SSFblaðið - 01.12.2007, Blaðsíða 5
ERLENT
Fréttir af félögum okkar
á Norðurlöndum
Frá Noregi
Nýlega var haldið þing norskra samtaka
starfsmanna fjármálafyrirtækja. Þar eru
starfsmenn banka og tryggingafyrirtækja
saman í stéttarfélagi. Jorunn Berland var
endurkjörinn formaður en hún situr þar með
sitt þriðja tímabil í forsæti samtakanna.
Þingið samþykkti að lengja tímabil milli þinga
úr tveimur árum í þrjú. Á síðasta kjörtímabili
var stærsta viðfangsefnið deila við viðsemj-
endur um samningsrétt félagsins um lífeyris-
kjör félagsmanna. Þeirri deilu lauk með því
að félagið boðaði til verkfalls sem tók gildi í
áföngum. Viðsemjendur svöruðu með vinnu-
banni og þegar deilan var komin í hnút setti
norska stórþingið lög sem bönnuðu verkfallið
vegna þjóðarhagsmuna og þar á eftir fylgdi
skipun sáttanefndar sem gerði tillögu
atvinnurekenda að sinni og sú gildir.
Finansforbundet hefur leitað réttar síns í
þessu máli hjá alþjóðastofnunum og eru
úrslit ekki komin. Við þingslit hélt endur-
kjörinn formaður ræðu þar sem hún lýsti því
hvert væri markmið þessa kjörtímaþils. Fram
kom að meginmarkmiðið er að Finansfor-
bundet verði besta stéttarfélag í Noregi.
í Svíþjóð
Sænsk verkalýðsfélög hafa sett af stað
átaksverkefni sem miðar að því að kynna
starfsemi félaganna og gera starfandi fólki á
vinnumarkaði Ijóst að þátttaka í starfi félag-
anna er mikilvæg fyrir alla aðila. I Sviþjóð eru
þankamenn og tryggingamenn í sitt hvoru
félaginu og jafnframt er talsvert um að
háskólamenntaðir starfsmenn fjármálafyrir-
tækja gangi í félög háskólamanna þannig að
endurnýjun í félagi starfsmanna fjármálafyrir-
tækja í Finansforbundet þar verður í raun lítil
á sama tíma og stórir hópar félagsmanna
fara á eftirlaun ár hvert. Þessi þróun veldur
því að í raun fækkar félagsmönnum í
Finansforbundet í Svíþjóð talsvert á hverju
ári. í Svíþjóð eru starfsmenn fjármálafyrir-
tækja félagsmenn í Finansforbundet og í
samtökum háskólamenntaðra starfsmanna
en starfsmenn tryggingafélaga eru félags-
menn í FTF samtökum tryggingamanna.
í Finnlandi
Skipulagi félaga í Finnlandi háttar svipað til
og hjá Svíum. Starfsmenn fjármálafyrirtækja
eru meðlimir í Suora en starfsmenn trygg-
ingafélaga eru flestir með aðild að FMF.
Tryggingamenn í Finnlandi (FMF) gerðu
nýlega kjarasamning þar sem samnings-
tíminn er frá 1.11. 2007 til 30.9. 2011. Þessi
samningur gefur þeim á rúmu einu ári launa-
hækkanir um 10%. Síðan eru ný ákvæði um
launasamtal, sem á að taka upp árið 2009.
Slíkt samtal á að skila a.m.k. 1% launa-
hækkun árið 2010.
Aðilar munu síðan setjast að samningaborði
haustið 2010 og kanna hvernig launasam-
talið skilar sér og semja um lokahækkun
samninganna í kjölfarið á þeim viðræðum.
Ef samningar nást ekki er unnt að segja
launaliðnum upp haustið 2010. Ef samningar
nást þá gilda samningarnir til 30.9. 2011.
Samningar Suora eru í gangi núna.
í Danmörku
Dönsku samtökin, Finansforbundet og DFL
eru kröftug og hafa verið í talsverðri félags-
legri uppsveiflu. í Finansforbundet hefur
forystusveitin leitt starf í að móta starfsað-
ferðir sem miða við að koma á viður-
kenndum og góðum stjórnarháttum. Þetta
nefnist á þeirra máli Union Governance og á
sér hliðstæðu í stjórnunarfræðum sem
Corporate Governance. Þessi aðferðafræði
gengur út á að auka gagnsæi starfseminnar
og tryggja virkt lýðræði meðal félagsmanna.
Sl. ár hefur verið talsverð eftirspurn eftir
starfsmönnum í fjármálafyrirtækjum í Dan-
mörku. í Danmörku eru tryggingamenn
félagar í DFL en starfsmenn fjármálafyrirtækja
starfsmenn í Finansforbundet. Þessi tvö
samtök deila með sér húsnæði og samnýta
ýmsa þætti starfseminnar.
Frá NFU
NFU, Nordiska finansanstálldas union, eru
norræn samtök starfsmanna fjármálafyrir-
tækja. Aðilar að þeim eru viðeigandi samtök
í hverju landi. Formaður er Allan Bang sem
jafnframt er formaður danska sambandsins.
Fiann hefur einnig valist til formennsku í
Evrópusamtökum starfsmanna fjármálafyrir-
tækja UNI finance, en þau eru með starfsemi
í Nyon og Brussel.
Jan Erik Lidström hefur verið framkvæmda-
stjóri NFU frá árinu 1977. Flann lætur af
störfum vegna aldurs í lok 2008. Til að taka
við af honum hefur verið valin Christina
Jayne Colclough sem er hámenntuð í
atvinnulífsfræðum og hefur lokið doktorsnámi
á því sviði. Hún mun hefja störf í janúar 2008
þannig að fráfarandi og viðtakandi fram-
kvæmdastjórar starfa saman í 12 mánuði.
Starfsemi NFU í
Eystrasaltslöndunum
NFU hefur í allmörg ár haft starfsmann sem
sinnt hefur því viðfangsefni að koma á fót
stéttarfélagi í Eystrasaltslöndum. Á tímum
Sovétstjórnar var þessum félögum stjórnað
af ríkinu og því hafa stéttarfélög átt erfitt
uppdráttar eftir fall þess veldis. Best hefur
starfið gengið í Litháen og þar hefur nú verið
stofnað félag starfsmanna fjármálafyrirtækja.
Þetta félag hefur þegar verið samþykkt sem
aðili að Evrópusamtökum og nýtur stuðnings
samtaka innan norrænu fyrirtækjanna sem
eru starfandi í landinu. Jan Erik Lidström,
framkvæmdastjóri NFU, var af þessu tilefni
heiðraður sérstaklega af ríkisstjórn Litháen
fyrir framlag sitt til við að efla starfsemi
stéttarfélaga í landinu.
5