Prentarinn - 10.03.1990, Blaðsíða 12
Starf eldri
félaga
Um nokkurra ára skeiö
hefur veriö efnt til einnrar
ferðar á sumri fyrir eldri fé-
lagsmenn og jafnframt hefur
verið haldinn einn fundur í
desember. Þetta framtak fé-
lagins hefur mælst vel fyrir
og hafa bæði ferðirnar og
fundirnir verið fjölsóttir og er
það eftilvill vísbending um að
auka mætti þetta starf eldri
félagsmanna. í bróðurfélög-
um okkar á Norðurlöndunum
er töluvert öflugt starf hjá
þeim félögum sem komnir
eru á eftirlauna aldur, stað-
reyndin er nefnilega sú að
eldri félagsmönnum, eldra
fólki veitir svo sannarlega
ekki af að standa vörð um
hagsmuni sína. Meðfylgjandi
myndir eru teknar á fundi
eldri félaga í desember s.l.
Formanns-
kjör
Frestur til að skila inn tillögum til
formanns í félaginu rann út 10. jan-
úar s.l. Einungis var stungið upp á
núverandi formanni félagsins, Þóri
Guðjónssyni. Hann er því sjálfkjör-
inn formaður félagsins til næstu
tveggja ára, en hann tók við for-
mennsku í því árið 1988.
Þórir á námskeiði fyrir trúnaðarmenn í
Ölfusborgum
Trúnaðar-
mannaráð
Meðfylgjandi myndir eru teknar á
fundi í Trúnaðarmannaráði félags-
ins. Oft áður hefur verið fjallað um
það hversu mikilvægu hlutverki
trúnaðarmannaráðið gegnir og
hversu völd þess í félaginu eru
mikil, en góð vísa er aldrei of oft
kveðin og því eru félagsmenn
hvattir til að fylgjast með störfum
ráðsins og þeir sem í því eru hvattir
til að sinna þar störfum að fullri ein-
urð.
.1
13