Fjarðarpósturinn - 13.12.2012, Blaðsíða 6
6 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 13. desember 2012
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins
lögðu fram ýmsar tillögur í bæjar
stjórn í síðustu viku.
Betri nýting skólahúsnæðis
Lagt er til að leitað verði leiða
til að leysa húsnæðisvanda við
Áslands og Hraunvallaskóla með
öðrum hætti en viðbyggingum.
Lagt til að húsnæði í öðrum skól
um bæjarins eða nálægum mann
virkjum verði nýtt tímabundið.
Þróunarverkefni í Engidals
skóla fyrir 210 ára börn
Lagt er til að ráðist verði í þró
unar verkefni í starfsstöð Víði
staða skóla í Engidal. Þar verði
starf ræktur skóli fyrir 210 ára
börn sem færi fyrir þró unarstarfi á
afmörkuðum sviðum. Skólinn
hefði það að leiðarljósi að starfa
eftir nýjum grunnþáttum í mennt
un og lykilfærni. Ennfremur yrði
skól inn forystuskóli á sviði upp
lýs inga tækni þar sem sérstakt þró
un arverkefni yrði mótað um notk
un rafrænna kennslugagna.
Sameining Hafnarfjarðar
hafnar og Faxaflóahafna
Sjálfstæðismenn vilja hefja við
ræður við forsvarsmenn Faxaflóa
hafna um hugsanlega kosti sam
einingar Hafnarfjarðarhafnar og
Faxaflóahafna, eða að samstarf
hafn anna verði aukið til muna.
Mark miðið væri fjárhagslegur
ávinn ingur í formi hagræðingar,
auk innar atvinnu og aukinna tekna
fyrir bæjar félagið.
Samningi um ræstingu í
grunn skólum verði sagt upp
Lagt er til að skólaliðar og í
einhverjum tilvikum húsverðir og
stuðningsfulltrúar taki við ræst
ingu í skólum og starfsfólki
fjölgað og samingi um ræstingu
sagt upp. Sparnaðurinn við þessar
breytingar gæti numið um 100
milljónum króna á ársgrundvelli.
Hagkvæmnigreining við
úthlutun lóða á Völlum 7
Lagt er til að fjármálastjóri að
hafi umsjón með gerð greiningar
á hagkvæmni og kostnaði við
uppbyggingu nýs íbúðahverfis á
Völlum 7.
Hagræðing í stjórnsýslu
Lagt er til að hægræða í stjórn
sýslu Hafnarfjarðarbæjar. Sam
ein ing skipulags og byggingar
sviðs og umhverfis og fram
kvæmda sviðs verði tekin til skoð
unar. Einnig hvort leggja megi
niður nýtt starf sviðsstjóra
stjórnsýslusviðs. Ennfremur verði
íþrótta og tómstundanefnd lögð
niður og málaflokkurinn tekinn
því beint inn í fjölskylduráð
Tillögurnar eiga að spara á
annan milljarð króna á 5 árum.
Minnihlutinn lagði fram margar tillögur
Öllum vísað til nánari skoðunar í bæjarráði
Hátíð Hamarskotslækjar var
haldin hátíðleg í fyrsta skipti
12. desember 2010 í Hafnarfirði.
Þá voru nákvæmlega 106 ár
liðin frá því að Jóhannes
Reykdal kveikti rafljós í 16
húsum í Hafnarfirði. Þáttaskil
urðu í sögu þjóðarinnar þegar
Reykdalsveitan, fyrsta almenna
rafveitan á Íslandi tók til starfa.
Meðal þessara 16 húsa sem
fengu raflýsingu, var fyrsta
verksmiðjan sem var raflýst,
fyrsta skólastofnunin, fyrsta
samkomuhúsið ásamt heimili
frumkvöðulsins Jóhannesar.
Á sunnudaginn verður Há tíð
Hamarskotslækjar hald in í
þriðja sinn.
Kl. 13 – Kaldárhlaup, Víða
vangshlaup 10 km:
Hlaupaleiðin er farvegur
Ham ars kotslækjar. Rásmark:
Kaldárbotnar/Kaldársel, hlaup
ið meðfram og eftir Kald ársels
vegi að Lækjarbotnum og síð an
eftir göngustíg meðfram Ham
ars kotslæk, lokamark við Jóla
þorpið, Thorsplani. Verð laun og
viðurkenningar strax að hlaupi
loknu á sviði Jóla þorpsins. Sjá
nánar á hlaup.is
Kl. 1718 – Góðtemplarahús
Hafnarfjarðar við Suðurgötu:
Fyrirlestur og kvikmynda
sýning um virkjun Hamars kots
lækjar í Hafnarfirði og frum
kvöðulinn Jóhannes Reykdal.
