Aðventfréttir - 01.02.1995, Side 12
FRÉTTAMOLAR
Sigurmunda Skarphéðinsdótdr og
Eggert Isólfsson eignuðustson 19. desem-
ber 1994 sem var 13 merkur og 51 cm.
Hann hefur hlotið nafnið Isólfur.
Hulda Björnsdóttir og Ghasoub Abed
eignuðust son þann 28. nóvember 1994.
Hann heitir Sverrir Salam sem var 11
merkur og 49 cm.
Válegir viðburöir á
Hlíöardalsskóla
Gestum sem þekkja til staðarins
bregður í brún þessa dagana þegar þeir
heimsækja Hlíðardalsskóla þar eð ein
elsta og merkasta bygging staðarins er
fallin. Eldur kom upp í Vindheima-
bústaðnum sunnudaginn 5. mars s.l. og
var slökkvilið kallað til eftir að heima-
menn höíðu gengið vaskelga fram við að
ráða niðurlögum eldsins. Slökkviliðs-
menn yfirgáfu staðinn við kvöldmatar-
leyti eftir að hafa talið sig hafa slökkt að
fullu en um nóttina vöknuðu menn við
að húsið stóð í björtu báli að nýju og
brann það þá til kaldra kola. Eldsupptök
eru talin vera óvarfærnisleg meðferð elds
í kjallara hússins. Húsið, sem var
bárujárnsklætt, forskalað timburhús,
Brunarústir Vindlieimshússins
Riístir gróðurhússins.
byggt kringum aldamótin, var eina byg-
gingin, auk súrheysturns að baki hússins,
sem eftir stóð af þeim húsakosti sem var
ti! staðar þegar söfnuðurinn keypti
jörðina á fimmta áratugnum.
Og sjaldan er ein báran stök! Skömmu
seinna gerðist það í miklu hvassviðri og
skafrenningi þann 16. mars að snjó skóf
svo heiftarlega að gróðurhúsi því sem
Pétur Pétursson hefur haft á leigu á
staðnum að húsið féll saman. Af þessu
hlaust mikið tjón því í húsinu voru 4000
tveggja ára trjáplöntur og grænmeti.
Enn er óvíst hvort tryggingabætur fást
vegna þessara tjóna við umræddar
aðstæður.
Aðventfréttir óska þessum
foreldrum innilega til ham-
ingju og Guðs blessunar
í framtíðinni.
26. MAI
Söngdagskrá á vegum
kirkjukórs
Reykjavíkursafnaðar í Aðven-
tkirkjunni í Reykjavík kl 20:00
27. MAÍ
Skírnarhátíð í Aðventkirkjun-
ni í Reykjavík
kl 16:00
22. - 26. JÚNÍ
Æskulýðsmót
29.JÚNÍ-7.JÚLÍ
Heimsráðstefna Aðalsam-
takanna í Utrecht, Hollandi
4. - 7. ÁGÚST
Sumarmót að
Hlíðardalsskóla