Fjarðarpósturinn - 29.06.2006, Blaðsíða 6
6 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 29. júní 2006
Cranionudd
Heilsunudd og cranio
Bæjarhraun 2, 2. hæð
Upplýsingar og pantanir í símum
699 0858 og 692 0858
Erlendur M. Magnússon, heilsunuddari
Lilja Petra Ásgeirsdóttir, hbs-jafnari
Vantar íbúð á leigu.
Skilvís, reglusöm og reyklaus.
Upplýsingar í s. 692 7279.
Til sölu vegna flutninga:
leðursófasett 3+2+1 frá GP á 45 þús,
2m dökkt borðstofuborð 20 þús,
skiptikommóða 5 þús, barnarúm o.fl.
Uppl. í s. 663 0089 e. kl.18.
Grænir strigaskór með hvítum
doppum voru teknir úr skó-
geymslunni í Suðurbæjarlauginni.
Þetta eru uppáhaldskór 9 ára stúlku
og þeirra er sárt saknað. Skórnir eru
nr. 32 eða 33. Skónum má skila í
Suðurbæjarlaugina eða láta vita af
þeim í s. 693 4034.
Lítil stúlka tapaði taumúsinni
Diddalínu, uppáhaldsleikfanginu sínu
í Hellisgerði á sunnudag. Diddilína er
í bleikum kjól og bleikum ballettskóm.
Finnandi vins. láti vita í s. 565 1078.
Fyrir viku fannst vídeo upptökuvél
liggjandi Hamraberginu. Þeir sem
kannast við vélina eða geta bent á
eiganda hennar, hafið samband við
Má í síma 660 8950.
Svartur og hvítur kettlingur villtist
að heiman af Hringbraut s.l.
þriðjudag, er inniköttur og var ekki
með ólina sína á sér. Ef einhver hefur
orðið var við hann vinsamlegast hafið
samband i síma 822 8429.
Þú getur sent
smáauglýsingar á:
a u g l y s i n g a r @ f j a r d a r p o s t u r i n n . i s
e ð a h r i n g t í s í m a 565 3066
A ð e i n s f y r i r e i n s t a k l i n g a , e k k i
r e k s t r a r a ð i l a . V e r ð a ð e i n s 5 0 0 k r .
Ta p a ð - f u n d i ð o g f æ s t g e f i n s : F R Í T T
Tapað - fundið
Húsnæði óskast
Húsnæði óskast
Breiðband - Loftnet
Gervihnattaþjónusta og sala
Rafeindavirkjar.
Loftnet IJ ehf.
Sími 696 1991.
HEILSA Í FYRIRRÚMI
innst sem yst – Finndu muninn!
H E R B A L I F E
Halla - 895 7414
sjálfstæður dreifingaraðili
www.arangur.is/halla
Á Hafnarfjarðarbær að leggja áherslu á að endurbæta Hellisgerði?
Já 90%
Nei 3%
Taktu þátt á www.fjardarposturinn.is
Þann 19. júní sl. hittust í Hell-
isgerði á milli 30 og 40 konur til
að stofna Hjólreiðafélag hafn-
firskra kvenna. í undirbúnings-
hópi voru Eiríksína Ásgrímsdótt-
ir, Helga Ragnheiður Stefáns-
dóttir og Valgerður Halldórs-
dóttir.
Stofnhátíð var haldin í blíð-
skaparveðri á pallinum í Hellis-
gerði og síðan var haldið af stað
í hjólaferð um bæinn. Ólafía
Hrönn leikkona var á staðnum sá
um upphitun og frumflutti sér-
stakt lag tileinkað félaginu við
gítarundirleik og söng við-
staddra.
Margar voru mættar í bleiku í
tilefni 19. júní dagsins. Fram-
haldið er frjáls mæting á mánu-
dagskvöldum kl. 20 við Hafnar-
borg þaðan sem farið er í létta
hjólaferð.
Gaman, útivera og hreyfing
kvenna í Hafnarfirði er eitt af
markmiðunum en í stjórn voru
kosnar formaður Eiríksína Ás-
grímsdóttir, formaður, Helga
Ragnheiður Stefánsdóttir, vara-
formaður Valgerður Halldórs-
dóttir, ritari og Ágústa var kjörin
gjaldkeri og Steinunn Guðna-
dóttir meðstjórnandi.
