Barátta gegn herstöðvum - 01.03.1974, Qupperneq 4
4
BARÁTTA GEGN HERSTÖÐVUM
Alyktnn
liðsfundar
_iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii>
! Raddir úr at
Almennur liðsfundur var haldiim hjá Samtökum herstöðva-
andstæðinga 22. mars sl. Þar var meðal arrnars fjallað um
samkomulagsgrundvöll ríkisstjómarinnar um herstöðvamálið
og eftirfarandi ályktun gerð:
Tillögur þær sem ríkisstjóm íslands hefur samþykkt sem
gmndvöll samkomulags við Bandaríkjastjóm em undanslátt-
ur frá málsstað herstöðvaandstæðinga í tveimur veigamiklum
atriðum. Þar er fallist á frávik frá því ákvæði málefnasamn-
ingsins, að herinn fari allur fyrir lok kjörtímabilsins. Jafn-
framt er á það fallist, að Island hafi skyldum að gegna við
NATO. Lýsa samtökin yfir andstöðu við þennan undanslátt.
Eins og nú er málum komið, ber að skoða tillögur þessar,
ef þær verða að vemleika, sem áfangasigur í baráttunni fyrir
algerri brottför alls sem hemaði viðkemur frá Islandi og úr-
sögn Islands úr NATO.
Við leggjum áherslu á, að alls ekki má kvika frá neinu
ákvæði þessara tillagna í viðræðum við Bandaríkjastjóm.
Aðstandendur blaðsins fóru á stúfana á dögunum
= og leituðu til fólks á förnum vegi og báðu það að tjá
= skoðanir sínar á herstöðvamálinu og eru viðtölin sem
= hér fara á eftir afraksturinn. Herstöðvaandstæðingar
= hafa kynnt sjónarmið sín að undanförnu í fjölmiðlum
= eftir því sem tækifæri hafa gefist til, fólkið sem við
| ræðum við hér á eftir hefur lítil tækifæri til að tjá
Í skoðanir sínar opinbérlega, en hefur engu að síður
= ýmislegt til málanna að leggja.
Fréttir —
Framh. af bls. 8
stöðvaandstæðingum á Akureyri
taisverð vonbrigðL
Fjöldafundurinn
í Háskólabíói
í þeirri stemmingu sem skapað-
ist meðal herstöðvaandstæðinga
1 kjölfar Sögu fundar Varins
lands, ákváðu samtökin að efna
til fjöldafundar til að undirstrika
kröfu þjóðarinnar um herlaust
land Fyrst voru athugaðir mögu-
leikar á því að fá Laugardals-
höllina undir slíkan fund, en
þegar það reyndist ómögulegt,
svona á miðju keppnistímabili,
var ákveðið að halda fundinn
i Háskólabíói. Samkoman var
undirbúin vandlega, fengnir
ræðumenn og skemmtikraftar og
síðan auglýst. Það fór sem flesta
varði Háskólabíó var alltof lítill
staður fyrir baráttufundi Her-
stöðvaandstæðinga. Milli þrjú og
fjögur þúsund manns sóttu fund-
inn og urðu margir frá að hverfa
sökum þregsla. Umferðaröng-
þveiti varð í nágrenni bíósins
þegar fólk streymdi að, bæði á
Hringbraut, Suðurgötu og á
Hagatorgi og aftur þegar fólk
fór af fundi. Árangur fundarins
var mikill og augljós. Fyrir utan
þá upplýsingamiðlun sem fram
fór og þá baráttugleði og sigur-
vilja sem hann skapaði, safnaðist
inn mikið fé bæði með samskot-
um og sölu á merkjum, blöðum
og -bæklingum. Frjálsu framlög-
in námu rúmlega 300.000 krón-
um. 1 fyrsta sinn i sögu samtak-
anna losnuðu þau við skuldir sín-
ar og höfðu auraráð. Þetta blað
er ávöxtur þess. Á fundinum
bættust samtökunum fjöldi
styrktarmanna sem mánaðarlega
láta fé af hendi rakna til barátt-
unnar samtökunum tiil mikils
stuðnings.
Fundahöld.
