Aðventfréttir - 01.04.1996, Blaðsíða 8
Fordæmi Krists fólst í stöðugum sam-
ræðum, aðvörunum, hvatningum, fyrir-
gefningum og endursköpun. Jafnvel
Júdas dró í lengstu lög að yfirgefa Krist
því hann kunni að meta það og vildi
meira af því sem hann sá í fari hans. Agi,
sem er beitt skynsamlega, gefur barninu
meiri sjálfsvirðingu og betri hegðun.
I þýðingu sinni á Ef 2 kemur Eugene
Peterson þessu vel til skila: „Hann tók
líkama okkar dauða af synd, og gjörði
okkur lifandi í Kristi,, Nú erum við þar
sem Guð vill hafa okkur og hann gefur
sér nægan tíma hér á jörðinni og um alla
eilífð til að úthella yfir okkur náð Krists
og vinsemd" (The Message). Ogun hefur
ekki að markmiði að „lemja úr mönnum
slæma hegðun", heldur að laða þá að
Kristi.
7. ERFIÐLEIKAR
Lífið er ekki auðvelt, allra síst líf for-
eldra. Erfiðlcikar koma upp á óheppileg-
ustu tímum og virðast gerðir til þess eins
að framkalla hið versta í okkur.
Kettlingurinn hennar Jennýjar sem
hún hafði nýlega fengið í afmælisgjöf
kom sér fyrir á viftureim bílsins í þann
mund sem bifreiðin var ræst og fjölskyld-
an var á leið til kirkju. Skal jarðsetja kött-
inn á meðan á guðsþjónustunni stendur,
eða að henni lokinni?
Nonni er alveg að komast í mark í hjól-
reiðakeppninni, 10 sekúndum á undan
næsta keppanda, þegar hann lendir á
steini og fellur á götuna. Hann er reiður
og sár en samt hreikinn yfir að hafa næst-
um því náð svo góðum árangri. Hvað á
pabbi að segja undir slíkum kringum-
stæðum?
Mamma og pabbi eru ósátt hvort við
annað og börnin vita af því. Hvort okkar
um sig telur sig hafa rétt fyrir sér, svo að
orð um fyrirgefningu og sátt eiga að
koma frá hinum aðilanum. En þá minn-
umst við ábyrgðar okkar sem fyrirmyndar
um kærleika Guðs.
Eitt barnanna kemur heim seinna,
miklu seinna, en um var talað. Er þá
viðeigandi að „vera góðviljaður"?
,AHir vinir mínir ætla í bíó í kvöld. Má
ég fara?" Listinn yfir vandamál tekur
engan enda! Og þó er þetta allt svo
spennandi, þar sem hver uppákoma
kallar á meiri visku en er til staðar og
hvert tilfelli er Guðs tækifæri til að sýna
mátt sinn í okkur. Fjórar meginreglur
hafa reynst okkur gagnlegar í meðhöndl-
un vandamála.
Brostu strax og dragðu djúpt að þér
andann. Þetta á eflaust eftir að versna!
Flest vandamál eru meðfærilegri eftir
að eldurinn hefur slokknað.
Biðjið Guð um hjálp, sameiginlega, ef
mögulegt er.
„Vertu góðviljaður/góðviljuð".
8. STUÐNINGUR
Jesús borðaði heima hjá Mörtu, fiskaði
með Pétri, gekk með hveijum sem var,
sagði börnum ótal sögur og var besti
vinur Lasarusar. Þar sem hann er for-
dæmi okkar í samskiptum okkar við
börnin, þá þýðir þetta að við munum
styðja hugmyndir þeirra, vini þeirra,
markmið, vonir og breytingar. Veittu
þeim stuðning líka þegar þeim finnst sem
enginn styðji þau. Mættu á keppnisleiki
þeirra. Njóttu þess að hlusta á hljóð-
færaæfingar jteirra. Hafðu lausan síma
fýrir maraþonsímtöl táninganna. Hlust-
aðu á tónlist þeirra. Hafðu gaman af
bröndurunum þeirra og njóttu jtess að fá
vini þeirra í heimsókn. Bjóddu upp á
poppkorn og pitsur og bakaðu þúsundir
terta fyrir þau.
Brostu.
Fadmabu.
Sjáðu til þess
að heimilib
sé alltaf
öruggasti
stadurinn
fyrir barníö þitt.
