Samstaða gegn her í landi - 01.02.1974, Blaðsíða 4

Samstaða gegn her í landi - 01.02.1974, Blaðsíða 4
4 /^LJI| r Hver stjórnaði Vsrll LL valdaráninu? I stefnuskrá samtakanna "Föðurland og frelsi"'sem hér er birt, er að sjálf- sögðu ekki getið um þátt bandarískra heimsvaldasinna í að steypa stjórn Alþýðu- einingarinnar, enda hefði það illa samrýmst hinum "þjóðernissinnaða" áróðri. En áætlunin gerði ráð fyrir fjárhagslegum, pólitískum og hernaðarlegum stuðningi Bandaríkj amanna. Strax eftir sigur Salvador Allende í forsetakosningunum í september 1970 hófust til- raunir Bandaríkjastjórnar í^þá átt að steypa fyrsta lýðræðislega kjörna marxíska forseta í sögu Ameríku. 1 fyrstu voru uppi mótsagnir milli þeirra sem mæltu með beinni íhlutun og hinna, sem^vildu að ástandið £ Chile "þróaðist" fyrir þrýsting efnahagslegra þvingunarað- gerða. Síðarnefnda stefnan varð ofaná, og eins og fram kemur m.a. í svonefndum ITT- skjölum, var tekin upp sú aðferð að loka fyrir öll lán, sem Bandaríkjastjórn veitti beint, svo og þau sem veitt höfðu verið fyrir milligöngu Alþjóðabankans. Um leið hófst efnahagslegt stríð við Chile , m.a. í sambandi við koparút- flutning til ýmissa Evrópu- landa, en þjóðnýttu fyrir- tækin, sem verið höfðu í eigu Bandaríkjanna, kröfðust greiðslu fyrir koparinn. Þar að auki var stjórnarandstöö- unni í Chile veitt efnahags- aðstoð til þess að kosta her- feröina gegn Allende. Þessar aðstæður eru allar þekktar og hafa verið sannaðar. Hvað snertir framlag Banda- ríkjanna síðustu mánuðina er myndin öllu óljósari þegar þetta er ritað (6. okt.). 18. september s.l. var stofnað í Róm e.k. útibú frá Alþýðu- einingunni, og þar er nú verið að undirbúa til prent- unar "svarta bók" um íhlutun Bandaríkjamanna x chilensk stjórnmál fyrir valdarán og í sambandi við valdaránið sjálft. Enda þótt ekki leiki nokkur vafi á því, að Banda- ríkin hafi gegnt úrslitahlut- verki í þessu máli, bæöi efnahagslega og hernaðarlega, er enn of snemmt að tala um þær aðferðir, sem notaöar voru. En þó er unnt að benda á nokkrar staðreyndir. Samæfingar bandaríska oy chílenska hersins 1 fyrsta lagi skyldu menn taka eftir, að allan tímann, sem Allende sat við völd, hélt chilenski herinn samböndum sínum við Bandaríkin. Þegar Bandaríkjastjórn hætti lán- veitingum til Chile gilti það ekki um hernaðarlega "aðstoö" og ekki heldur um sameigin- legar heræfingar. Þannig fékk chilenski herinn t.d. 12 miljónir dollara í hernaöar- aðstoð fjárhagsárið 1972 - 1973, og 850.000 dollara til þjálfunar starfsliðs. Þessar tölur eru gefnar upp af Bandaríkjastjórn. í ágúst- mánuði s.l. var þess hvað eftir annað getið í chilenskum blöðum, að mikill fjöldi bandarískra "ráðgjafa" og "sérfræðinga" væri kominn til landsins. Enn mikilvægari í sambandi við valdaránið eru þó svonefndar Unitas-her- æfingar, sem chilenski og bandaríski flotinn ætluðu aö standa að í sameiningu um miðjan september. Af þessu tilefni höfðu bandarískar flotadeildir komið til Chile og voru þar til sérstaks öryggis daginn sem valdaránið var framið og næstu daga á eftir. Einnig ber að taka e'ftir því, aö á sama tíma og þessar flotadeildir gátu haft eftirlit með ströndum Chile, sennilega í samráði við varn- armálaráðuneytin í Banda- ríkjunum og Brasilíu, í því skyni að grípa inní gang mála ef á þyrfti að halda. Bandaríkjastjórn hafði stöðugt samband við stjórnarand- stöðuna