Fjarðarpósturinn - 14.06.2012, Blaðsíða 6
6 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 14. júní 2012
Töluverð umræða hefur verið
um umdeildar reglur sem
fræðslu ráð Hafnarfjarðar hefur
haft til umræðu og eru að
grunni til komnar frá borgar
stjórn Reykjavíkur. Reglurnar
voru samþykktar í fræðsluráði á
mánudag og sama dag mátti
lesa fyrirsagnir í fjölmiðlum
eina og „Opnun á dreifingu
Kóransins“, Trúfélögum úthýst
úr hafnfirskum skólum“ og
„Trúfélög mega heimsækja
börnin“. Fulltrúi Sjálfstæðis
flokks segir í fréttaviðtali að í
Hafnarfirði sé verið að víkka út
aðgengi trúfélaga og gefa öllum
trúf élögum jafna möguleika á
að dreifa efni sínu. Reglurnar
opni og staðfesti það fyrir
komu lag sem þegar sé í gildi í
skól unum.
Oddviti VG segir í frétta
viðtali að Nýja testamentið og
Kóraninn geti fallið undir
kennslu fræðilegt efni en það sé
sett í hendurnar á skóla stjórn
endum og kennurum.
Óljósar reglur?
Það virðist vera ljóst, strax á
fyrsta degi, að fólk túlkar þessu
nýju reglur mismunandi.
Nýju reglurnar
„Fræðsluráð samþykkir að
eftirfarandi viðmiðunarreglur
verði hafðar að leiðarljósi í
samskiptum leik og grunnskóla
Hafnarfjarðar við trúar og
lífsskoðunarfélög:1
a) Hlutverk skóla er að fræða
nemendur um ólík trúarbrögð og
lífsskoðanir samkvæmt gildandi
aðalnámskrá og námsefni.
b) Trúar og lífsskoðunarfélög
stunda ekki starfsemi sína innan
veggja leik og grunnskóla
bæjarins á skólatíma. Þetta á við
allar heimsóknir í lífsskoðunar
og trúarlegum tilgangi og dreif
ingu á boðandi efni. Með
boðandi efni er átt við hluti sem
gefnir eru eða notaðir sem hluti
af trúboði, það er tákngripir,
fjölfölduð trúar og lífsskoðunar
rit, bækur, hljóðrit, prentmyndir
og kvikmyndir. Ekki er átt við
efni sem tengist fræðslu er stuðl
ar að menningarlæsi barna.
Um almenna kynningu gagn
vart foreldrum og börnum á
viður kenndu barna og æsku
lýðs starfi trú og lífsskoðunar
félaga skal fara líkt og með
kynn ingu á hliðstæðum frí
stunda tilboðum frjálsra félaga
samtaka í skólastarfi.
c) Skólastjórnendur grunn
skóla geta boðið fulltrúum trúar
eða lífsskoðunarfélaga að heim
sækja kennslustundir í trúar
bragðafræði/lífsleikni sem lið í
fræðslu um trú og lífsskoðanir
samkvæmt gildandi aðalnáms
skrá og námsefni, og fer þá
heim sóknin fram undir hand
leiðslu kennara.
d) Heimsóknir á helgi og
samkomustaði trúar og lífsskoð
unarfélaga á skólatíma grunn
skóla eiga sér stað undir hand
leiðslu kennara sem liður í
fræðslu um trú og lífsskoðanir,
samkvæmt gildandi lögum og
aðalnámskrá. Þar sem ekki er
sér staklega getið um vett vangs
heimsóknir leikskólabarna á
helgi og samkomustaði trúar
og lífsskoðunarfélaga sem lið í
fræðslu um trú og lífsskoðanir í
aðalnámskrá leikskóla er eðlilegt
að miða slíkrar heimsókna við
það sem fram kemur í aðal
námskrá grunnskóla til að gæta
samræmis milli skólastiga.
