Fjarðarpósturinn - 10.12.2009, Síða 2
2 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 10. desember 2009
Örlítil hreyfing er komin í framboðsmálin en
þrjú tilkynntu í fyrradag framboð sitt til
prófkjörs Samfylkingar, reynsluboltinn Eyj -
ólfur Sæmundsson sem einhvern veginn hefur
ekki náð alvöru fylgi sinna flokksmanna,
prjóna konan unga Margrét Gauja Magnús dótt -
ir sem fékk skjótan frama innan flokksins og
nýr kandidat, hinn átján ára Geir Guð -
brandsson, nefndur í höfuð afa síns Gunnars -
sonar alþing is manns sem ætlar í framboð með móðurbróður sínum,
bæjar stjóranum. Lítið fréttist úr herbúðum Sjálfstæðismanna en Ingi
Tómasson lýsir yfir framboði hér í blaðinu. Þó heyrist athyglis verð -
ur orð rómur um að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir verði oddvita -
kandídat og sé það leið í hernaðaráætlun flokksins um að ná
meirihluta á ný. Verður að segjast að þetta væri áhugavert að fylgjast
með og langtum skárri kostur en að sækja út fyrir bæinn eins og
nefnt hefur verið í fjölmiðlum.
Annars ætti fólk nú að huga að sér og sínum á aðventunni þó fyrir
liggi hjá bæjarfulltrúum að undirbúa fjárhagsáætlun. Mikilvægt er
að fólk gæti hófs í jólaundirbúningi og minnist mikilvægis samveru
fjölskyldunnar eins og Geir Bjarnason forvarnarfulltrúi fjallar um í
grein hér í blaðinu. Ýmislegt bendir til að fólk gæti meiri hófs í
innkaupum fyrir jólin og að fólk horfi sér nærri en fjölmargir styrkja
góð málefni eins og Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar sem hefur
fjölmörgum verkefnum að sinna og þakkar allan stuðning.
Fjölbreytt dagskrá er í boði sem vert er að njóta með sínum
nánustu, tónleikar, sýningar og ekki má gleyma Jólaþorpinu sem
býður upp á fjölbreytta dagskrá um helgar. Eru bæjarbúar hvattir til
að vera sem mest í heimabyggð, kíkja í miðbæinn, sýna sig og aðra
og njóta þess að vera til. Gangið á Guðs vegum.
Guðni Gíslason.
Útgefandi: Keilir útgáfufélag ehf., kt. 480307-0380
Fjarðarpósturinn, Bæjarhrauni 2, 220 Hafnarfirði
Vinnsla: Hönnunarhúsið ehf., umbrot@fjardarposturinn.is
Ritstjóri og ábm.: Guðni Gíslason
Ritstjórn: 565 4513, 896 4613, ritstjorn@fjardarposturinn.is
Auglýsingar: 565 3066, auglysingar@fjardarposturinn.is
Prentun: Steinmark ehf. Dreifing: Íslandspóstur
ISSN 1670-4169 – Vefútgáfa: ISSN 1670-4193
www.fjardarposturinn.is
Víðistaðakirkja
3. sunnud. í aðventu 13. desember
Fjölskylduhátíð
og helgileikur kl. 11
Prestur: sr. Bragi J. Ingibergsson
Stúlknakór, einsöngvarar, trompetleikari og fl.
Veitingar í safnaðarheimilinu á eftir.
www.vidistadakirkja.is
LOFTNETS OG SÍMAÞJÓNUSTA
Viðgerðir og uppsetningar á
loftnetum, diskum, heimabíóum,
flatskjám. Síma- og tölvulagnir
Loftnetstaekni.is
sími 894 2460
Sendibílaþjónusta í 25 ár!
Benni Ben. • 893 2190
Tölvuþjónustan Rthor
Fartölvuviðgerðir
og almennar tölvuviðgerðir.
Kem í heimahús
Ódýr og góð þjónusta
Sími: 849 2502
ÚTFARARÞJÓNUSTA
HAFNARFJARÐAR
SÍMI 565 9775 - ALLAN SÓLARHRINGINN - UTH.IS
Frímann Andrésson
útfararstjóri
hÁLFDÁN hÁLFDÁNARSON
útfararstjóri
Kaffisetur
Samfylkingarinnar
í Hafnarfirði
alla þriðjudaga og
föstudaga kl. 10-12
Strandgötu 43
Rjúkandi kaffi og meðlæti.
Fjörugar og lýðræðislegar
umræður um fjölbreytt málefni.
Allir velkomnir
Fyrirtæki og einstaklingar
Færsla á bókhaldi, launaútrreikningur,
vsk-uppgjör, ársuppgjör, skattframtöl,
skattakærur, fjármálaráðgjöf.
Magnús Waage, viðurkenndur bókari
Reykjavíkurvegi 60, s. 565 2189, 863 2275
Prjónakaffi í kvöld
Prjónakaffi verður haldið í Vonarhöfn,
Hafnarfjarðarkirkju, gengið inn af
Suðurgötu í kvöld fimmtudag kl. 20-
22. Erla Sigurðardóttir kynnir bókina
Prjónaperlur sem er nýkomin út.
