Aðventfréttir - 01.02.1989, Síða 8

Aðventfréttir - 01.02.1989, Síða 8
stefnan er frá formlegri gagna- söfnun til víðtækari upplýsinga og ráðlegginga innan ramma sið- fræðinnar. í þessu felst að stjórn Bandaríkjanna gefur gaum siðfræði Vatíkansins og tekur tillit til hennar í eigin stefnu- mörkun. Þetta stríðir gegn hug- myndafræði hlutleysis í sam- skiptum ríkis og kirkju eins og það er skráð í stjórnarskránni. 5. Afstaða páfans í siðgæðis- málum. Páfinn er ákafur tals- maður Ritningarinnar sem staðals í siðgæðismálum varðandi hjú- skap, fóstureyðingar, kynlíf eða afneitunar köllunarinnar. Meðan páfinn styrkir stöðu sína útá við sem slíkur talsmaður félagslegs gildismats, beinast spjótin frem- ur að talsmönnum frjálslyndis í guðlausu samfélagi. Það er væntanlega ekki með ráði gert, að frjálslyndisstefnan innan mótmælendahreyfingarinnar hefur með túlkun sinni á Ritningunni beint evangelísku kirkjudeild- unum (lágkirkjunni) inn á áhrifasvæði páfans. í reynd grefur mótmælendakirkjan sem slík undan valdsviði Ritningar- innar er tekur til kristninnar í orði og athöfn, en eykur áhrifa- mátt páfans sem því nemur. Skýringin er reyndar einföld. Harðstjórn er kristnum mönnum þyrnir í auga, en við leggjum við hlustir um leið og talað er af myndugleik, ákveðni og fullvissu. "Þessi er vegurinn farið hann." Þegar prestarnir bregðast leitar fólkið þangað sem talað er af myndugleik og því boðin þátttaka í ósviknum boðskap. 6. Ritningin sem grundvöllur. Gegnum tíðina hefur kenning- arlegur grundvöllur kaþólsku kirkjunnar verið tvíþættur: Scriptura et Traditio, þ.e. Rit- ningin og hefðbundið kenn- ingakerfi kirkjunnar, svonefnt magisterium ecclesiae. Siðbótin hafnaði þessu og kenndi Sola Scriptura, Ritningin ein. Stefna "Unnið er að því að brúa bilið milli ka- þólskra og mótmæl- enda en sú brú mun jafnframt fjarlægja mótmælendur frá Rit- ningunni." kaþólsku kirkjunnar í dag er að gefa Ritninguna út í samvinnu við mótmælendur og gera hana aðgengilegri almenningi. Hafa ber þó í huga að Ritningin er ennþá Ritning kaþólsku kirkjunnar og þannig háð sögulegri túlkun hennar en ekki þannig að ka- þólska kirkjan sé kirkja Ritn- ingarinnar háð kenningum henn- ar. 7. Afstaða páfans í félags- málum. Félagslegt réttlæti, mannréttindi, jafnvel fóstursins, réttlátari skipting auðæfanna, friður grundvallaður á réttsýni, kærleikur og mannúð. Með þessi mál í brennideplinum nær páfinn jafnt til sinna íhaldsömustu sem meginþorra mótmælenda. Að lokum þetta. Þrátt fyrir alla þá jákvæðu viðleitni sem á sér stað milli kaþólskra og mótmæl- enda má það ekki gleymast að kaþólska kirkjan stendur enn föst fyrir hvað varðar þau atriði er kölluðu fram mótmælenda- hreyfinguna á sínum tíma. Kaþólsk kirkja samþykkir ekki Ritninguna eina og henni sam- kvæmt frelsast maðurinn ekki fyrir trúna eina á Krist einan fyrir náðina eina saman. Páfinn hefur ítrekað tekið fram að hann leggi áherslu á kenningarkerfi kirkjunnar (magisterium), Maríutrú, altarissakramenntiskenninguna, dýrlinga, óskeikul-leik páfans, þátt prestanna í sakramentum, skriftir, frelsun fyrir verk og fyrirbænir látinna. Af þessum farvegi mun kirkjan ekki víkja. Samkirkjuleg eining er í augum kaþólsku kirkjunnar einungis mögulegt út frá hennar eigin skilmálum. Á biskupaþingi 1979, í Chicago, ítrekaði núverandi páfi: "Vinnum að þvi sem fyrr að laða okkar tvístruðu bræður til okkar í anda skilnings, þolinmæði og af miklum kærleik; hvikum þó hvergi frá hinni sönnu kenningu kaþólsku kirkjunnar." Höfum það hugfast að þrátt fyrir breyttan áhersluþunga á félagslegt rétt- læti þá er kaþólska kirkjan óhagganleg í kenningarlegu till- iti. Páfinn er aðeins hennar sterkasti talsmaður. Unnið er að því að brúa bilið milli kaþólskra og mótmælenda en sú brú mun jafnframt fjarlægja mótmælendur frá Ritningunni. Lauslega þýtt, Ómar Torfason

x

Aðventfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Aðventfréttir
https://timarit.is/publication/973

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.