Prentarinn - 01.01.1981, Blaðsíða 9

Prentarinn - 01.01.1981, Blaðsíða 9
Alþýðusamband íslands - Á FBM að vera með? Þegarstofnun Félags bókagerðarmanna var ákveðin var jafnframt ákveðið að allsherjaratkvæðagreiðsla réði úrslitum um það livort félagið yrði aðili að Alþýðusambandi Islands. Stjórn FBM hefur nú ákveðið að þessari allsherjar- atkvæðagreiðslu verði lokið þann 6. mars n. k. Eins og öllum er kunnugt eru all- skiptar skoðanir á því hvort félagið eigi að verða aðili að ASÍ. Á stjórnarfundi var ákveðið að gefin skyldi út greinar- gerð með kjörseðlum frá ágreinings- aðilum og var Arsæli Ellertssyni falið að gera greinargerð gegn aðild og Magnúsi Einari Sigurðssyni var falið að gera greinargerð með aðild að ASÍ. Þótt þessum tveimur mönnum hafi verið fal- ið að semja þessar greinargerðir þá er ekki þar með sagt að þeir óski ekki eftir samvinnu í því máli og eru þeir sem áhuga kunna að hafa á því að taka þátt í þessu starfi beðnir að snúa sér til þeirra Ársæls og Magnúsar. Auk þessara greinargerða er stefnt að því að boða til félagsfundar þann 8. febrúar n. k. svo menn geti skipst á skoðunum um Alþýðusamband íslands og gildi þess. Það er ástæða til þess að hvetja alla félagsmenn til að leiða hug- ann að þessum málum og til að taka þátt í þeim skoðanaskiptum sem framundan eru. Vinnustaðafundir Stjórn félagsins ákvað að efna til vinnu- staðafunda á Akureyri og fóru þeir Magnús Einar Sigurðsson, Ómar Harðarson og Svanur Jóhannesson norður. Byrjað var á því að halda fund í Skjaldborg. þá var haldinn fundur i Valprenti og síðast í Prentverki Odds Björnssonar. Allir fundirnir heppnuðust vel, menn skiptust á skoðunum um þau mál sem hæst ber í félaginu nú. Við höfum nú orðið nokkra reynslu af því að halda vinnustaðafundi og er það samdóma álit allra sem þeim hafa kynnst að þeir séu ákaflega mikilvægir og beri að fjölga þeim. í þessu sambandi er rétt að geta þess að mikilvægi þeirra liggur ekki einungis í því að með þeim gefst tækifæri til að ná til allra t við- komandi fyrirtæki og koma á framfæri upplýsingum um málefni félagsins. Það sem gerir þessa fundi ef til vill ennþá mikilvægari er að svo margir félags- menn taka til máls á þeim og láta í Ijós skoðanir sínar á hinum ýmsu sviðum og þannig fær stjórn félagsins öruggari vitneskju um hver vilji félaganna er í þeim málum sem verið er að fást við hverju sinni. Það er meiningin að fjölga þessum fundum og nota helst til fulls heimild i kjarasamningum þar um. Gott væri að óskir um svona fundi berist til skrifstof- unnar í meira mæli en hingað til. Styrkir vegna náms Stjórn FBM ákvað að notfæra sér heimild í reglugerð Menningar- og utanfararsjóðs GSF til að setja eindaga á umsóknir um styrk úr sjóðnum. Ástæða þessa er reynsla stjórnar GSF af úthlutun úr sjóðnum. en hingað til hefur reynst vandkvæðum bundið að tryggja að fjármagn sjóðsins endist allt árið. Sömuleiðis ákvað stjórn FBM að um- sóknir um styrk úr Styrktar- og trygg- ingasjóði FBM vegna náms (sjá 8. gr. reglugerðar sjóðsins) skyldu berast fyrir sömu eindaga og ákveðnir eru hjá Menningar- og utanfararsjóði GSF. Stjórnin ákvað að eindagar umsókna skyldu í þessum sjóði verða tveir á ári hverju, 1. mars og 1. október. Umsókn- um skal fylgja vottorð frá viðkomandi fræðslustofnun. skóla eða verksmiðju. um að umsækjandi hafi verið skráður á minnst viku námskeið. Upphæð styrks hefur ekki verið ákveðin en gera má ráð fyrir að miðað verði við flugfargjald fram og til baka til Kaupmannahafnar, sé um utanferðir að ræða. Trúnaðarmenn á vinnustöðum Áformað er að kosning trúnaðarmanna FBM á vinnustöðum fari fram svo fljótt sem verða má. en nokkur undirbún- ingsvinna er fyrirsjáanleg áður en hún getur farið fram. Fram að þeim tíma verða trúnaðarmenn gömlu félaganna að halda áfram störfum. Á þeim stöðum sem fleiri en einn trúnaðarmaður er væntum við þess að þeir starfi saman að úrlausn mála. Kosning í Trúnaðarmannaráð FBIVI Frestur til að skila uppástungum í Trúnaðarmannaráð Félags bókagerðar- manna rann út föstudaginn 5. desember 1980. Uppástungur bárust um 41 félags- mann á 4 listum. Tólf uppástungur af iðnsviði GSF, þrettán uppástungur af iðnsviði BFÍ og sautján af iðnsviði HÍP. Stjórn FBM ákvað að skipa kjörnefnd er úrskurðaði um Iögmæti listanna, í nefndina völdust Bragi Jónsson, Her- mann Aðalsteinsson og Sigurður Guð- geirsson. Nefndin hélt einn fund og komst hún að þeirri niðurstöðu að allir listarnir væru lögmætir. Áformað er að kosningunni verði lokið 6. febrúar. Útdráttur úr fundargerðum stjórnar FBM 19. nóvember1980 1. Starfsmönnum falið að ganga frá auglýsingu um frest til að skila uppástungum um menn í Trúnað- armannaráð FBM. Skilafrestur ákveðinn til kl. 17.00 þann 5. desember. 2. Samþykkt að afgreiða um aðild að Alþýðusambandinu fyrir ASÍ fyrir áramót. Kosningin verði yfirstaðin fyrir kl. I7, 12. des. PRENTARINN 1.-1 ’81 9

x

Prentarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Prentarinn
https://timarit.is/publication/952

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.