Fjarðarpósturinn - 26.03.2009, Page 2
Stjórnmálaflokkarnir, þeir sem við treystum
fyrir stjórnum landsins skiluðu allir taprekstri á
árinu 2007. Er það gæfulegt? Og kannski ekki
skrýtið að illa fór þegar þeir sem stjórna geta
ekki haft auga með eigin fjárhag. Hitt vekur
athygli hverjir styrkja flokkana. Sumir flokk -
arnir voru svo ráðvilltir að þeir kölluðu á
Neyðar línuna og fengu þar stuðning. Svo má
reyna að rýna í það af hverju ákveðin fyrirtæki
styrkja en önnur ekki. Hvers vegna eru um 80% þeirra hafnfirsku
fyrirtækja sem styrkja stjórnmálaflokkana tengd byggingariðnaði?
Hafa þau notið sérstakrar velvildar fyrir stuðninginn? Þetta minnir
mig á styrktarlínusöfnun lögreglufélagsins sem sendi félagsmenn í
fullum skrúða til að safna styrktarlínum. Auðvitað fengu þeir rífandi
undirtektir og gátu bætt góðum arði ofan á arð af sölu óskilamuna.
Nú fer brátt að vora þó eflaust eigi eftir að grána og hvítna ofan á
hálfgrænt grasið. Fólk er hvatt til að klippa trjágróður við
gangstéttar og stíga og leitað er af félögum til að safna rusli í bæjar -
landinu gegn greiðslu. Fjölmargir hafa haft samband við mig og
kvartað undan hundaskít, síðast póstur í miðbænum sem segir þetta
versna ár frá ári. Hvað er það með hundaeigendur? Eru þeir ver upp
aldir en hundarnir? Þeir hafa flestir farið á hlýðninámskeið svo
kannski ætti Hafnarfjarðarbær að skylda hundaeigendur á slík
námskeið líka vilji þeir halda hund. Undarlegasta áráttan er þegar
hundaskít er troðið í plastpoka og honum svo hent við gangstíga
eins og borið hefur á við Hvaleyrarvatn. Vonandi eru flestir
hundaeigendur þó til friðs og afbragðs þegnar. Það eru þeir fáu sem
gefa skít í umhverfið.
Hvað líður nýju lögreglusamþykktinni? Liggur hún og safnar ryki
í dómsmálaráðuneytinu? Hvað líður reglugerð um innheimtu sekta
sem setja átti til að auðvelda sektarinnheimtu þeirra sem leggja
bílum sínum ólöglega? Nóg er af brotunum þar sem ökumenn
vanvirða svæði gangandi vegfarenda. Hvað ætlar Hafnarfjarðarbær
að gera? Þessi svæði fá ekki einu sinni að vera í friði við skóla
bæjarins og nærtækast að benda á Setbergsskóla.
Guðni Gíslason
2 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 26. mars 2009
Útgefandi: Keilir ehf. útgáfufélag, kt. 480307-0380
Fjarðarpósturinn, Bæjarhrauni 2, 220 Hafnarfirði
Vinnsla: Hönnunarhúsið ehf., umbrot@fjardarposturinn.is
Ritstjóri og ábm.: Guðni Gíslason
Ritstjórn: 565 4513, 896 4613, ritstjorn@fjardarposturinn.is
Auglýsingar: 565 3066, auglysingar@fjardarposturinn.is
Prentun: Steinmark ehf. Dreifing: Íslandspóstur
ISSN 1670-4169 – Vefútgáfa: ISSN 1670-4193
www.fjardarposturinn.is
Í dag, fimmtudaginn 26. mars:
Fullorðinsfræðsla kl. 20
Orgelkynning með tóndæmum
Guðmundur Sigurðsson, kantor, kynnir eiginleika Sauer-
Scheffler orgelsins nýja. Allir velkomnir.
Sunnudaginn 29. mars, Boðunardag Maríu:
Fermingar kl. 10.30 og 14
Prestar: Sr. Gunnþór Þ. Ingason og sr. Kjartan Jónsson
Kantor: Guðmundur Sigurðsson.
Kór: Barbörukórinn í Hafnarfirði.
