Fjarðarpósturinn - 10.12.2009, Qupperneq 8
8 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 10. desember 2009
Nánari upplýsingar í síma 565-1213
eða á www.fjorukrain.is
Gjafabréf frá Fjörukránni
er upplögð jólagjöf í ár !
Hljómsveitin Dans á rósum
og hljómsveit Rúnars Þórs og sérstakur
heiðursgestur hans, Gylfi Ægisson syngur
flest af sínum bestu lögum.
Minnum á skötuhlaðborðið
á þorláksmessu !
18. og 19. desember11. og 12. desember
p
re
n
tu
n
.i
s
jólahlaðborðið
glæsilega
í desember
Dansleikir um helgar
í desember
Stærsta fiskvinnskufyrirtæki
bæjarins, Festi ehf., er í þrotum
og hefur skiptastjóri falið fyrir -
tækjaráðgjöf Lands bankans að
sjá um sölu á rekstri og eignum
þess. Festi rak einnig útgerð
auk fiskvinnslu í Hafnarfirði og
gerði út sex báta.
Söluferlið er opið áhuga -
sömum fjárfestum en markmið
sölunnar er að hámarka virði
reksturs og eigna þrotabús
Fest ar ehf.
Óskuldbindandi tilboðum
skal skilað inn 10. desember
nk. en stefnt er að því að ljúka
sölu fyrir árslok 2009.
Skilyrði er að kaupandi taki
yfir starfsmannasamninga er
tilheyra þrotabúi Festar ehf. og
stefnt er að því að selja eignir
skuld- og veðbandslausar.
Héraðsdómur Reykjaness úr -
skurð aði 5. nóv ember 2009 að
bú Festar ehf. skyldi tekið til
gjald þrotaskipta og skipaði Jón
Auð unn Jónsson hrl. skipta -
stjóra þrotabúsins.
Þrotabú Festar í sölu
Landsbankanum falið að sjá um sölu á rekstri og eignum þrotabúsins
Mikilvægt er talið að starfsemi Festar sé tryggð.
L
jó
s
m
.:
G
u
ð
n
i
G
ís
la
s
o
n
Jólin framundan geta orðið
einstaklega ánægjuleg því að
sjaldan gefast jafn mörg góð
tækifæri til að eyða tímanum
saman með fjöl skyld -
um okkar við leik og
störf.
Samstaða foreldra,
lögreglu, skóla, félaga -
samtaka, íþrótta hreyf -
ingar og aðila hjá
Hafn arfjarðarbæ er
mikil um gildi for -
varna og sú samstaða
hefur skilað vímu -
varnar árangri. Nýjar
rann sóknir sýna að áhrif efna -
hagserfiðleikanna virðast ekki
hafa haft neikvæð áhrif á heil -
brigðan lífstíll unga fólksins.
Íþróttahreyfingin hefur lagt
mikið á sig við að halda upp
afar fjölbreyttu starfi og hefur
erfitt fjárhagslegt
um hverfi ekki bitnað
á öflugu barna- og
unglingastarfi. Sama
má segja um önnur
félagssamtök og
félags miðstöðvar
sem virðast standa í
blóma. Öll þessi
vinna sem fram fer í
nafni heilbrigðs
lífsstíls er ekki sjálf -
gefin og ber að þakka fyrir
einstaklega vel unnin störf.
Samverustundir með fjöl -
skyldunni hafa mikil fyrir -
byggjandi áhrif á ýmsa nei -
kvæða þætti og vil ég hvetja
alla að nýta komandi frídaga til
uppbyggilegra verkefna með
vinum og fjölskyldum.
Nú um aðventuna og fyrir
áramótin standa foreldrafélög
grunnskólanna, lögreglan,
félags miðstöðvar, skólarnir og
Hafnarfjarðarbær að átaki til að
hvetja fjölskyldur til að fjölga
samverustundunum yfir að -
ventuna saman og eyða ára -
mótunum saman.
Gleðileg jól og eyðum
áramótunum SAMAN.
Höfundur er forvarnafulltrúi
Gleðilegar samverustundir
Geir
Bjarnason
Hressleikarnir voru haldnir
14. nóvember sl. Mikill kraftur
gleði og skein úr hverju aldliti
þann dag. Þar púluðu og
svitnuðu við skiptavinir Hress í
tvo tíma og lögðu góðu málefni
lið í leiðinni sem var að safna fé
fyrir Rebekku Maríu Jóhannes -
dóttur.
Mætingin var mjög góð, vel
yfir 200 manns sem sáu sér fært
að mæta. Það var frábær
stemmning í hópnum að sögn
Lindu Hilmarsdóttur hjá Hress
og sáu tíu þjálfarar um að
hvetja alla áfram.
Söfnunin gekk vonum framar
og söfnuðust 209.615 kr. Var
Rebekku Maríu líka afhent
árskort í HRESS, fría barna -
gæslu og tvo mánuði í einka -
þjálfun hjá þjálfurunum Siggu
og Telmu.
Það vildi svo skemmtilega til
að Rebekka María fæddi heil -
brigðan og fallegan dreng sama
dag og Hressleikarnir vou
haldnir og hefur hún nú nefnt
hann í höfuðið á föður sínum.
Fréttin um fæðinguna topp -
aði alveg daginn hjá öllum sem
tóku þátt!
Rebekka María missti báða
foreldra sína nýlega og berst
fyrir forræði tveggja bræðra
sinna ásamt því að ala upp
frumburð sinn.
Rebekku var afhent söfn -
unar féð fyrir stuttu síðan og var
hún mjög þakklát og glöð fyrir
stuðninginn.
Fjáröflun og fæðing
Telma Matthíasdóttir, Sigríður Einarsdóttir, Rebekka Maria
Jóhannesdóttir, Linda Hilmarsdóttir og Ásta Lilja Baldursdóttir.
L
jó
s
m
.:
K
ri
s
tj
á
n
A
ri
L
jó
s
m
.:
K
ri
s
tj
á
n
A
ri