Steinunn Guðnadóttir meistara
nemi í mennta og menningar
stjórnun og Halldór Árni
Sveins son kvikmynda gerða
maður.
Kl. 1719 – Sögubrot um raf
væðinguna í Gúttó:
Góðtemplarahús Hafnar
fjarðar við Suðurgötu var eitt af
fyrstu húsum Hafnar fjarðar
sem voru raflýst þann 12. de s
em ber 1904. Sögu sýningin seg
ir frá frum kvöðl inum sem lýsti
upp Hafnarfjörð ásamt þróun
Vatnsveitu Hafnar fjarðar.
Hátíð Hamarskots
lækjar á sunnudag
10 km hlaup, fyrirlestur og sögusýning
Hjónin Þórarinn Þórhallsson
ostagerðarmeistari og María R.
Ólafsdóttir opnuðu Ostahúsið
28. nóvember 1992 í nýju húsi
við Thorsplanið. Þetta var
sérverslun með osta, veislu
þjón ustu, ostakörfur o. fl. ásamt
fram leiðslu á ostarúllum, fyllt
um brieostum og desertum fyrir
verslanir. Fljótlega varð það
húsnæði of lítið og Osta húsið
var um nokkurra ára skeið í
húsnæði gömlu Bæjar útgerð
arinnar en flutti svo í húsnæði
Drafnar við Strand götu. Þar
starfaði fyrirtækið og dafnaði
þar til 2006 er það sameinaðist
fyrir tækinu Í ein um grænum,
sem er dótturfélag Sölufélags
garðyrkju manna. Fluttist þá
fyrirtækið að Brúarvogi 2 í
Reykjavík.
Að sögn Þórarins hefur sam
starfið verið mjög farsælt.
Vöru þróun hefur verið mikil
sem hefur skilað sér m.a. í stór
auknu framboði á vörum til
neytenda og einnig stóreldhúsa
og mötuneyta.
Á 20 ára afmæli Ostahússins
var tímamótunum fagnað að
sjálfsögðu með góðri ostaveislu.
Ostahúsið 20 ára
Var fyrstu 12 árin í Hafnarfirði
Taktu þátt í ET leiknum á
endurvinnslutunnan.is
Þú gætir unnið iPad mini
Hjónin María R. Ólafsdóttir og Þórarinn Þórhallsson.
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Hafnfirsku systurnar Sonja og
Henný Magnúsdætur eiga og
reka Lolita.is sem er tískuverslun
og netverslun að Trönuhrauni 2
hér í bæ. Þær segjast hvergi
annars staðar vilja vera með
verslunina og hafa metnað fyrir
að efla verslun í Hafnarfirði.
„Lolita.is selur fallegan
fatnað, mikið úrval af fallegu
skarti og fylgihlutum alls staðar
að úr heiminum og við leggjum
áherslu á að hafa úrvalið fjöl
breytt og góð verð,“ segir Sonja.
Fötin henti fyrir alla aldurshópa
og koma í stærðum XSXL. Í
versluninni má meðal annars
finna vörur sem eru hvergi
annars staðar seldar á Íslandi að
sögn Sonju og það kunna konur
að meta enda sé kúnnahópurinn
orðinn mjög stór.
Hægt er að skoða vörurnar á
www.lolita.is og á facebook
undir „Lolita.is – Netverslun“.
Hefðbundinn opnunartími versl
unarinnar er þriðjudagaföstu
daga kl. 1418 og laugar daga kl.
1216 en þær systur bjóða einnig
upp á að halda stelpukvöld í
versluninni þar sem vinahópar,
saumaklúbbar eða aðrir hópar
hafa verslunina út af fyrir sig. Þá
eru í boði léttar veitingar og ráð
legg ingar um fatakaup og eru
allar vörur í versluninni á af
slætti. Ein stakl ingar geta einnig
bókað tíma með eigendum versl
unar innar utan hefðbundins opn
un ar tíma og fengið þar persónu
lega ráð gjöf. Þeir sem vilja bóka
stelpu kvöld eða einstakling ráð
gjöf geta haft samband á lolita@
lolita.is.
Tískuverslun í miðju iðnaðarhverfi
Vefverslun systranna Sonju og Hennýar hefur vafið upp á sig
Systurnar Sonja og Henný Magnúsdóttur í Lolitu.