Sunnudagaskóli á sama tíma í Strandbergi
Þriðjudaginn 31. mars kl. 12.15:
Orgeltónleikar
Björn Steinar Sólbergsson, organisti í Hallgrímskirkju
og skólastjóri Tónskóla Þjóðkirkjunnar leikur á Sauer -
Scheffler orgel Hafnarfjarðarkirkju
Þriðjudagur 31. mars kl. 17.30:
Kyrrðarstund með kristinni íhugun
Umsjón: Sigríður Hrönn Sigurðardóttir, guðfræðingur
TÖLVUHJÁLPIN
Tek að mér vírushreinsanir,
viðgerðir, uppfærslur og
uppsetningar á PC tölvum
Mæti í heimahús
Sanngjarnt verð
Sími 860-7537
Fræðst um Þórisvatn
Í kvöld fimmtudag kl. 20, mun
Guðni Guðbergsson, fiskifræðingur
hjá Veiðimálastofnun, fræða gesti á
fræðslufundi Stangaveiðifélags
Hafn ar fjarðar um Þórisvatn o.fl.
Sýningar í Bæjarbíói
Á laugardaginn kl. 16 sýnir Kvik -
mynda safn Íslands mynd Woody
Allen Crimes and Misdemeanors.
Á þriðjudaginn kl. 20 sýnir Kvik -
mynda safnið Beitiskipið Potemkin
(1925) eftir Sergei M. Eisenstein.
Síðasta sýningarhelgi
Nú er síðasti möguleiki á að sjá
sýningu Helga Gíslasonar, Verund, í
Hafnarborg en sýningunni lýkur um
helgina.
Síðdegisdjass
Síðdegisdjass - Egill Ólafsson, Björn
Thoroddsen og Jón Rafnsson
sunnu daginn 29. mars kl. 15 í
Hafnarborg í samstarfi við Mann
lifandi – aðgangur ókeypis.
Tónleikar Tríó Reykjavíkur
Tríó Reykjavíkur verður með tónleika
í Hafnarborg á sunnudaginn kl. 20
þar sem fluttur verður Silungakvintett
Schuberts. Tríóið skipa Guðný Guð -
mundsdóttir, fiðluleikari, Gunnar
Kvaran sellóleikari og Peter Máté
píanóleikari. Gestir tríósins verða
þau Helga Þórarinsdóttir víóluleikari
og Richard Korn kontrabassaleikari.
Aðalfundur
Aðalfundur Félags eldri borgara í
Hafnarfirði verður haldinn fimmtu -
daginn 26. mars kl. 14 í Hraunseli.
Syngjandi páskabingó
Kór Flensborgarskóla stendur fyrir
syngjandi páskabingói þriðju dag inn
31. mars kl. 19.30 í sal Flens borgar -
skóla. Fjöldi stórra vinninga. Kórinn
syngur í hléinu. Ókeypis að gangur.
Spjöldin á 500 kr.
LOFTNETS OG SÍMAÞJÓNUSTA
Viðgerðir og uppsetningar á
loftnetum, diskum, heimabíóum,
flatskjám. Síma- og tölvulagnir
Loftnetstaekni.is
sími 894 2460
Árangur með
Herbalife
Aukin orka -
Betri líðan
Gerður Hannesdóttir
gsm 865-4052
ghmg@internet.is
Pantaðu frían
prufupakka!
Heilsuvörur; fituminnkandi, gegn
appelsínuhúð fyrir konur, vörn fyrir
liðamót, nitric oxide, orku- o.fl.
Ég leita að samstarfsaðila við
innflutning á Nansilver sokkum og
undirfatnaði sem bæta húðvanda.
Skype:NanoRadim,truckrapidoil@volny.cz
HEILSUNUDDARI í Hress: 841 0968
Nudd, heilsunudd, heilsumeðferð
19.-31. mars kr. 3.900,- Aðeins bak: kr. 1.990,-Ástjarnarkirkja
Kirkjuvöllum 1
í kvöld, fimmtudag 26. mars kl. 20
10 leiðir til lífshamingju
Námskeið til að auka lífsgæði.
Leiðbeinandi sr. Þóhallur Heimisson.
Markmiðið er að styrkja fólk á þeim erfiðu tímum
sem nú ganga yfir, auka mönnum bjartsýni og
kraft og kenna þeim að lífið opnar nýjar dyr
þegar þær gömlu lokast.
Námskeiðin eru öllum opin óháð
trúfélagsaðild og lífsskoðunum og ókeypis.
www.astjarnarkirkja.is
SAUMAKONA
í Hafnarfirði
- földun - rennilásar - gardínur
- hvers kyns saumaskapur
GOTT VERÐ
Reykjavíkurvegi 22
á bak við Sjónarhól
Opið kl. 17 til 21
mánud. og miðvikud. kl. 17-19
Sími 867 2273
Auglýsingasími:
565 3066