Prentarinn - 01.01.1981, Síða 12

Prentarinn - 01.01.1981, Síða 12
Úr lögum um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum II. KAFLI öryggis- og heilbrigðisslarfscmi innan fvrirtækja. Samskipti atvinnurekenda og starfsmanna. 4. gr. í fyrirtækjum. þar sem eru 1 til 9 starfs- menn. skal atvinnurekandi og/eða verkstjóri hans stuðla að góðum aðbúnaði, hollustuháttum og öryggi á vinnustað. i nánu samstarfi við starfsmenn fyrirtækisins og félagslegan trúnað- armann þeirra. sbr. þó 2. mgr. þessarar greinar. Forstjóri Vinnueftirlits rikisins getur þó ákveðið. ef þurfa þykir. að fyrirkomulag það. sem getið er um i 5. gr.. gildi einnig fyrir starfshópa. sem getið er í þessari grein. þegar sérstakar að- stæður eru fyrir hendi. sbr. til dæmis 40. og 44. gr. laga þessara. 5. gr. í fyrirtækjum, þar sem eru 10 starfsmenn eða fleiri. skal atvinnurekandi tilnefna einn aðila af sinni hálfu öryggisvörð og starfsmenn skulu tilnefna annan úr sínum hópi öryggistrúnaðar- mann. Þeir skulu í samvinnu fylgjast með þvi. að aðbúnaður. hollustuhættir og öryggi á vinnustað séu í samræmi við lög þessi. 6. gr. 1 fyrirtækjum. þar sem eru 50 starfsmenn eða fleiri. skal stofna öryggisnefnd. Starfsmenn kjósa úr sínum hópi tvo fulltrúa og atvinnurek- andi tilnefnir tvo fulltrúa. Þessi nefnd skal skipuleggja aðgerðir varðandi aðbúnað. holl- ustuhætti og öryggi innan fyrirtækisins, annast fræðslu starfsmanna um þessi efni og hafa eftirlit á vinnustöðum með því. að ráðstafanir er varða aðbúnað. hollustuhætti og öryggi komi að tilætl- uðum notum. Þegar starfsmenn Vinnueftirlits ríkisins koma i eftirlitsferðir i fyrirtæki. skulu þeir hafa samband við atvinnurekanda eða umboðsmann hans. öryggistrúnaðarmann starfsmanna. félagslegan trúnaðarmann starfsmanna. sbr. 1. mgr. 4. gr.. og við öryggisnefndir. þar sem þær eru starfandi. Nefndum aðilum skal auðvelda. svo sem kostur er. að leggja vandamál fyrir Vinnueftirlit ríkisins. 7. gr. Stjórn Vinnueftirlits rikisins setur nánari reglur um skipulag og framkvæmd ráðstafana. er miða að auknu öryggi og bættum aðbúnaði og hollustuháttum innan fyrirtækja, svo sem um stofnun samstarfshópa og öryggisnefnda. um verkefni þeirra og um daglega stjórn þeirrar starfsemi. er lýtur að auknu öryggi og betri að- búnaði og hollustuháttum innan fyrirtækja. 8. gr. Atvinnurekanda er skylt, ef hann er ekki sjálfur í öryggisnefnd, að skipa i sinn stað aðila með fullu umboði. Atvinnurekandi skal stuðla að samstarfi þeirra. sem kjörnir eru til þess að fjalla um aðbúnað. hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum. og þeirra, sem annast heilbrigðisþjónustu. Ennfremur skal hann sjá um að þeir, sem til eru kjörnir að fjalla um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustað, og þeir, sem sitja i öryggisnefnd. fái hæfilegan tíma miðað við' verkefnasvið, til þess að gegna skyldum sínum við eftirlit með aðbúnaði, holl- ustuháttum og öryggi. Atvinnurekandi skal sjá um. að þeir. sem kjörnir eru til að fjalla um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi i fyrirtæki hans, fái tækifæri lil þess að efla sér nauðsynlegrar þekkingar og menntunar varðandi aðbúnað. hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum. Atvinnurekandi skal veita nefndum aðilum hlutdeild í skipulagningu að því er varðar að- búnað. hollustuhætti og öryggi á vinnustað. 9. gr. Atvinnurekandi ber kostnað vegna starfs að bættum aðbúnaði. hollustuháttum og öryggi og bætir þeim. sem að því vinna. tekjutap. sem af kann að hljótast. Öry'ggistrúnaðarmenn og fulltrúar starfs- manna i öryggisnefnd njóta þeirrar verndar. sem ákveðin er í 11. gr. laga nr. 80/1938 um stéttar- félög og vinnudeilur. 