Knúsaðu börnin þín oft.
Láttu barnið aldrei fara í háttinn, í
skólann, til vinnu, eða jafnvel út að leika
sér án jtess að tjá því ást þína. Sýndu blíðu
og rósemi. Vertu hvetjandi. Spurðu skyn-
samlegra spurninga, þeirra spurninga
sem þau vilja helst ekki heyra frá þér.
Brostu. Faðmaðu. Sjáðu til þess að heim-
ilið sé alltaf öruggasti staðurinn fyrir
barnið þitt.
9. MISTÖK
Mistök eru undanfari fyrirgefningar.
Og fyrirgefning er undanfari þroska.
í minningabanka fjölskyldunnar er að
finna allmörg slæm mistök eins og t.d.
þegar pabbi öskraði á Nonna þegar hann
stöðvaði ekki bílinn við vegaskiltið á
ferðalaginu. Það var ljóta uppistandið
þegar reiði og tár fengu fulla útrás. En svo
kom fyrirgefningin í kjölfarið. Eða þegar
besti kokkur í heimi gerði hnetuböku
sem brann við og varð hörð eins og gijót.
Það tók langan tíma áður en hláturinn
lokkaði fram bros á vörum eldabuskunn-
ar. Slíkar minningar rifja upp sárindi og
fyrirgefningu. Og lof sé Guði fyrir það að
allt hefur þetta hjálpað okkur til að
þroskast. Farsæld er mikið undir því
komið hvernig þú meðhöndlar mistökin.
Samuel Beckett skrifaði: „Alltaf að
reyna. Alltaf að mistakast. Gerir ekkert til.
Reyndu bara aftur. Gerðu mistök aftur.
Gerðu betri mistök."
10. LEIKIR
Leikið ykkur saman.
Ein af uppáhaldsminningunum okkar
snýst um það þegar \ ið reyndum að telja
gervitunglin á stjörnubjörtum himn-
inum. Aðrar minningar eru frá bátsferð-
um á ánni, eða þegar við létum okkur
reka niður straumharða á í björgunar-
vestinu einu saman. Og ekki má gleyma
borðtennisleikjúnum, keiluspilunum,
pússlumyndunum og góðu myndbönd-
unum. Mundu bara að lykilorðið í þessu
öllu er „að vera santan."
Að leika sér. Að brosa. Að skapa minn-
ingar. Saman.
11. LEIÐARSTJÖRNUR
Farsælir foreldrar sækja styrk sinn í
sambandið við Krist. Eftirfarandi
leiðbeining Drottins hefur verið okkur
leiðarljós í foreldrahlutverki okkar: „Þér
skínið hjá þeim eins og ljós í heiminum.
Haldið fast við orð lífsins." Fil 2.15-16.
A okkar heimili köllum við Jesú
leiðarstjörnuna okkar sem við getum
snúið okkur til af mikilli alvöru þegar
taka þarf stórar ákvarðanir, eða þegar
lífið leikur okkur grátt.
Það er afar mikilvægt í mótunarferli
barnanna að þau geti eignast slíkt
leiðarstjörnusamband. Þau sjá að okkur
foreldrunum reynist farsælt að treysta
Guði, Orði hans og leiðbeiningum góðra
vina. Því munu þau einnig vilja tileinka
sér það sem virkar í lífi okkar.
Því miður getum við ekki gefið |)ór ein-
falt kerfi sem örugglega verður til þess að
börn meðtaki Jesú Krist sem frelsara. Við
höfum hins vegar sýnt fram á leiðir sem
okkur hafa reynst árangursríkar. Haltu
þétt í hendi Guðs og haltu líka þétt í
hendur barnanna þinna. Kreistu hvort
tveggja og brostu. I brosi okkar og hand-
taki finna börnin kærleika Guðs. Og í
hlýju kærleika okkar getur vel farið svo að
þau uppgötvi að Kristur og samfélag við
hann reynist einfaldlega ómótstæðileg.
Brenda og Richard Duerksen eru
mamma ogpabbi sem sinna foreldra-
hlulverki sínu med því ad tengja
börnin sín upþsþrettu frelsis og kær-
leika, hinum ómótstcedilega frelsara
okkar.
Þýöandi: Sleinþór Þórbarson
8
AðventFréttir