Verktækni - 01.06.1997, Síða 1
Stéttarfélag verkfræðinga • Tæknifræðingafélag íslands
Verkfræðingafélag íslands • 8. tbl. 3.árg. júní 1997
Arnbjörg hætt
Ambjörg Edda hefur eignast marga vini í röðum
verkfræðinga og hennar verður saknað. Arnbjargarskeiðið er
líka þegar orðið sérstakur kafli í sögu félagsins.
Nú þegar Arnbjörg Edda Guðbjömsdóttir lætur af starfi
framkvæmdastjóra VFÍ, vill stjóm félagsins færa henni
alúðarþakkir fyrir hennar mikla og óeigingjarna starf í þágu
félagsins og óska henni og fjölskyldu hennar heilla um
ókomin ár. Pétur Stefánsson formaður VFI
Hinn 1. júní s.l. lét Arnbjörg Edda Guðbjöms-
dóttir af starfi framkvæmdastjóra VFÍ og TFÍ að
eigin ósk. Raunar sagði hún starfi sínu lausu frá og
með 1. desember s.l. en féllst á þau eindregnu
tilmæli formanna félaganna að gegna starfinu út
félagsárið og þar til vetrarstarfinu lyki.
Ambjörg Edda tók við framkvæmdastjórastarfi
VFÍ í desember 1988. Þá voru miklir erfiðleikar í
rekstri félagsins, miklar skuldir eftir húsbyggingu
og lán í vanskilum. Arnbjörg hóf þegar endur-
reisnarstarfið af sinni alkunnu elju og mátti á næstu
árum oft sjá ljós í Verkfræðingahúsi fram á nætur.
Mun vart ofmælt að Arnbjörg hafi í félagi við
þáverandi formenn og stjórnir félagsins unnið
þrekvirki við að endurreisa fjárhag félagsins.
Hlutur hennar í hinni öflugu stöðu VFÍ í dag með
skuldlausa húseign og drjúgan sjóð er því
ótvíræður.
Reglusemi í fjármálum fylgir gjarnan reglusemi
Arnbjörg Edda GuSbjörnsdóttir framkvœmdastjóri VFÍ og
TFI lét af störfum I. júní. Er hennar sárt saknað. Hér faðmar
hana Brynja Guðmundsdóttir fv. stjórnarmaður í VFI.
(Ljósmynd Birgir Jónsson)
á öðrum sviðum. Arnbjörg er einstök reglu-
manneskja á pappír. Skrifstofurekstur VFÍ hefur
því í hennar tíð verið um flest til fyrirmyndar,
bréfum svarað strax og hvert skjal á sínum stað.
Dugnaður og reglusemi er kannski það sem fyrst
kemur í hugann þegar horft er yfir
„Arnbjargarskeiðið“ í sögu félagsins.
Frá árinu 1994 hefur Ambjörg einnig gengt
framkvæmdastjórastarfi TFI. Ekki er að efa að
þessi ár hafi verið erilsöm, þó aldrei væri orð á
gert. Nú þegar Ambjörg kýs að láta af starfi hefur
hún margítrekað að það sé ekki af neinskonar
óánægju með menn eða málefni, þvert á móti hafi
hver dagur verið henni til gleði. Tíminn sé bara
einfaldlega kominn.
Við viljum gjaman trúa þessu og hljótum að
virða hennar ákvörðun. Okkar vandi verður hins
vegar að finna verðugan arftaka, en sú leit stendur
einmitt sem hæst.
Ásta Malmquist
Sigurður Þorvaldsson
Ólafur Einarsson
Landsbanki
íslands
/ forystu til framtiðar
Fimm ástæður
til að skipta um banka
1. Persónuleg og hröð þjónusta
Símabankinn veitir alhliða bankaþjónustu á persónulegan hátt.
Við svörum þegar þú hringir og sinnum öllum þínum málum hratt og örugglega,
án þess að þú þurfir nokkurn tíma að fara í bankann.
2. Hagræöi og þægindi
Engar biðraðir - enginn akstur eða hlaup. Með einu símtali getur þú gengið frá bankaviðskiptum
þínum - hvar sem þú ert, hér á landi og erlendis.
3. Hærri innlánsvextir og lægri útlánsvextir
Vegna þess hagræðis sem fylgir því að hafa ekkert útibú og hraða afgreiðslu bjóðum við
hærri innlánsvexti og lægri útlánsvexti en aðrir bankar.
4. Opið lengur
Nú getur þú gengið frá bankaviðskiptum þinum, með einu símtali, áður en þú leggur af stað
til vinnu eða eftir að þú kemur heim.
Við höfum opið frá klukkan átta á morgnana til klukkan sjö á kvöldin.
5. Gagnkvæmt traust og öryggi
I Símabankanum leggjum við áherslu á persónulegt samband við viðskiptavini okkar.Við
lánveitingar b/ggjum við mat okkar fyrst og fremst á greiðslugetu.fjárhagsstöðu og
viðskiptasögu lántakenda sjálfra - ekki á ábyrgðarmönnum.
Símabankinn er í eigu Landsbanka íslands sem tryggir öryggi sparfjár þíns.
Sí ma ba n ki
- allt annaö líf
hringdu núna!
Opið virka daga kl. 08.00 - 19.00 • PÓSTFANG: simabanki@lais.is • VEFFANG: http://www.lais.is/simabanki
________________________________________________________________________________________________________________
OPIN KERFI HF
Höfðabakka 9 112 Reykjavík Sími: 570 1000 Fax: 570 1001