Talsvert hefur verið um fundi
um herstöðvamálið undanfama
mánuði í skólum og víðar. Þá
hefur jafnan verið leitað til sam-
takanna um að útvega ræðumann
til að tala þeirra máli og hefur
ávallt verið gert. Samtökin Varið
land hafa hins vegar ætíð neitað =
að senda menn á fundi en vísað =
á Varðberg, félag áhugamanna 5
um vestræna samvinnu. sem oft- =
ast hafa sent Magnús Þórðarson, —
launaðan erindreka NATO á Is- =
landi á fundina. Aðspurður hefur =
Magnús lýst yfir þvi að þetta =
hlutverk sé honum bæði ljúft og =
skylt, enda sé það hans starf að =
gæta hagsmuna NATO hér. Útá- =
við hafa því herstöðvaandstæð- =
ingar meira átt í höggi við NATO =
en ameríska herinn og aftani- 5
osso hans. Þetta hefur í reynd =
sýnt okkur, hversu óaðskiljanleg =
herstöðvamálið og NATO eru og =
sannfært okkur enn frekar um 5
nauðsyn öflugrar baráttu gegn =
NATO. =
I útvarpi og sjónvarpi hafa
verið nokkrar umræður um her-
stöðvamálið. Þar hafa fulltrúar
herstöðvaandstæðinga átt í höggi
við hernaðarsinna úr ýmsum
flokkum. öfugt við landverjur
telja herstöðvaandstæðingar sig
hafa hag af hverskonar umræð-
um um herstöðvamálið og kapp-
kosta þessvegna að vekja fólk
til umhugsunar og rökræðna um
þetta mál meðan landverjur
laumast með veggjum með Vot-
ergeit vixla sína.
Barátan utan
Reykjavíkur
Út um land hafa herstöðva-
andstæðingar viða látið til sín
heyra. Á Akureyri var haldinn
fjölmennur fundur I Borgarbíói
2. febr. og þar skorað á ríkis-
stjómina að reka herinn og segja
landið úr NATO.
I Borgamesi var haldinn mik-
ill fundur 27. jan. s.l., við erfið
veðurskilyrði og þair skorað á
rikisstjómina að standa við heit
sín í herstöðvamálinu. Á Isafirði
var einnig haldinn fundur gegn
hersetu á Islandi. Á Borg i
Grímsnesi var einn fundurinn til,
24. febr., og þar krafist brottfar-
ar hersins og úrsagnar úr NATO.
Þrátt fyrir harðan vetur og
kuldatið hefur glóð baráttunnar
sjaldan verið heitari og sigurvilj-
inn meiri.
Við hittum fyrst að máli
Stefán Runólfsson verkstjóra
hjá Ríkisskip.“
— Ég get strax sagt það
hreint út að ég vil engan her
hafa i landinu,” sagði hann.“
Ég tel okkur enga þörf fyrir að
haaf hann. Mér finnst herset-
an hafa haft slæm áhrif. Ég
held að hún hafi breytt hugs-
unarhætti fólks til hins verra.“
— Hvað finnst þér um varið
land?
— Varið Iand — Ég lít nú
á það sem hálfgerðan skrípa-
leik. Mér hefur virst, að marg-
ir sem skrifuðu undir hafi
gert það af þægð við aðra.
Menn em beðnir um að skrifa
undir og þeir gera það. Ég held
að það sé ekki mark takandi
á þessu mundirskriftum.
— Hvert telur þú vera raun-
verulegt hlutverk hersins í
Keflavík? Ég held að Banda-
rikin vilji ekki sleppa því sem
þeir hafa einu sinni náð í, það
sé fyrst og fremst þess vegna
sem hann er hér. Ég álít að
okkur sé engin vörn í þessum
her. Hann ver okkur ekkert
þótt það verði stríð milli stór-
veldanna.
Jónmundur Einarsson var
stuttorður og gagnorður þcgar
við tókum hann tali við vinnu
sína viö liöfnina.
— Mín vegna má herinn fara
strax á rnorgun" sagði hann.
Við eigum engan her að hafa,
það er skerðing á sjálfstæði okk
Ingibergur Vilmundarson
verkamaður við höfnina tók
mjög í sama streng.
— Ég lít þannig á að fyrst
við vorum að losa okkur við
Dani og erlent vald úr landinu,
og lýsa yfir sjálfstæði, þá eig-
um við að reyna að standa
við það. En það gerum við ekki
með því að hafa erlendan her.
Ég held að hersetan hafi
skaða í för með sér fyrir Is-
lendinga. Við höfum að vísu
ekki mikil samskipti við her-
mennina sem slíka nema auð-
vitað ein stétt manna sem hef-
ur mikil samskipti við þá og
græðir á þeim. Nú svo má ekki
gleyma því að það vinna marg-
ir íslendingar fyrir þá og þeir
væru betur komnir í vinnu fyrir
sitt eigið Iand.