x Chile í gegnum sendiráö sitt í Santiago. Skv. upplýsingum sem m.a. birtust í Newsweek 24. september 1973, vissi banda- ríska ríkisstjórnin um valda- ráðið áður en það var framið. Juan Perón, forseti Argentínu, lýsti því einnig yfir í Buenos Aires, að Bandaríkja- stjórn hefði haft hönd í bagga bæði fyrir valdaránið og meðan á því stóð. Sterk- ustu líkur sem enn hafa komið fram og benda til að svo hafi verið, eru skyndiheim- sókn bandaríska sendiherrans til Washington, þar sem hann átti tveggja daga viðræður við Henry Kissinger 7. og 8. september, og sú staðreynd, að tugir bandarískra orrustu- flugvéla voru til taks á flugvellinum í Mendoza, sem er bær í Argentínu, örskammt frá landamærunum og ekki steinsnar frá Santiago. Enn- fremur hefur verið bent á, að í árásinni á forsetahöll- ina 11. september var m.a. beitt tækni, sem vitað er að chilenski herinn hafði ekki yfir að ráða. Fasistastjórnin er kostuó af USA Meðan beðið er eftir nákvæm- ari upplýsingum um raunveru- legan hlut Bandaríkjanna í valdaráni fasistanna í Chile er óhætt að spá því með fullri vissu, að bandarískar fjármálastofnanir og þær "alþjóðlegu" stofnanir sem Bandaríkjamenn stjórna, muni hafa úrslitaáhrif á framtíð herforingjastjórn- arinnar. Sú truflun á chilensku atvinnulífi, sem fasistasamtökin, herinn og bandarísku dollararnir hafa valdiö, verður langvarandi. Herforingjastjórnin verður dýr í rekstri, og það mun kosta margar miljónir doll- ara að endurreisa atvinnulíf- ið þegar pólitísk andspyrna hefur verið brotin á bak aftur, ef það tekst. 5. október s.l. ákvað Banda- 1 ** • • V rikjastjorn að veita fas- istunum byrjunarlán uppá 24 miljónir dollara. (Að mestu eftir greininni "Þingræðisleg leiö til fasisma" Kommentar No. 10, 1973). - IH GRIKKLAND: VAKTASKIPTI HERFORINGJANNA I fyrravetur leit Papadopúl- os yfir ríki sitt, og sjá: allt féll honum harla v.el. Banda- ríkin búin að koma upp einni af stærstu herstöðvum heims í land- inu, herinn kominn með ítök í öllum stjórnum og nefndum og al- menningur hafði verið tiltölulega þægur um skeið. NÚ gat hann farið að snyrta sig í framan fyrir almenningsálitinu í heim- inum. Hann hófst handa, keyrði í gegn nýja stjórnarskrá, lét kjósa sig forseta, sleppti nokkrum pólitískum föngum og dubbaði upp borgaralega stjórn, sem vera skyldi framhliðin á "lýðræðinu". Svo steig hann út á svalirnar á höllinni sinni og sagði við fólkið: - NÚ er komið lýðræði. Allir urðu glaðir yfir hinu nýfengna lýðræði. Nú hlýtur á- standið að fara að skána. Nú hljótum við að fá völdin í okkar hendur. Svona hugsuðu stúdentarnir grísku einnig. Nú hljóta her- foringjarir að víkja úr skóla- nefndunum og valdið að færast okkur í hendur. Nú þurfum við ekki að fara í herinn, ef við látum í ljós óánægju yfir skól- anum. En breytingarnar létu á sér. standa. Verðbólgan óx, flóttinn úr sveitunum var samur við sig og lítið bólaði á valddreifingar- aðgerðum stjórnarinnar. Stúdentarnir urðu langeygir eftir lýðræðinu. I janúar og febrúar í fyrra fóru þeir að spyrja upphátt um það. Þeir fóru í mótmælaaðgerðir og verk- föll ef verða mætti til þess að töfra það fram. En viti • menn Þann 14. febrúar var lögreglan send á þá til að þagga niður í þeim. Lýðræðið var semsé ekki tilbúið enn. Stúdentunum brá vitanlega í brún, þvi að þetta var £ fyrsta sinn, sem þeir fengu að kenna á kylfunum. En þeir létu ekki bug- ast