Prentarinn - 01.01.1981, Page 1
Teikningunni hér að ofan, sem er eftir Meistara Jóhannes S. Kjarval er
fyrst og fremst ætlað að gleðja augu lesenda Prentarans, en við viljum
jafnframt með myndinni vekja athygli félagsmanna á því að blaðið vill
gjarna birta myndir eftir félagsmenn. Þeir sem áhuga kunna að hafa eru
beðnir að snúa sér til skrifstofu félagsins.
nrentarinn
m MÁLGAGN FÉLAGS BÓKAGERÐARMANNA
1.-1.’81
Nýr Prentari —
nýtt blað
í allri umræðu um stofnun Fé-
lags bókagerðarmanna var
ævinlega gert ráö fyrir því að
við sameiningu félaganna 3ja
gæfust stórauknir möguleikar á
því að auka útgáfustarfsemina.
Það er óhagganleg stað-
reynd að aukið upplýsinga-
streymi til félagsmanna er for-
senda þess að virkni aukist í
félaginu og að félaginu takist
að verða öflugt í baráttunni fyrir
bættum lífskjörum.
Það er nú einlægur ásetn-
ingur okkar sem störfum í
stjórn FBM að auka þetta upp-
lýsingastreymi til félagsmanna
og skal það m. a. gert með því
að auka útgáfu „Prentarans,
málgagns FBM".
Eins og félagsmenn GSF og
HÍP rekur minni til var komin all-
góð regla á útgáfu svokallaðra
„Félagsbréfa".
Það er mat okkar að félags-
bréfin hafi gefist vel og að þau
hafi þjónað vel tilgangi sínum.
Engu síður er nú ákveðið að
hætta útgáfu þeirra en þess í
stað er ákveðið að gera tilraun
til þess að gefa Prentarann út
mánaðarlega og að hann taki
þannig yfir útgáfu félagsbréf-
anna og flytji félagsmönnum
ferskar fréttir af gangi mála.
Til þess að Prentarinn megi
þjóna tilgangi sínum er
nauðsynlegt að félagsmenn
skrifi í hann og komi á framfæri
þeim hugmyndum og spurn-
ingum sem eru að brjótast með
þeim. Ekki er nauósynlegt að
menn skrifi langar greinar til
þess að koma skoðunum sínum
á framfæri og í mörgum tilvik-
um eru mál þannig vaxin að
nægja ætti að hafa samband
við skrifstofuna og hún mundi
síðan koma því áleiðis í blaðið,
við viljum hvetja alla félags-
menn til að taka þátt í upp-
byggingu blaðsins og gera það
að lifandi umræðuvettvangi.
Eitt af því sem reynt verður
að leggja ríka áherslu á í blað-
inu auk hinna félagslegu þátta
eru tæknimálefni. Það verður
reynt að birta greinar í hverju
blaði um nýjungar í tækninni
jafpframt sem leitast verður við
að fjalla um þær félagslegu af-
leiðingar sem oft og iðulega eru
samfara tækninýjungum.
—mes.