Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 11.06.2009, Blaðsíða 8

Fjarðarpósturinn - 11.06.2009, Blaðsíða 8
8 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 11. júní 2009 OPNUM Á NÝJUM STAÐ Erum flutt yfir götuna specialsHljómsveitin DANSLEIKIR á Fjörukránni Hljómsveit Rúnars Þórs Specials sérhæfa sig í sjöunda áratugnum - Bítlunum, Stones og Pretty Things Sérfræðingarnir lofa stanslausu stuði á Fjörukránni. Smeygjum okkur í dansskóna og mætum tímanlega. Björtum dögum lauk á sunnu daginn, á sjálfan sjó - manna daginn. Viðburðarríkt hefur verið í bænum þessa 10 daga sem hátíðin stóð yfir, tónleikar, sýningar, uppákomur, ferðir og fl. Sjómannadagurinn stendur þó alltaf sjálfur fyrir sínu þó fastir liðir eins og kappróður og fl. hafi fallið niður í ár og sömuleiðis var heiðrun sjó - manna tekin burt úr dagskránni á höfninni, mörgum til undr - unar, enda snar þáttur í hefð - inni. Hvalaskoðunarskipið Eld - ing fór margar ferðir með troð - fullt skipið í siglingu með bæjarbúa og virðist áhugi fólks á að komast út á sjó í stutta sigl - ingu alls ekki minnka, síður en svo og synd að fólk fái ekki tækifæri á að fara með fiski - skipum lengur. Hafnarstjórnin bauð upp á fiskisúpu í tilefni 100 ára afmæli hafnarinnar og rann hún ljúft ofan í gestina enda gómsæt og heit. Formaður hafnar - stjórnar hélt ávarp en var látinn standa með gjallarhorn svo boðskapurinn fór út og suður. Hvort þetta átti að vera sniðugt og í anda gamalla tíma að nota gjallarhorn er óvitað en von - andi taka menn ekki svona ákvarðanir aftur. Gestir fengu að sjá ýmsar fisktegundir, fjöl - listamenn voru á svæð inu, boðið var upp á salibunu í björgunarstól og sitt hvað fleira. Sjósókn er saga Hafnar - fjarð ar og sjómanna - dagurinn ætti eflaust að vera stærsti hátíðis dagur bæjarins. Líflegt á sjómannadeginum Mikill áhugi alltaf fyrir að komast í siglingu Elding sigldi margar ferðir með áhugasama Hafnfirðinga. L jó s m .: G u ð n i G ís la s o n Sumir klifruðu til að komast upp Fleyin voru misstór á sjónum. Stígur Herlufsen og Þórður A. M arteinsson spiluðu. Börnin horfðu hugfangin á kynja fiskana. Harmónikkufélagar þöndu nikkurnar. Hafnarstjórnin brá upp svuntum og gaf súpu hægri og vinstri. Börnin fengu skemmtilega ferð í björgunarstól. L jó s m y n d ir : G u ð n i G ís la s o n

x

Fjarðarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.