Aðventfréttir - 01.02.1989, Síða 3
3
KLERKUR OG KONUNGUR
Hvers vegna er það mikilvægt fyrir kaþólsku kirkjuna að vera sjálfstætt ríki?
Jóhannes Páll II páfi tekur þált i kvöldmáltiðarguðsþjónustu í
Liverpool á meðan á Englandsheimsókn stóð fyrir nokkrum árum
að viðstöddum fjölda framámanna.
Eftir: V.Norskov Olsen
Hið veraldlega hlutverk páfa-
stólsins og áhrif páfa á stjórn-
málasviðinu koma skýrast í ljós
þegar tekið er eftir því að hver
þjóðin á fætur annarri stofnar
nú til stjórnmála-sambands við
Vatikanið.
Hið tvíþætta hlutverk rómversk-
kaþólsku kirkjunnar er ráðgáta
sem, að þvi er virðist, stofnar til
guðfræðilegra, kirkjustjórnar-
farslegra og pólitískra mótsagna.
Hvert var upphaf þessa tvíþætta
hlutverks? Hvers vegna lagði
kirkjan einnig áherslu á að verða
sjálfstætt ríki?
Til þess að finna svörin við
þessum spurningum verðum við
að líta til sögunnar. Auður og
völd hlotnuðust kirkjunni er hún
á fjórðu öld varð ríkiskirkja hins
rómverska keisaradæmis. Smám
saman óx innan kirkjunnar
hálfpólitískt stjórnskipulag sem
veitti henni nýjan skilning á
stjórnmálalegu valdi. Dregið var
úr mikilvægi veraldlegs póli-
tísks valds í því skyni að efla
og undirstrika mikilvægi hins
andlega valds kirkjunnar. Að
lokum var svo komið að kirkjan
taldi sig hafa rétt til að ákvarða,
ekki einungis í trúarlegum
efnum, heldur einnig hvað varðaði
lög og veraldlegt vald.
Sameining kirkju og ríkisvalds
Er Konstantínus keisari hafði
lýst sjálfan sig kristinn vann
hann að því að sameina kirkjuna
og ríkisvaldið. Opinber tilskipun
var gefin út árið 321 e.Kr. þess
efnis að kirkjunni væri heimilt
að eignast fasteignir og einnig
var sunnudagurinn fyrirskipaður
sem dagur almennrar tilbeiðslu.
Keisari Rómarveldis styrkti
kirkjuna með ríkulegum gjöfum í
formi fjárframlaga, bygginga og
landeigna. Auðugar fjölskyldur
fylgdu fordæmi hans og færðu
kirkjunni miklar eignir staðsettar
utan Rómaborgar. Þegar á fimmtu
öld var kirkjan orðin helsti
landeigandi Evrópu.
Viðurkenning Konstantínusar
keisara á kirkjunni hafði mikil
áhrif á stjórnskipulag hennar
sem í æ ríkari mæli varð
spegilmynd af stjórnskipulagi
hins rómverska ríkis.
Er kristindómurinn breiddist út
var biskup settur yfir hverja
borg og tilheyrandi landsvæði. Á
hann var litið sem talsmann
Aðventfréttir 1-2 1989