Mætið með handavinnuna ykkar eða
komið bara og spjallið. Kaffi.
Sýningar í Bæjarbíói
Á laugardaginn kl. 16 sýnir Kvik -
myndasafn Íslands Old Joy (2006) í
leik stjórn Kelly Reichardt.
Á þriðjudaginn kl. 20 verður sýnd
Óskarsverðlaunamyndin On Golden
Pond (1981). Aðalleikarar: Henry
Fonda, Katherine Hepburn og Jane
Fonda.
Opið hús í Jafnréttishúsi
Opið hús er í Jafnréttishúsi, Strand -
götu 25 um helgar á aðventunni kl.
13-18.
Kórar Öldutúns og - skóla
Jólatónleikar Kórs Öldutúnsskóla og
Kvennakórs Öldutúns verða í Hafnar -
fjarðarkirkju á laugardaginn kl. 17.
Rósa áritar í Galleríi Thors
Rósa Guðbjartsdóttir áritar mat -
reiðslu bók sína „Eldað af lífi og sál“ í
Gallerí Thors á laugardaginn kl. 14-
16. Kl. 15-17 á sunnudaginn leikur
Tómas Jónsson, tónlistarmaður
ljúfa tóna á hljómborð fyrir gesti.
Ómar á Jólatónleikum
Fríkirkjukórsins
Jólatónleikar Fríkirkjukórsins verða í
Fríkirkjunni á laugardaginn kl. 17.
Gestur kórsins er Ómar Ragnarsson.
Syngja til styrktar Bleiku
slaufunni
Kristín Ósk Wium söngkona úr
Hafnarfirði og félagar hennar Alan
Jones og Arnar Jóns söngv arar
ásamt nokkrum bakröddum ætla að
gefa út lag til styrktar Bleiku slauf -
unni. Kristín Ósk og Alan syngja
nokkur jólalög í Jólaþorpinu á
sunnudaginn og munu þá kynna
diskinn, sem verður tekinn upp þann
15. des. Þau verða svo með
styrktartónleika í Fríkirkjunni 18.
des ember kl. 20 og þar munu koma
fram ýmsir tónlistarmenn.
Stórhátíð Elínar Óskar
Stórhátíð er yfirskriftin á jólatón -
leikum Elínar Óskar Óskarsdóttur
sem verða í Víðistaðakirkju á sunnu -
daginn kl. 17. Steinunn Birna
Ragnarsdóttir, píanó, Bryndís Halla
Gylfadóttir, selló, Maríanna Más -
dóttir, flauta, Drengjakór Hafnar -
fjarðar og Óperukór Hafnarfjarðar.
Sopranos í Hafnarborg
Söngtríóið Sopranos heldur sína
árlegu jólahátíð með gleði og söng í
Hafnarborg á miðvikudaginn kl. 20.
Gestur þeirra er bassasöngvarinn
Bjarni Thor Kristinsson.
Dagskrá í Jólaþorpinu
Laugardag kl. 13-18:
Kl. 14: Kvennakór Öldutúns, Ívar
Helgason syngur jólalög, Pála Ögn
Stefánsdóttir söngkona úr Lækjar -
skóla syngur.
Kl. 15: Rauðhetta, Lalli töframaður,
Stúlknakór Ástjarnarkirkju.
kl. 16: Ástjarnarsystur syngja, atriði
frá Jafnréttishúsi.
kl. 17: Karlakórinn Þrestir, Borgar -
börn sýna atriði úr María, asninn og
gjaldkerarnir.
Sunnudag kl. 13-18:
kl. 14: 3 raddir og Beatur syngja,
Sopranos tríóið syngur.
kl. 15: Úti jólaball með jóla-
Jóhönnu.
kl. 17: Street Passion Crew sýnir
götulistir.
Jólakort
Kaldár
Lionsklúbburinn Kaldá
Hafn arfirði er að hefja sína ár -
legu jólakortasölu eins og
undanfarin ár og mun allur
ágóði renna til líknarmála.
Ingibjörg Eldon, mynd listar -
kona hefur teiknað kortið.
Hægt er að fá kortin brotin
eða óbrotin, með eða án texta.
Nán ari upplýsingar gefur Elísa -
bet í s. 893 5455.
Út að borða í
Hafnarfirði
Á aðventunni getur verið
þægilegt að geta a.m.k. einu
sinni hvílt sig á elda mennsk -
unni og farið með fjölskyldunni
út að borða. Af nógu er að taka
í Hafnarfirði hvort sem menn
vilja arabískan, kínverskan eða
bara íslenskan fjölþjóða mat.
Finna má ódýran skyndibita
eða heimilismat, hátíðarmat og
allt þar á milli.
Jólablaðið er í næstu viku!
Áttu smásögu, jólaljóð, fallega jólamynd?
Sendu okkur á ritstjorn@fjardarposturinn.is