Verktækni - 01.06.1997, Page 4

Verktækni - 01.06.1997, Page 4
VERKTÆKNI Hinn 25. apríl s.l. stóð VFÍ fyrir skoðunarferð í Hvalfjarðar- göng. Farið var með hópferðarbíl frá Verkfræðingahúsi kl. 15.30 og komið að bækistöðvum Fossvirkis og Spalar við suðurmunna gang- anna upp úr kl. 16. Þátttakendur, sem voru milli 50 og 60, settust nú í boði heimamanna inn í matsal og hlýddu á fróðlegan fyrirlestur Hermanns Sigurðssonar, staðar- stjóra Fossvirkis. Eftir fróðlegar umræður var svo haldið niður í göngin í 60 manna rútunni sem fór hátt á annan km inn í göngin. Þaðan var gengið inn að stafni ganganna, en svo vildi til að þessa helgi náðu göngin 2/3 af væntanlegri gangalengd, eða um 3,6 km. samanlagt að norðan og sunnan. Eftir nokkra dvöl við ganga- stafn var haldið í félagsheimili Kjalnesinga, Fólkvang, þar sem Fossvirki bauð til hófs í samvinnu við Kjalameshrepp. Páll Sigur- jónsson forstjóri Istaks bauð gesti velkomna í hófið, sem fór hið besta fram og voru veitingar hinar glæsilegustu, bæði í föstu og íljótandi formi. Komu menn sælir og ánægðir í bæinn nokkru eftir sjónvarpsfrétir. Horft norður yfir Hvalfjörð á gangasvœðinu. Cangamunninn hérna megin er á hak við tvílyfta skrifstofuhúsið á miðri mynd. Munninn norðan megin er undir háu myndinni sjást stórir haugar afefni sem hefur komið út úr göngunum. Ræða Eiríks Briem fyrir 30 árum í veglegu samkvæmi í boði Fossvirkis í Fólkvangi, félags- heimili Kjalnesinga, rifjuðu Páll Sigurjónsson forstjóri ístaks og Einar B. Pálsson prófessor, upp skemmtilega fræðsluferð á vegum Verkfræðingafélagsins austur í Búrfellsvirkjun fyrir 30. árum, er sú virkjun var í byggingu. Eftir að framkvæmdir við Búrfell höfðu verið skoðaðar, var farið niður í félagsheimilið Ames þar sem boðið var upp á veitingar. Á þeirri samkomu átti Eiríkur Briem forstjóri Landsvirkjunar að halda erindi um: “ Orkumál Islands í fortíð, nútíð og framtíð”. Ræðan var einhvem veginn á þessa leið, eftir frásögn þeirra Páls og Einars. “Þið vitið allir hvað gert hefur verið hingað til í orkumálum Islands. I dag hafið þið svo séð hvað verið er að gera núna í orkmálum Islands. Um framtíðina í orkumálum fslands veit svo ekki nokkur maður!”. Svo mörg voru þau orð og varla þarf að taka fram að ræðan féll í góðan jarðveg austur í Ámesi, og ekki var annað að sjá en að ný kynslóð verkfræðinga í Fólkvangi kynni einnig að meta ræðu Eiríks. f umræðum um ræðuna mátti meðal annars heyra að hún hafi verið hnitmiðuð og sérstaklega “verkfræðileg”. BJ Hvalfjarðargöng Ekki BOT, BOOT eða BOOST, heldur fyrsta BIGFOOT mannvirkið Á síðasta áratug hefur það mjög aukist að ýmis stórverkefni, sérstaklega í samgöngumálum, hafa ekki verið fjármögnuð og byggð á vegum opinberra aðila eins og áður tíðkaðist, heldur hafa mörg stórverkefni verið byggð og rekin tímabundið af einkaaðilum uns þeir hafa aflað tekna af mannvirkinu sem svarar fjármögnun þeirra ásamt hæfdegri ávöxtun. Ein aðal ástæðan fyrir slíkum verkefnum hefur verið að stór verktakafyrirtæki hafa ekki haft nóg að gera á seinni helmingi níunda áratugarins og hafa því beitt sér fyrir útvegun fjármagns í ýmsar stórframkvæmdir á þennan hátt. Þessi verkefni eru oftast nefnd “BOT” eða “BOOT”, á ensku , sem stendur fyrir “BUILD- Þeir Páll Sigurjónsson, forstjóri Istaks og Einar B. Pálsson fv. prófessor sögðufrá ýmsu skemmtilegu. Ljósm.: Birgir Jónsson. * • wr Félagsmenn hlýða á mál Páls Sigurjónssonar forstjóra Istaks og Einars B. Pálssonar t Fólksvangi á Kjalarnesi, en þar bauð Fossvirki til samkvœmis að lokinni ferð niður í göngin. OPERATE-TRANSFER” eða “BUILD-OWN-TRANSFER” í fyrra tilfellinu og “BUILD-OWN- OPERATE-TRANSFER” í því seinna. Á Islensku mætti kalla þessi verk BRA (BYGGJA- REKA-AFHENDA) eða BERA (BYGGJA-EIGA-REKA- AFHENDA). Það var fyrrum forsætis- ráðherra Tyrklands, Turgut Ozal, sem ekkert vit hafði á verklegum framkvæmdum, sem fyrstur notaði skammstöfunina BOT. Illar tungur sögðu að hann hefði ekki getað borðið fram ensku orðin þrjú og því gripið til skammstöfunarinnar, sem allir hafa síðan tekið upp eftir honum. Ein önnur útgáfa á skamm- stöfunum hefur einnig verið í gangi, þ.e.”BOOST” (BUILD- OWN-OPERATE-SUBSIDIZE- TRANSFER), í þeim tilfellum þar sem opinberir aðilar hafa komið með framlag í verkefnið, annaðhvort strax í upphafi eða dregið verkefnið að einhverju leyti að landi, ef það hefur ekki náð endum saman. Hvalfjarðargöngin eru þó með mun flóknari fjármögnun en hér hefur verið lýst, þar sem Spölur, fyrirtækið sem kom verkinu af stað og ætlar að reka göngin í 20 ár, kemur ekki með sína fjármögnun að verkinu fyrr en eftir að göngin hafa verið byggð og rekin í þrjá mánuði af verktakanum, sem sér alveg um að fjármagna og ábyrgjast verkið á byggingartíma og þrjá mánuði í VFI efndi til mjög góðrar ferðar í Hvaljjarðargöng 25. apríl síðastliðinn. Mœttu milli 50 og 60 manns. Hér hlýða gestir á kynningu Hermanns Sigurðssonar staðarstjóra Fossvirkjis í matsal verktakans. 4

x

Verktækni

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Verktækni
https://timarit.is/publication/957

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.