og^andófið og baráttan fyrir akademisku frelsi og lýðpæði £ háskólunum hélt áfram að harðna. Hámarki náði hún svo £ nóvember, er stúdentar tóku á sitt vald Tækniháskólann £ Aþenu. Fyrst leit svo út, að herfor- ingjarnir ,og stjórnin ætluðu að lata undan stúdentunum, þv£ ekk- ert var aðhafst af þeirra hálfu fyrst um sinn. En þar kom að yfirvöldum leiddist þófið og lögregla vopnuð skriðdrekum og vélbyssum gerði árás á tækniskól- ann. Eftir mikið blóðbað, þar sem amk. 100 stúdentar létu l£f- ið (opinberar tölur sögðu, að 13 hefðu látizt, en einhverra hluta vegna fengu fjölskyldur hinna látnu ekki afhent l£kin af þeim og lögreglan lagði hald á dánarvottorðin, svo að eitthvað hefur hún haft á sam- viskunni) og fjöldi særðist. Stjórnin lýsti yfir neyðar- standi vegna þessa og næstu daga voru hundruð manna hand- tekin. Nokkrum dögum s£ðar var svo Markezinis og Papadopúlos steypt af stóli. Herforingjarnir höfðu vaktaskipti. Vitundaraukning En stúdentarnir voru ekki einir. Með þeim börðust verka- menn, einkum ur byggingaiðnað- inum, en þeir hafa lengi verið uppreisnargjarnir og oft barið á lögreglunni (enda hræöist hún þá jafnmikið og stúdentarnir hræðast hana). Þá nutu þeir, mikils stuðnings almennings,” sem meðal annars kom fram £ þv£, að fólk færði þeim mat £ tækniskól- ann og faldi þá sem voru á flótta undan lögreglunni. Og hlutdeild verkamanna hef- ur s£nar forsendur. Meðal bygg- ingaverkamannanna er rikjandi atvinnuleysi, sem eykst mjög á veturna. Verðbólgan er gífurleg. Opinberar tölur um verðhækk- anir herma, að þær hafi numið um 25% á timabilinu 1. jan.- 1. des. £ fyrra. Fyrir launa- fólk var hún þó enn meiri, þv£ meginhækkanirnar hafa verið á matvælum og þær hækkanir hafa numið um 50% á sama' t£ma. Til dæmis má nefna, að á há'lfu öðru ári hefur brauð hækkað úr 5 drökmum £ 12, 1 l£tri af mjólk úr3,50 £ 7 og pund af tómötum úr 2 £ 12 drökmur. Við þetta bæt- ist gifurlegur flótti úr sveit- unum, svo að sumsstaðar eru eng- ir eftir nema börn og gamalmenni niðurniðsla landbúnaðarins og útflutningur vinnuafls. En að þessu sinni höfðu her- foringjarnir siðasta orðið. Þeim tókst að brjóta uppreisnina á bak aftur og herða tök s£n á stúdentunum. En af þessari upp- reisnartilraun lærði griskur al- menningur eitt: hann lærði að meta afl samstöðunnar. Meðvit- und hans jókst mikið við þessa atburði. Svo herforingjarnir hafa ekki enn bitið úr nálinni með afleiðingar uppreisnarinnar. ValdarániÓ Eins og áður sagði var framið valdarán £ hita bardagans. "Lýð- ræðið"var ekki djúptækara. Papa- dopúlos hafði ekki staðiö sig £ stykkinu og varð að gjalda fyrir það. Sterkasti maður hinn- ar nýju stjórnar er talinn vera maður að nafni Ioannides, yfir- maður öryggislögreglunnar. Flestir telja, að hið nýja valda- rán sé eins og þaö fyrra skipu- la^t af CIA og að ástæðan fyrir þvi hafi verið getuleysi Papa- dopúlosar við að endurreisa borgaralegt lýðræði £__landinu. A yfirborðinu er l£tið breytt og valdaránið sjálft kostaði engar blóöfórnir. Þetta voru aðeins heimiliserjur herfor- ingjanna. Stúdentarnir gleðj- ast þó yfir þv£ að hafa velt Papadopúlosi þv£ að það er mjög mikill stuðningur við þá frh. á bls. 7

x

Samstaða gegn her í landi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samstaða gegn her í landi
https://timarit.is/publication/969

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.