Fjarðarpósturinn - 31.01.2008, Page 6
6 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 31. janúar 2008
Eldsneytisverð
30. janúar 2008 í Hafnarfirði:
Sölustaður 95 okt. dísil
Atlantsolía, Kaplakr. 133,1 135,8
Atlantsolía, Suðurhö. 133,1 135,8
Orkan, Óseyrarbraut 133,0 135,7
ÓB, Fjarðarkaup 133,1 135,8
ÓB, Melabraut 133,1 135,8
Skeljungur, Rvk.vegi 134,9 137,3
Öll verð miðast við sjálfs af greiðslu og
eru fundin á vef síð u olíufélaganna.
N1 gefur ekki upp verð á heimasíðu.
Að auki getur verið í boði sérafsláttur.
Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftker • Blóm • Fáni • Gestabók • Erfidrykkja • Prestur
Kirkja • Legstaður • Tónlist • Tilkynningar í fjölmiðla • Landsbyggðarþjónusta • Líkflutningar
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is
Vaktsími: 565 5892 & 896 8242 • Sólarhringsvakt
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
Bryndís Valbjarnardóttir
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
Það sem hafa ber í huga varðandi andlát og útför
Hermann JónassonSverrir Einarsson Yvonne Tix
Jeppi til sölu
Hef til sölu frábæran Nissan Terrano
33“ breyttur og lítið keyrður.
Uppl. Sigurjón 840 7069
Íbúð óskast
4 manna fjölskylda utan að landi
óskar eftir 4 herbergja íbúð.
Uppl. í síma 898 7564
Þú getur sent
smáauglýsingar á:
a u g l y s i n g a r @ f j a r d a r p o s t u r i n n . i s
e ð a h r i n g t í s í m a 565 3066
A ð e i n s f y r i r e i n s t a k l i n g a , e k k i
r e k s t r a r a ð i l a . V e r ð a ð e i n s 5 0 0 k r .
Ta p a ð - f u n d i ð o g f æ s t g e f i n s : F R Í T T
R e k s t r a r a ð i l a r :
F á i ð t i l b o ð í r a m m a a u g l ý s i n g a r !
Húsnæði óskast
Til sölu
ÞAÐ ER TIL LAUSN!
AA fundur • Kaplahrauni 1
miðvikudaga kl. 19.45
Snotur staður í
hjarta Hafnarfjarðar
er til útleigu fyrir
hvers kyns
viðburði.
Salurinn tekur um
65 manns sitjandi
en um 100 manns
standandi.
Upplýsingar hjá Lindu
í síma 898 6412
Salur til leigu
Rakel 869 7090 • Sindri 861 7080 • www.kolbrunrakel.is
Næring + Hreyfing + Fræðsla = Árangur
Sjálfstæðir dreifingaraðilarHERBALIFE
Gerður Hannesdóttir • 865 4052 • 565 1045 • ghmg@simnet.is
NÝR LÍFSSTÍLL
— þyngdarstjórnun • ráðgjöf
Fríar prufur
gjafir
fríar prufur
Elma s. 846 6447 – 555 4750
www.betralif.am
Hæfileiki einstaklingsins í við -
kom andi íþrótt er eitt hvað sem
gott er að hafa til að ná
árangri. Rétt hugarfar
á æfingu eða í keppni
er annað sem verður
að hafa ef stefnt er á
toppinn. En svo aftur
spurningin, hv ar skil -
greinum við topp inn?
Að mínu mati eru
stærstu sigurvegararnir
þeir sem upplifa það að
sigra sjálfan sig, þeir
sem komast yfir hindranir og
þeir sem leggja sig alltaf 100%
fram. Stundum eru verðlaunin
gull peningur um háls inn,
stundum er það stórt bros í eigin
andliti.
Hugarfarið skiptir miklu máli í
íþróttaiðkun. Til að verða bestur
þarf að leggja hart að sér, klára
hv erja æfingu með fullri
áreynslu hlusta á þjálfarann og
treysta honum, setja sér lítil og
stór markmið eins og að ætla sér
að verða betri í dag en í gær eða
að ná í gullið næst eftir að hafa
krækt í silfur. Þannig er hægt að
hlaða ofan á getu sína smátt og
smátt þar til stóra markmiðinu er
náð. Þá er byrjað upp á nýtt, ný
mark mið sett og enn meira lagt á
sig til að ná því.
Það þekkja allir íþróttamenn
nei kvæðar tilfinningar sem
ásækja hugann í keppni. Gald -
urinn er að kunna að tækla þær
líkt og það þarf að tækla and -
stæð inginn. Jafnvel íþr ótt a menn
í fremstu röð, marg -
faldir Ólympíu m eist -
arar, þjáist af stressi og
kvíða fyrir mikil væga
keppni. Það er eðli -
legt að fá þess ar til -
finn ingar og það þarf
að kunna að sigr ast á
þeim.