e) Sígildir söngvar, dansar,
leik ir og handíðir sem teljast
hluti af gamalgrónum hátíðum
og frídögum þjóðarinnar halda
sessi sínum í árstíðabundnum
skemmt unum og starfi leik og
grunnskóla, þar með taldir jóla
sálmar, helgileikir og heimsóknir
í trúar – og lífsskoðunarfélög
tengd hátíðum.
f) Skólayfirvöld beini því til
trúar og lífsskoðunarfélaga að
þau skipuleggi fermingarfræðslu
og barnastarf með það að
leiðarljósi að það hvorki trufli
lög bundið skólastarf um
skemmri eða lengri tíma.
g) Ef áfall verður í leik og
grunn skólum er unnið sam
kvæmt samþykktri áfallaáætlun
viðkomandi skóla.
h) Trúarlegar guðsþjónustur
sem tengjast viðbrögðum við
áfalli fara að öllu jöfnu fram utan
skólatíma.
Rísi ágreiningur um túlkun
þessara reglna úrskurðar
Fræðslu þjónusta í þeim efnum.
Fræðsluþjónustu er jafnframt
falið að skipa nefnd sem meti
reynslu af reglunum innan eins
árs frá setningu þeirra og leggi
mat á álitamál sem upp kunna að
koma. Um setu í nefndinni verði
m.a. leitað til fulltrúa úr leik og
grunnskólum, foreldra auk full
trúa trúar og lífsskoðunar félaga.
1 Lífsskoðunarfélag er félag
sem byggist á siðferði og lífs
skoð unum óháð trúarsetn ing um
og tengja má við þekkt hug
mynda kerfi í heimspeki og
siðfræði.“
Umdeildar reglur samþykktar
Viðmiðunarreglur um samskipti leik- og grunnskóla
Hafnarfjarðar við trúar- og lífsskoðunarfélög.Sú leið hefur verið farin af hálfu Hafnarfjarðarbæjar að
veita tæplega helmingi 17 ára
ungl inga sem sóttu um vinnu hjá
Hafnarfjarðarbæ 100% starf en
rúmlega helmingi þeirra 0% starf
á meðan Kópavogur
hefur veitt öllum 17 ára
unglingum starf sem
sóttu um hjá bænum,
en Kópavogur er álíka
skuldsettur og Hafnar
fjörður. Sem foreldri
furða ég mig á afhverju
Hafnarfjarðarbær hafi
ekki frekar farið þá leið
að veita öllum 17 ára
ungl ingum 50% starf.
Ég hef einnig velt því fyrir mér
hvernig þeir hafi verið valdir
sem fengu vinnu. Var tilviljun
látin ráða eða eitthvað annað og
þá hvað? Ég hef ekki séð neinar
upplýsingar um það sem mér
finnst benda til skorts á gagnsæi
í kerfinu.
Það er mikilvægt fyrir alla að
vera virkur meðlimur í sam félag
inu. Virkni hefur jákvæð áhrif á
líðan og sjálfsmat og dregur úr
líkum á þunglyndi og öðrum
geð rænum vandkvæðum. Það að
hafa markmið og tilgang þegar
maður vaknar á morgnana er
gríðarlega mikilvægt. Annars er
hætt við að sólarhringurinn snú ist
við, sérstaklega meðal ungl inga.
Tölvunotkun getur aukist mjög
meðal unglinga sem ekkert hafa
fyrir stafni allt sumarið og hætt an
á tölvufíkn eykst þar með.
Ef sveitarfélög eru ekki tilbúin
til þess að koma til móts við
þarfir allra ungl inga sem þurfa á
vinnu að halda yfir sumartímann,
hlýtur að þurfa að endurskoða
lengd sumarfría fram halds
skólanna. Sumar fríið er
einfaldlega of langt
fyrir framhalds skóla
nemendur sem ekki fá
vinnu. Sam félagið er
að breytast og mun
minna er um vinnu fyr
ir þennan aldurs hóp.