— Hvert er raunverulegt
hlutverk herstöðvarinna rhér að
þínu mati?
— Ja, við vitum það að
Bandaríkjamenn og Atlands-
hafsbandalagið leggja mikla
áherslu á. að hafa hana hér,
hún er nokkurs konar varðstöð
fyrir þá, eða við ættum kann-
ske að kalla hana stökkpall.
En þessi her ver okkur ekki á
einn eða annan hátt, þó að til
styrjaldar kæmi. Hann væri al-
gerlega gagnslaus ef stórveld-
in færu saman.
— Einu sinni gátum við orð-
ið sjálfstæðir þótt það væri nú
varla nema-nafnið og ég held
að vi&—ættum að- - reyna að
halda því áfram, sagði Daniel
Jóelsson vcrkamaður i Ölgerð-
inni, þegar við spurðum liann
álits á herstöövamálinu.
— Þú telur þá að herset-
unni fylgi skerðing á sjálfstæði
landsins? Það er nú ekkert að
álíta ,það hljóta allir að sjá
það og vita.
— Telurðu að hersetan hafi
haft slæm áhrif á íslenzkt þjóð-
líf.
— Auðvitað hefur hún haft
það. Her hefur alltaf slæm
áhrif. Við þurfum ekki annað
en að líta á Varið land. Helm-
ingur kjósenda er búinn að
skrifa undir skjal þar sem beð-
ið er um áframhaldandi her-
setu. Ég veit ekki hvað eru
slæm áhrif ef það er ekki þetta.
— Hvem telur þú tilganginn
með dvöl hersins hér á landi?
— Ég hef nú alltaf litið svo
á að hann væri hér til að verja
hagsmuni peningaaflanna bæði
á íslandi og annars staðar.
Hann er hér ekki af neinni
góðsemi við íslendinga, við
þurfum ekki að halda það. Ég
hef aldrei frétt af neinni góð-
semi stórveldanna í garð smá-
ríkja.
— Nú halda sumir formæl-
endur hersetunnar því fram að
herinn sé hér til að tryggja
sjálfstæði okkar. Hvað finnst
þér um þessa röksemd? Það
sér það náttúrlega hver maður
sem vill sjá, að ef við ekki
komumst af án forsjár erlendra
stórvelda, þá emm við ekki
sjálfstæðir lengur. Það liggur
alveg í augum uppi.
I Þjóðleikhúsinu tókum við
tali Birgi Sveinbjörnsson sviðs-
mann.
— Þið komið alveg á réttum
tima, við emm héma að vinna
við senuna við Jón Arason eft-
ir Matthías, það er einmitt mik-
ið ádedlustykki á erlenda kúg-
un í landinu.
— Hvers vegna ert þú á móti
hemum?
— Ég óttast það að hann
sælist eftir æ meiri ítökum í
landinu ef hann ekki fer og við
verðum ekki sjálfstæðir í okkar
eigin landi. Ég tel að við eig-
um að losa okkur við herinn og
segja okkur úr NATO. Við get-
um tekið þátt í alþjóðlegu sam-
starfi, en við eigum að standa
utan hemaðarbandalaga.
— Hvert telur þú hlutverk
hersins?
— Það er fyrst og fremst
fjármagn og auðvald sem stend-
ur á bak við hann. Það em
hagsmunir þess sem hann er að
verja, ekki okkar.
— Vestur á Bræöraborgar-
stíg hittum við eldri konu,
Þórunni Pálsdóttur. Við báðum
hana að scgja okkur viöhorf
sitt til hcrsctunnar.
— Það er fljótsagt, sagði
hún. Ég hef alltaf verið verka-
lýðssinni og alveg frá því að
ég var ung kona í Reykjavík
og Ólafur heitinn Friðriksson
fór að starfa að málefnum
verkalýðsins í Reykjavík. Og
auðvitað er ég á móti hernum.
fsland á að vera fyrir íslendinga
BARÁTTA GEGN HERSTÖÐVUM
Útg.: Samtök herstöðvaandstæðinga.
Ábm.: Ámi Hjartarson.
Prentsmiðja Þjóðviljans prentaði.
lllllllllllllllIlllllllllllllllllllllllllllllllIlllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllUt
Umræður í útvarpi
og sjónvarpi