Hjólreiðafélag
hafnfirskra kvenna
Hittast við Hafnarborg á mánudögum kl. 20
Margsinnis hafa myndir verið
birtar af bílum uppi á gang-
stéttum, inni á túnum eða í stæð-
um fatlaðra. Finnst mörgum með
ólíkindum hversu illa gengur að
venja Hafnfirðinga af slíkum
ósið en svo virðist sem lög-
gæslan sinni því með hangandi
hendi eða takmörkuðu afli að
sekta þá sem svo augljóslega
brjóta lögin og verulega á rétti
annarra bæjarbúa og gesta.
Þegar menn fá að komst upp
með svona augljós brot svo allir
sjái til spyrja sumir sig hvort þá
hjaðni virðing fyrir öðrum
lögum og reglum í okkar sam-
félagi.
Eru engin takmörk?
Virðingaleysið fyrir lögum og reglum með ólíkindum
Þessum dugði ekki eitt fatlað stæði - hann þurfti tvö!
Sjö FH-ingar tóku þátt í
Evrópubikarkeppni landsliða
sem fór fram í Banská Bysrica í
Slóvakíu um þar síðustu helgi og
stóðu sig mjög vel.
FH-ingar fengu fern verðlaun
af þeim fimm sem Ísland fékk.
Silja Úlfarsdóttir sigraði í
400 m grindahlaupi á 57,98 sek,
hún varð önnur í 200 m hlaupi og
jafnaði sinn besta árangur 24,02
sek, varð sjötta í 100 m grinda-
hlaupi á 14,32 sek og hljóp í
báðum boðhlaupunum og urðu
sveitirnar í 5. og 6. sæti.
Björn Margeirsson varð
annar í 1500 m hlaupi á 3.50,04
mín og fjórði í 800 m hlaupi á
1.52,20 mín. þá hljóp hann í
4x400 m boðhlaupi og varð
sveitin í 6. sæti.
Björgvin Víkingsson varð
þriðji í 400 m grindahlaupi á
53,18 sek. Þá hljóp hann í 4x400
m boðhlaupi og varð sveitin í 6.
sæti.
Bergur Ingi Pétursson varð
fjórði í sleggjukasti og kastaði
hann 61,23 m.
Ragnheiður Anna Þórsdóttir
varð fimmta í kringlukasti og
kastaði 43,76 m.
Jónas Hlynur Hallgrímsson
varð sjötti í spjótkasti og bætti
sinn besta árangur og kastaði
66,61 m.
Þá var Óli Tómas Freysson í
4x100 m boðhlaupssveit Íslands
sem varð í sjötta sæti. Óli Tómas
keppti í aukahlaupi á laugard-
eginum og hljóp á 11,10 sek sem
er hans besti árangur.
Stóðu sig vel með
landsliði í frjálsum
Sjö FH-ingar á Evrópukepnni landsliða
Um helgina fór fram frjáls-
íþróttahátíð Gogga Galvaska
fyrir 14 ára og yngri á Varm-
árvelli í Mosfellsbæ. Um 250
börn og unglingar frá 14 félög-
um kepptu á mótinu en þar af
voru 35 FH-ingar.
FH sigraði í heildar stiga-
keppninni með samanlagt 451
stig, Breiðablik varð í öðru sæti
með 330,5 stig og ÍR varð í
þriðja sæti með 325,5. FH sig-
raði einnig stigakeppni pilta
(13-14 ára) með 180 stigum og
Stráka (11-12 ára) með 138
stigum. Telpurnar (13-14 ára)
urðu í þriðja sæti með 74,5 stig
og Stelpurnar (11-12 ára) einnig
í þriðja sæti með 58,5 stig.
Að sögn Daða Rúnars
Jónssonar gefur þessi árangur
glögga mynd af því góða barna-
og unglingastarfi sem unnið er
innan deildarinnar og ekki sé
hægt að segja annað en að
framtíðin sé björt. „Keppendur
okkar fóru á pall í flestum
greinum og stóðu saman sem
ein heild.“
FH sigraði á Gogga
Galvaska í frjálsum
Fjör hjá yngstu keppendunum
Varasöm skilti
enn uppi
Þrátt fyrir ábendingar í síðasta
Fjarðarpósti að auglýsingaskilti
ASÍ á Strandgötunni séu sum allt
of lág og hættuleg vegfarendum
eru þau enn á sínum stað, viku
síðar. Vegfarendur hafa sveigt
eitt skiltið frá enda hefur fólk
rekið sig í þau og slasast.
Hvernig virkar hafnfirska
stjórnsýslan. Hver ber ábyrgð?
Bæjarfulltrúinn og upplýsinga-
fulltrúi ASÍ, Guðmundur R.
Árnason fékk ábendingu um
málið strax en ekkert gerist!
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n