Það er ljóst að það
er mikil vinna að ná
árangri. Það þarf að
borða hollan mat, sofa nóg, trúa
alltaf á sjálfan sig og hugsa já -
kvætt. Það þarf að tapa til að
geta sigrað og það þarf að bera
ábyrgð á eigin frammistöðu í
slæmu gengi. Þjálfari er til stað -
ar til að aðstoða íþróttamanninn
til að ná á toppinn, hann byggir
ekki meistara með eigin hönd -
um. Það er á valdi íþrótta manns -
ins að gera það sem hann segir
og örlít ið meira en það. Eftir
slæmt gengi þarf að nota viljann
að vopni og nýta mótlætið í styrk
og reynslu. Allir hrasa, en það
eru aðeins þeir viljamestu sem
standa upp aftur og uppskera það
að komast á toppinn.
Höfundur er er meðlimur í Liði
Hafnarfjarðar.
Greinina er hægt að lesa í
heild sinni á
www.lidhafnarfjardar.is
Þú uppskerð eins
og þú sáir
Þórey Edda
Elíasdóttir
St. Jósefsspítali –
Sólvangur auglýsir eftir fólki
til starfa
Móttökuritari
Starfið felst m.a. í símaafgreiðslu, móttöku og
upplýsingagjöf til sjúklinga, frágangi skjala ofl. Starfið
krefst þjónustulundar, stundvísi, lipurðar í samskiptum
og nákvæmni í vinnubrögðum. Nauðsynlegt að
starfsmaður hafi einhverja tölvukunnáttu. Starfshlutfall
er 100%, eða eftir nánara samkomulagi. Laun eru
samkvæmt stofnanasamningi St. Jósefsspítala –
Sólvangs og SFR.
Nánari upplýsingar veitir skrifstofustjóri í síma 555-0000
eða á netfanginu helgif@stjo.is
Umsóknarfrestur er til 7. febrúar nk.
Öllum umsóknum verður svarað.
Umsóknum ásamt upplýsingum um menntun og fyrri
störf sendist til St. Jósefsspítala – Sólvangs
St. Jósefsspítali – Sólvangur
Suðurgata 41, 220 HAFNARFJÖRÐUR
Hádegistónleikarnir í Hafnar -
borg, í umsjón Antoníu Hevesi,
hefja göngu sína á ný fimmtu -
daginn 7. febrúar. Góð mæting
hefur verið á tónleikana og von -
andi verður engin breyting á því
nú í ár.
Á fyrstu tónleikunum þann 7.
febrúar verður Bjarni Thór Krist -
ins son, bassi, en hann fékk
Eddu - verðlaun sem söngvari
árs ins árið 2007 fyrir hlutverk
OSMIN-s í Brottnám úr kvenna -
búrinu e. Mozart. Þar verða ein -
göngu fluttar aríur eftir Mozart,
meðal annars tvær aríur Osmins,
auk aríur úr óperunni Don
Giovanni, Töfraflautunni og
Brúð kaup Figaros. Yfirskriftin er
„Skúrkar og prestar" eftir
karakterum sem hann mun túlka.
Gestir Antóníu í vor verða
Bjarni Thór Kristinsson - bassi,
Arndís Halla Ásgeirsdóttir -
sópran, Monika Abendorth -
hörpuleikar og Kolbeinn J.
Ketilsson - tenór.
Hádegistónleikarnir verða
alltaf fyrsta fimmtudag hvers
mánaðar í Hafnarborg.
Hádegistónleikarnir
hefja göngu sína á ný
Fyrstu tónleikarnir fimmtudaginn 7. febrúar
Antonía Hevesi
Nýi vor- og sumarlisti Free
mans er kominn og hefur listinn
aldrei verið eins fjölbreyttur eins
og nú – yfir 1100 bls. með alla
nýj ustu tískuna beint frá London
og er kvenfatalínan í ár ein stak -
lega fjölbreytt og skemmtileg, Þá
býð ur listinn upp á mikið úrval
af fatnaði fyrir karlpeninginn
sem og falleg og þægileg föt
fyrir yngstu kynslóðina, þá er
einn ig mikið úrval af fallegum
sængur fötum og rúmteppum og
fleiru. Hægt er að fá nýja vor- og
sumarlistann í verslun Freemans
á Reykjavíkuvegi 66 Hafnarfirði
eða hringja í 565-3900
einnig má senda á
www.freemans.is og
freemans@freemans.is
Nýr listi frá Freemans