytinu um að
leggjast á árarnar, þá er bjartara
framundan.
Höfundur er bæjarfulltrúi og
formaður fjölskylduráðs.
Málefni aldraðra
loks á dagskrá?
Guðmundur Rúnar
ÁrnasonRÆSTING - RÆSTING
Bráðvantar skemmtilegan
og duglegan einstakling í
ræstingu tímabundið á
hjúkrunarheimilið Sólvang
í Hafnarfirði.
Sveigjanlegur vinnutími.
Vinsamlegast hafið samband og fáið
nánari upplýsingar.
Erla M. Helgadóttir
hjúkrunarframkv.stjóri
sími 590 6500 og erla@solvangur.is
Eyðir þú meira um jólin en þú ætlaðir þér?
Já 44%
Nei 49%
Ég veit það ekki 7%
Taktu þátt á www.fjardarposturinn.is
Heilsunudd
Bæjarhrauni 2, 2h.
Bjóðum upp á heilsunudd og höfuðbeina- og
spjaldhryggsjöfnun
Upplýsingar og pantanir í símum
699 0858 og 692 0858
Erlendur M. Magnússon, heilsunuddari
Lilja Petra Ásgeirsdóttir, hbs-jafnari