10. gr. Vinnueftirlit ríkisins skal sjá um. að þegar öryggi og heilbrigði starfsmanna krefst þess. standi viðkomandi fyrirtækjum til boða sérfræðileg þjónusta við störf að bættum aðbún- aði. hollustuháltum og öryggi. III. KAFLI Öryggisncfndir sérgreina. 11. gr. Setja má á fót öryggisnefndir í sérgrein- um, sem í sitja fulltrúar alvinnurekenda og starfsmanna, til þess að vinna að lausn vanda- mála, er varða aðbúnað. hollustuhætti og öryggi innan hverrar sérgreinar. Nefndir þessar skulu hljóta viðurkenningu Vinnueftirlits rikisins. Vinnueftirlit ríkisins getur átt frumkvæði að stofnun slíkra nefnda. ef stjórn stofnunarinnar þykir ástæða til. Öryggisnefndir sérgreina. sem viðurkenndar hafa verið, geta lagt fram tillögur og látið í ljós álit sitt um nýjar reglur og einstök mál. sem stjórn Vinnueftirlits rikisins ákveður að leggja fyrir þær. Stjórn Vinnueftirlits ríkisins skal. áður en hún gefur álit sitt um reglugerðir. sem fjalla sérstak- lega um ákveðnar atvinnugreinar. leita eftir áliti frá viðurkenndri öryggisnefnd viðkomandi sér- greinar. Öryggisnefndir sérgreina hafa það verkefni að gefa atvinnurekendum og starfsmönnum upp- lýsingar um þær reglur og ákvæði, sem gilda fyrir viðkomandi sérgrein. Öryggisnefndir sérgreina geta sent tillögur til stjórnar Vinnueftirlits ríkisins um breytingar á reglum. er fjalla um viðkomandi sérgrein. Stjórn Vinnueftirlits ríkisins setur að öðru leyti reglur um skipulag, verkefni. starfsemi og fjár- mögnun öryggisnefnda sérgreina. IV. KAFLI ALMENNAR SKYLDUR a. Skvldur atvinnurekenda. 12. gr. Atvinnurekandi merkir í lögum þessum hvern þann. sem rekur atvinnustarfsemi, sbr. 90. gr. laga þessara. Sé starfsemi, sem lög þessi ná til. rekin af tveim mönnum eða fleiri í sameiningu. telst aðeins einn þeirra atvinnurekandi samkvæmt þessum lögum, en hinn/hinir teljast vera starfsmenn. enda vinni hann/þeir við fyrirlækið. Skal það tilkynnt Vinnueftirliti rikisins hver sé talinn atvinnurek- andi. Framkvæmdastjóri fyrirtækis telst atvinnurek- andi i merkingu þessara laga. Auglýsingar um atvinnu Ákveóið er að gera tilraun með að birta reglulega auglýsingar um atvinnu í Prentaranum og er það hugsað þannig að sjálfsögðu að félagsmenn geta sett inn auglýsingar auk þess sem þessi auglýsingadálkur er oþinn fyrir atvinnu- rekendur. Prentsmiðju úti á landi vantar þressumann — Offsetþrentara — Hæðaprentara Þeir sem áhuga kunna að hafa snúi sér til skrifstofu FBM — Sfmi 16313. Frá Lífeyrissjóði bókagerðarmanna Lífeyrissjóðurinn vekur athygli trúnaðarmanna og annarra sjóðfélaga á eftirfarandi á- kvæði í lögum um lífeyrissjóði og reglugerð sjóðsins: Lífeyrir greiðist mánaðarlega fyrirfram, í fyrsta sinn mánuði eftir, er laun voru síðast greidd, og í síðasta sinn fyrir þann mánuð er réttur til lífeyris fellur úr gildi. Aldrei skal þó sjóðsstjórn skylt að úrskurða lífeyri lengra aftur í tímann en tvö ár, reiknað frá byrjun þess mánaðar er umsókn berst sjóðnum. Frestur til að skila inn efni Ef að takast á að gefa Prentar- ann út reglulega er nauðsyn-. legt að setja eindaga á hvenær efni skuli berast til birtingar í næsta blað. Frestur til að koma inn efni í næsta blað rennur út 15. febrúar n. k. TIL ÞÁTTTAKENDA á trúnaðarmannanámskeiði BFÍ, GSF og HÍP 1980 Ákveðið er að þeir sem tóku þátt í trúnaðarmannanámskeiði BFÍ, GSF og HÍP 1980 hittist í Félagsheimili FBM að Hverfis- götu 21, laugardaginn 14. febrúar nk. kl. 14. — Mætum öll. 12 PRENTARINN 1-1,81

x

Prentarinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Prentarinn
https://timarit.is/publication/952

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.