Fjarðarpósturinn - 07.12.2006, Page 6
6 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 7. desember 2006
www.frikirkja.is
Fríkirkjan
Sunnudaginn 10. desember
Sunnudagaskóli kl. 11
Aðventukvöld kl. 20
Flutt verður falleg aðventu- og
jóladagskrá í tali og tónum.
Allir alltaf velkomnir
Fyrsti geisladiskur hinnar létt-
leikandi hljómsveitar Bardukha
hefur litið dagsins ljós eftir
fjögurra ára litríkan feril
Hljómsveitin Bardukha varð til
fyrir hálfgerða tilviljun þegar
snara þurfti upp fisléttri óraf-
magnaðri og fjörmikilli tónlist í
veislu sem haldin var til heiðurs
Birgi Bragasyni bassaleikara
hljómsveitarinnar. Þeir sem stóðu
að þessu tónlistarverkefni voru
slagverksleikarinn Steingrímur
Guðmundsson, harmoniku-
leikarinn Ástvaldur Traustason,
Hjörleifur Valsson, fiðluleikari
og umræddur Birgir sem var að
fá á sig hnapphelduna. Í veislunni
léku þeir eigin hræring af
sígauna- og þjóðlagatónlist þar
sem blandað var saman
balknesku, slavnesku, persnesku
og arabísku tónkryddi og
hæfilegum skammti af íslenskum
áhrifum. Tónlistin svínvirkaði og
gleði gesta varð þvílík að menn
töldu sig ekki hafa upplifað
annað eins í langa hríð.
Svo góður rómur var gerður að
leik félaganna að þeir hættu á að
prófa þetta spilverk sitt á
almennum borgurum þessa lands
og sagan endurtók sig. Það ætlaði
allt að ganga af göflunum vægast
sagt og orðspor Bardukha spurð-
ist hratt út. Síðan hefur hverri
tónveislunni verið snarað upp
eftir aðra með all nokkru millibili,
oftar en ekki á öldurhúsum, í
einkasamkvæmum og heimahús-
um eða samkomusölum og virðu-
legum stofnunum innan eða utan
höfuðborgarsvæðisins. Þá hafa
þeir félagar verið aufúsugestir í
samkunduhúsum, kirkjum og
tónleikasölum vítt og breitt um
landið og komið hefur fyrir að
þeim hefur verið boðið í lang-
ferðir út fyrir landsteinana. Þá
hafa þeir komið fram í sjónvarpi
og útvarpi endrum og sinnum.
Þó svo að tónlist Bardukha
virðist vera niðurnjörvuð og
hefðbundin þjóðlagamúsík með
taktríkum sígaunablæ er ekki rétt
að láta blekkjast. Þessir piltar
láta gjarnan gamminn geysa,
taka sér óspart skáldaleyfi og
sleppa sér lausum í frjálsum og
persónulegum einleiks spuna-
köflum sem færa tónlistina í
nýjar og óræðar víddir. Tónflutn-
ingur Bardukha fær þar af leið-
andi sinn eigin svip og einkenni
og þess vegna hafa þeir félagar
kosið að nefna tónlist sína
Balzamer músík, til að forðast
samlíkingar.
Allir tengjast félagarnir
Hafnarfirði á einhvern hátt,
Ástvaldur og Hjörleifur búa í
Hafnarfirði, Steingrímur er
innfæddur og Birgir kenndi við
Tónlistarskóla Hafnarfjarðar.
Bardukha á geisladiski
Hljómsveitin stofnuð fyrir tilviljun
Út er komin Saga Iðnskólans í
Hafnarfirði, framsækins skóla í
stöðugum vexti. Í bókinni er
rakin saga skólans frá upphafi
eða frá því að Páll Jónsson
járnsmiður fékk Emil Jónsson,
síðar forsætisráðherra til að
standa fyrir námskeiðum fyrir
iðnnema árið 1926, en tveimur
árum síðar, þann 11. nóvember
1928 gengust iðnaðarmenn fyrir
stofnun iðnaðarmannafélags og
iðnskóla í Hafnarfirði. Í bókinni
segir m.a. frá viðgangi skólans á
árum áður, þeim breytingum
sem átt hafa sér stað frá því að
ríki og sveitarfélög tóku við
menntun iðnnema og hvernig
skólastarfið hefur vaxið og
dafnað hin síðari ár. Þá er í
upphafsköflum fjallað um iðn-
nám fyrr á tíð og hvernig það
tengist atvinnustarfsemi í Hafn-
arfirði á liðnum öldum. Bókin er
ríkulega myndskreytt og með
ítarlegum nafnaskrám.
Höfundurinn Lýður Björns-
son, formaður skólanefndar
skólans Björn Ingi Sveinsson og
skólameistarinn Jóhannes Ein-
arsson afhentu Þorgerði Katrínu
Gunnarsdóttur menntamála-
ráðherra fyrsta eintak af bókinni
í Menntamálaráðuneytinu sl.
fimmtudag.
Saga Iðnskólans komin út
Menntamálaráðherra fékk fyrstu bókina
Björn Ingi Sveinsson, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, Jóhannes
Einarsson og Lýður Björnsson.
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Meistarafélag iðnaðarmanna í
Hafnarfirði (MIH) hefur síðustu
misseri unnið að auknu samstarfi
við Iðnskólann í Hafnarfirði á
ýmsa vegu. Nú síðast, 4. desem-
ber 2006, var undirritaður verk-
samningur um að Iðnskólinn í
Hafnarfirði taki að sér að smíða
frístandandi gestahús við orlofs-
hús MIH. Jóhannes Einarsson
skólameistari Iðnskólans í Hafn-
arfirði og formaður Meistara-
félagsins Guðlaugur Adolfsson
undirrituðu samninginn.
Forráðamenn Iðnskólans í
Hafnarfirði og Meistarafélags
iðnaðarmanna í Hafnarfirði vona
að með auknu samstarfi verði
unnt að brautskrá enn betur
menntaða og hæfari iðnaðar-
menn í framtíðinni.
Iðnskólinn smíðar gestahús
Hrafnkell Marinósson, Guðlaugur Adolfsson, form. MIH, Jóhannes
Einarsson, skólameistari Iðnskólans og Friðrik Ág. Ólafsson.
Íslensku bjartsýnisverðlaunin
2006, áður Bjartsýnisverðlaun
Brøstes, voru afhent í Hafnar-
borg á þriðjudaginn. Verðlauna-
hafi ársins er hinn valinkunni
tónlistarmaður og kórstjóri,
Hörður Áskelsson. Alcan á Ís-
landi er bakhjarl bjartsýnis-
verðlaunanna, en Ólafur Ragnar
Grímsson, forseti Íslands er
verndari þeirra og afhenti hann
Herði verðlaunin, verðlaunagrip
úr íslensku áli og eina milljón
króna í verðlaunafé.
Meðal þeirra sem áður hafa
hlotið bjartsýnisverðlaunin eru
nokkrir af fremstu listamönnum
þjóðarinnar. Úr þeirra hópi má
nefna Garðar Cortes (1981),
Helga Tómasson (1984), Einar
Má Guðmundsson (1988), Sig-
rúnu Eðvaldsdóttur (1992), Karó-
línu Lárusdóttur (1997), Björk
Guðmundsdóttur (1999) og
Andra Snæ Magnason (2002).
Hörður Áskelsson hlaut
Íslensku bjartsýnisverðlaunin
Forseti Íslands afhendir Herði Áskelssyni verðlaunin.
Rannveig Rist, forseti Íslands
og Hörður Áskelsson.
Lj
ós
m
.:
S
m
ár
i G
uð
na
so
n