SSFblaðið - 01.12.2007, Side 4
HVAR VARSTU?
Bloggað með
Jósep Valur Guðlaugsson er tölvunarfræð-
ingur sem vinnur hjá CURRON dótturfyrir-
tæki SPRON. Þar hefur hann verið að smíða
snertilaust kortakerfi sem er m.a. í notkun
hjá N1 og Lyfju. Fyrirhugað er einnig að taka
kerfið upp á sundstöðum ÍTR á fyrrihluta
næsta árs.
En Jósep hefur einnig gaman af því að
ferðast, sjá eitthvað sem er öðruvísi og
kynnast skemmtilegu fólki um allan heim.
„Mig langaði að fara eitthvert langt í burtu og
mér fannst Mexíkó áhugaverð svo að ég
ákvað að fara þangað í þetta sinn. Mig
langaði líka að kynnast sjálfum mór betur og
fór því einn, skilja sem flest eftir af þessu
sem ég þekki hérna og stunda örlitla nafla-
skoðun í nýju umhverfi. Þegar ég horfi til
baka og skoða fólkið sem ég sóttist eftir
kynnum við í ferðinni, opnar það augu mín
betur fyrir því hver ég er.“
Jósep gisti á ýmsum stöðum og helst far-
fuglaheimilum. Hann kynntist að vonum
fjölda manns og segir suma hafa verið
skrautlega. „Það var allt frá rugludöllum og
upp í vísindamenn," segir hann. Sumir höfðu
verið mánuðum og jafnvel árum saman á
símanum
flakki, einir. Höfðu kannski byrjað norðarlega
á hnettinum og héldu svo áfram suður og
austur eftir því sem hugur þeirra leitaði."
Ooxaca héraðið
01:39 Wednesday 27 December. 2006
í 13 klst akstursfjarlægð er Ooxaca
héraðið. Fólkið er einstaklega vinalegt.
Stelpurnar horfðu á mig, brostu, flissuðu,
sögðu „handsome superman" og álíka
orð svo ég gat ekki annað en brosað út í
eitt. Ég reyndi að tala og gera mig framm-
bærilegan en það gekk brösulega þar til
enskumælandi öldungur greip inn í og
sagði að hann væri ekki að tala spænsku
heldur frumbyggjamál.
Matareitrun
05:04 Friday 22 December. 2006
Ég er of slappur til að gera eitthvað í dag.
Er að blogga með nefinu, með hita og er
að berjast við rúnstykki. Tómas fór með
mig til læknis sem lét mig fá lyfjapakka.
Segir að ég verði líklegast mikið betri á
morgun en taki nokkra daga að verða
100%.
Jólin
Ferðin tók um hálfan mánuð, þar á meðal öll
jólin 2006. „Það var gaman að fylgjast með
jólahaldinu og halda upp á jól í stuttbuxum
og 30 stiga hita. Mér fannst áberandi hvað
trúin er mikil í jólahaldi hjá þeim, líkneski af
Maríu mey alls staðar og fallegar skreytingar.
Ég sá einnig skraut snjókarla út um allt þrátt
fyrir hitann. Ég frótti hjá áströlsku pari sem
ég hitti, að kona nokkur sem rekur farfugla-
heimili í bænum Tulum hefði ákveðið að
halda upp á jólin fyrir ferðalanga. Ég ákvað
að taka þátt í þessari hátíð og endaði með
því að halda upp á jólin með fólki úr öllum
heimshornum."
Andstæður
MexiTó er land andstæðna að sögn Jóseps.
Honum fannst merkilegt að geta verið á gangi
eftir götu sem hefði getað verið í hvaða stór-
borg sem var en um leið og farið var inn í
hliðargötu, var heimurinn allur annar. „Það eru
ótrúlegar andstæður þarna. Verðmætamatið
er líka allt annað. Ég sá t.d. 400 fm glæsilega
höll þar sem nágranninn við hliðina bjó í 50
fm strákofa. Þá var þarna líka subbulegur
strákofi en fyrir utan stóð nýr eldrauður jeppi.
Fólk leggur alment ekki eins mikla áherslu á
að eiga fallegt hús og er meira úti við.“
Tæknin
Tækninni er ekki fyrir að fara á þeim stöðum
sem Jósep heimsótti en hann lét það ekki á
sig fá og forritaði símann sinn þannig að
hann gæti notað hann til að blogga.
„Það var þægilegt að geta bloggað á þennan
máta og leyft fólkinu heima að fylgjast með
mér. Eitt sinn þegar ég veiktist bloggaði ég
um það og fimm mínútum seinna voru fimm
manns búnir að hringja í mig til að kanna
hvernig mér leið!“
Jósep segist ánægður með ferðina og er að
plana aðra. Hvert farið verður er leyndarmál
ennþá en víst er að hann mun halda áfram
að lifa í ævintýri þess sem þorir að láta
draumana rætast.
4