Aðventfréttir - 01.02.1995, Blaðsíða 3
HEIMSÓKN TIL
VESTMANNAEYJA
Það hefur ekki gerst síðan á 70 ára
afmæli safnaðarins fyrir rúmu ári að kirk-
jan okkar í Vestmannaeyjum hafi verið
þétt skipuð en það endurtók sig á fös-
tudagskvöldið þann 16. mars s.l. þá voru
stödd hér 19 ungmenni úr Reykjavíkur-
söfnuði og héldu stórkostlega samkomu
með mikilli tónlist, söng og kröftugum
boðskap. Að sjálfsögðu var búið að
auglýsa samkomuna þannig að flestir í
Eyjum vissu hvað til stóð. Meðal þeirra,
sem komu var æskulýðsfulltrúi Landa-
kirkju ásamt nokkrum úr æskulýðsdeild-
inni. Unga fólkið í Hvítasunnusöfnuðin-
um tók sig til og aflýsti samverustund,
sem átti að vera í nýju Hvítasunnukirkj-
unni þeirra og fjölmennti. Það endaði
með því að það þurfti að sækja lausa stóla
svo allir fengju sæti. Eftir að skipulagðri
dagskrá kvöldsins lauk var haldið áfram
að syngja fram eftir kvöldi.
Morguninn eftir sáu gestirnir okkar um
hvíldardagsskólann þar sem mikið var
leikið og sungið. Inn í dagskrá hvíldard-
agsskólans fléttuðu þau frásögn um það
smáhópastarf sem þau taka þátt í og hvað
það hefur gefið þeim. Eftir það fengu þau
viðstadda til að prófa þessa aðferð við yfir-
ferð lexíunnar. I lokin skiptist fólk á
skoðunum um gildi smáhópastarfs við
yfirferð hvíldardagsskólalexíunnar.
Þessi heimsókn unga fólksins tókst það
vel og vakti svo mikla ánægju að við erum
farin að leggja áform um að fá þau aftur í
heimsókn og það sem fyrst. Að fá svona
ungt og kraftmikið fólk til okkar, sem er
ófeimið við að vitna um trú sína fyrir
öðrum er stórkostleg uppörvun og hvat-
ning fyrir okkur. Við samgleðjumst
Reykjavíkursöfnuði yfir því að eiga slíkan
fjársjóð, sem jretta unga fólk er. Þau eru
framtíðin og með sama áframhaldi
þurfunt við ekki að hafa áhyggjur af fram-
gangi safnaðarins. Við biðjum þess að
Guð haldi áfram að leiða og blessa unga
fólkið í söfnuðinum, þau þurfa á stuðn-
ingi og bænum okkar halda.
Kær kveðja frá Vestmannaeyjum.
Olafur V. Þóroddsson.
Helga og Helgi við upplestur.
Fríður tónlistarhópur. Frá vinstri ífremri
röð: Steinunn, Brynja Sif, Lísa, Mela?iie og
Atina Magga.
WOMEN’S
MINISTRIES
Störf og hlutverk kvenna
— heimsókn Birthe Kendel
Birthe Ketidel frá Stór-Evrópudeildinni heimsótti ísland 23.-25. mars s.l. í
tilefni Ars konunnar til þess m.a. að kynna þann málaflokk tneðal kvettna
ittnan Deildarinttar sem hún hefur veitt forstöðu, setn hefur á tslensku fengið
nafnið Störf og hlutverk kvenna (Women's Ministries). Tilgangur þessa
starfs er eins og fram kom í síðasta Aðventfréttablaði að hvetja konur til
enn frekar að fullnýta hœfileika sína innan safnaðarins, tengja konur safn-
aðarins hver annarri og stuðla að frekara framlagi kvenna í starfi og stjórn-
un safttaðarins Hér fer á eftir skýrsla utn erindi Birthe sem hún flutti á
tneðan á heimsókn hennar stóð. Ritstj.
Heimsókn Birthe Kendel helgina 23.-
25. mars var mjög ánægjuleg. A föstu-
dagskvöld fjallaði hún um Störf og
hlutverk kvenna almennt innan safn-
aðarins og syndi litskyggnur frá ýmsum
löndum til frekari glöggvunar, m.a. frá
Skipulagsnefnd helgarinnar: Úlfhildur,
Guðný og Unnur.
Finnlandi og Pakistan. Á eftir gaf hún sig
á tal við safnaðarmeölimi og var greini-
legt að margar konur syndu erindi henn-
ar áhuga.
Á hvíldardeginum hélt hún fjögurra
stunda námskeið um sama efni. Þátttaka
Birthe Kendel og Unnur í rceðustóli.
var tæplega þijátíu manns. Hvatti hún til
þess að:
1. Sent yrði bréf til stjórnar Samtak-
anna, þar sem þess væri farið á leit að
leiðtogi yrði valinn til þessara starfa.
2. Hver söfnuður skuli velja sér leiðtoga
í samvinnu við safnaðarprest og myndi
þannig starfshóp.
3. Gerð yrði könnun á þörfum kvenna
(needs survey) í hveijum söfnuði. Könn-
unina mætti síðan nota til að undirbúa
námsdaga fyrir konur, athuga þörf fyrir
lesefni og þýðingar.
4. Konur riti greinar í safnaðarblaðið
urn málefni kvenna.
5. Kannað yrði hvort áhugi væri á náms-
styrkjum o.f.l.
Gerð var könnun á áhugasviðum. Þar
kom í ljós að áhugi var mestur á efninu að
biðja (15), í næst efsta sæti komu heilsu-
boðskapur og biblíurannsóknir (14), í
þriðja sæti að vera kristinn í vinnunni,
uppeldismál og málefni fjölskyldunnar
(13), í fjórða sæti voru lexíusmáhópar,
ofbeldi gegn börnum og hlutverk kvenna
í söfnuðinum (12), og í fimmta sæti kon-
ur í kristilegu starfi (11). Onnur svör voru
Framhald á næslu sídu.
AðventFréttir
3