Marg ir atvinnurek end
ur ráða ekki einstakl
inga und ir 18 ára aldri.
Sem foreldri greip ég
til þess ráðs að skrá son minn í
sumarnám (í samráði við hann),
svo að sumarið nýttist hon um
eitthvað. Slíkt nám er þó í formi
fjarnáms og krefst þ.a.l. talsverðs
sjálfsaga af hálfu ungl ingsins og
aðhalds af hálfu for eldra. Auk
þess kostar slíkt nám tugi þús
unda á meðan ungling urinn fær
heldur enga innkomu. Því er
aug ljóst að þessi leið er ekki fyrir
alla unglinga sem ekki fá vinnu
eða fjölskyldur þeirra. Ég vil því
hvetja Hafnarfjarðarbæ til að
endurskoða ákvarðanir sínar um
sumarstörf 17 ára unglinga fyrir
næsta sumar og hafa velferð
unglinga og fjölskyldna þeirra
betur í huga þegar ákvarðanir eru
teknar um hverjir fá sumarstörf
hjá Hafnarfjarðarbæ.
Höfundur er móðir og
félagsráðgjafi.
Unglingar sem „mæla götur“
í sumar
Freydís Jóna
Freysteinsdóttir
Slappaðu af með fjölskyldunni á Hótel Örk – kynntu þér tilboðin á hotelork.is
Breiðumörk 1c, 810 Hveragerði / www.hotelork.is / info@hotel-ork.is / sími: 483 4700
Að skarta þjóðbúningum er
afar viðeigandi og hátíðlegt á 17.
júní þjóðhátíðardegi okkar
Íslend inga og því eru Hafn
firðingar hvattir til að prúðbúast
og hittast í þjóðbúningakaffi í
Gúttó, Suðurgötu 7 kl. 12.15.
Þar verður boðið upp á aðstoð
við að festa húfur, setja upp sjöl
og fleira sem tengist þjóðbún
ingunum. Þaðan verður gengið
saman að Hellisgerði þar sem
hátíðardagskrá hefst 13.30.
Skrúð ganga fer af stað frá Hellis
gerði um kl. 14 en þeir sem ekki
treysta sér í langa göngu geta
sam einast göngufólki við Strand
götu/Lækjargötu og gengið að
hátíðasvæðinu á Víðstaðatúni.
Á nýliðnum Björtum dögum
var haldin þjóðbúningakynning í
Gúttó í boði Annríkis – Þjóð
búningar og skart, sem er í eigu
Ásmundar Kristjánssonar vél
virkja og gullsmíðanema og
Guð rúnar Hildar Rosenkjær
klæðskera/ kjólameistara og
sagn fræðinema. Kynningin
mælt ist afar vel fyrir, en þar voru
til sýnis fjöldi búninga s.s. fald
og skautbúningar, kyrtlar, upp
hlutir, peysuföt, herrabúningar
og barnabúningar en nemendur
Guðrúnar Hildar í þjóðbúninga
saum sýndu einnig verk sín og
fræddu gesti um handverkið.
Þróunarsaga ís lenskra
þjóðbúninga er löng og afar
merkileg og því áríðandi að
viðhalda og kenna komandi
kynslóðum handverkið sem og
söguna. Í haust er ætlunin að
bjóða Hafnfirðingum sem öðrum
upp á námskeið í þjóð bún inga
gerð á vegum Annríkis en leið
beinandi auk Guðrúnar Hildar
verður Olga Kristjáns dóttir
kjóla sveinn. Einnig verður
kennd baldýring og annað hand
verk sem tilheyrir búningunum
og verða námskeiðin auglýst
frekar þegar líður að hausti, en
einnig geta áhugasamir haft
samband í annriki@simnet.is.
Í þjóðbúningi 17. júní
Þjóðbúningakaffi í Gúttó
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n