Verktækni - 01.06.1997, Blaðsíða 8
VERKTÆKNI
Dagbókin
Verk-tækni Open
Áætlað er að halda golfmót
verk- og tæknifræðinga, þ.e. fyrir
félagsmenn í VFÍ, SV og TFÍ,
föstudaginn 8. ágúst 1997.
Mótið verður haldið á
Vífilsstaðavelli hjá Golfklúbbi
Kópavogs og Garðabæjar.
Keppnisfyrirkomulag:
Punktakeppni einstaklinga, en
einnig sveitakeppni milli verk-
og tæknifræðinga (5 bestu skor).
Makar velkomnir.
Skráning og nánari
upplýsingar á skrifstofu- verk- og
tæknifræðinga að Engjateigi 9,
en þar sem skrifstofan verður
lokuð í júlí verður skráning og
upplýsingar veittar hjá Gústaf í
heimasíma 567 1422.
Vallargjald og kvöldverður
kr. 1.800.-.
CLIMA 2000
Alþjóðlega ráðstefnan,
CLIMA 2000, sem fjallar um
loftræsti- og kælitækni verður
haldin í Brussel 30. ágúst - 2.
sept. 1997. Nánari upplýsingar
gefur Jón Sigurjónsson,
Rannsóknastofnun
byggingariðnaðarins, fax: 567
8811.
NIM
fundur í
Reykjavík
Árlegur fundur formanna og
framkvæmdastjóra verkfræðinga-
félaganna á Norðurlöndum
„Nordisk Ingeniörmöde" var
haldið í Reykjavík dagana 5. og 6.
júní sl. Á fundinn mættu 2
fulltrúar frá Noregi, Svíþjóð og
íslandi. Frá Finnlandi komu 4
fulltrúar, en þar eru tvö félög
(TFiF og TEK) bæði fyrir sænsku-
mælandi og finnskumælandi
Finna. Frá Danmörku komu 6
fulltrúar, þ.e. frá Hovedforeningen,
Ingeniörforbundet og Ledende og
Selvstændige Ingeniörer.
Meginþemu fundarins voru
vinnuskipulag (fjarvinnsla), eftir-
menntun og staða verkfræðinga.
Það kom fram á fundinum að
atvinnuástand verkfræðinga á
Norðurlöndum er almennt gott,
atvinnuleysi yfirleitt ekki mikið
yfir 4%. Tvær undantekningar eru
þó. I Danmörku er 10% atvinnu-
leysi meðal hinna nýju “exporting-
eniöre” og sumstaðar ber á því að
eldri verkfræðingar sem ekki
gegna einhvers konar stjórnunar-
störfum eigi í erfiðleikum með að
fá vinnu. í Finnlandi hefur hins
vegar á síðari árum orðið hrun í
kjörum verkfræðinga miðað við
aðrar stéttir, sem Finnamir áttu í
erfiðleikum að útskýra.
Mikil umræða var á fundinum
um eftirmenntun og símenntun
sem alls staðar virðist mál
málanna hjá stéttinni. Rætt var
bæði um skipulag og fjármögnun
HFÆ
hannið
...en kannið
hvar ljósleiöarastrBngir liggja í jörðu. Tján vegna
rofins ljósleiðara getur hlaupið á milljónum króna
og er á ábyrgð þess sem veldur því. Látið því legu
ljósleiðara ekki koma ykkur á óvart við hönnun eða
eftirlit framkvæmda.
I síma 550 6280 fást allar upplýsingar um
staðsetningu strengjanna. Póstur og sími veitir alla
þjónustu og upplýsingar, verkfræðingum, tækni-
fræðingum og öðrum hönnuðum að kostnaðarlausu
og við teljum það ekki eftir okkur að koma á staðinn
er þörf krefur.
POSTUR OG SIMI HF
endurmenntunarinnar og skipti þar
nokkuð í tvö horn. I Danmörku og
Svíþjóð er endumenntunin fyrst og
fremst samstarfsverkefni vinnu-
atvinnurekendumir hins vegar bera
bróðurpartinn af kostnaði við
endurmenntunina.
Rætt var almennt um stöðu
veitenda og launþega og þar eru
námskeiðin að verulegu leyti um
kvöld og helgar.
í Noregi og Finnlandi virðast
verkfræðinga og verkfræðinámið,
og kom fram það sama og oft
áður, að tilfinnanlega skorti á
þjálfun í tjáskiptum og framsetn-
Formenn verkfrœðingafélaganna f.v. Henrik Janson (TFiF), Britt Vorgod Pedersen
(Ingeniörforbundet), Ole Schiöt (Hovedforeningen), Einar E. Madsen (NIF), Gerhard Raunio
(CF), Kristiina Hartikainen (stjórnarmaöur TEK), Birgcr Dahlslund Pedersen, (Ledende og
sælvst.), Pétur Stefánsson (VFÍ)
ingi í ræðu og riti og nauðsynlegt
væri að endurskoða verkfræði-
námið með tilliti til breyttrar
samkeppnisstöðu verkfræðinga við
aðrar stéttir.
Laugardaginn 7. júní átti að
fljúga með hópinn í Stykkishólm
og fara í siglingu á Breiðafirði.
Um morguninn rauk hins vegar á
Faxaflóanum og hvorki flugveður
né sjóveður. Nú vom góð ráð dýr,
allir sestir upp í
rútuna. Hringt var í
skyndi í Hrein
Frímannsson hjá
Hitaveitu
Reykjavíkur og séra
Heimi á Þingvöllum
og ferðinni snúið á
Nesjavelli, Þingvöll
og Gullfoss. Það var
fallegt „gluggaveður*
en þetta reyndist
kaldasti júnídagur í
63 ár. Við Gullfoss var hlíðin
klakabrynjuð og frostúðinn rauk
yfir þá fáu sem treystu sér út úr
bílnum. Nestið sem Ambjörg
geymdi undir sætinu bætti nokkuð
upp kuldann og bjargaði því sem
bjargað varð. Burtséð frá þessari
óvæntu uppákomu með veðrið,
tókst fundurinn með ágætum og
héldu menn glaðir heim þrátt fyrir
allt. Pétur Stefánsson
Fánar frœndþjóðanna tóku sig vel út. (Ljósm. B.J)