SSFblaðið - 01.12.2007, Qupperneq 7

SSFblaðið - 01.12.2007, Qupperneq 7
VIÐTAL Hún horfir yfir sundin blá og fylgist með Esjunni skipta litum eftir árstíðum. Stjórnar frá skrifborði sínu í hornskrif- stofu á 4. hæð í húsi sem eitt sinn hýsti fiskvinnslu en er nú eitt af stærri fjármála- fyrirtækjum landsins, Glitnir. Birna Einars- dóttir heitir konan sem stjórnar viðskipta- bankanum. Hún er með Ijóst og stutt hár, snaggaraleg í hreyfingum, hlýleg en um leið ákveðin í fasi. Enda vön því að þurfa að skipuleggja og stjórna. Daglegt líf „Dagurinn hjá mér er þétt setinn fundum,“ segir Birna þegar við höfum komið okkur fyrir við lítið kringlótt fundarborð í skrifstofu hennar. „Ég funda með nánustu samstarfsmönnum mínum reglulega og svo öðrum sem þarf að funda með. Svo heimsæki ég útibúin, fer til útlanda og funda þar með samstarfsaðilum okkar, m.a. í Noregi og Finnlandi þar sem við erum með smásöluþjónustu. Starf mitt felst að miklu leyti í því að móta stefnu viðskipta- bankans og hafa yfirsýn yfir það sem er að gerast á þessu sviði. Ég bý til umgjörð fyrir það frábæra fólk sem vinnur með mér og ég treysti til að stjórna daglegum samskiptum við aðra. Síðast en alis ekki síst lít ég til morgundagsins - reyni að sjá fyrir það sem framtíðin ber í skauti sér. Ég er ekki hér til að slökkva elda alla daga, tii að taka á smámálum sem koma upp. Ef ég væri í því, kæmumst við ekkert áfram, sætum á sama „leveli" alla tíð,“ segir Birna. Maðurinn í Edinborg Birna er fædd í Reykjavík en á ættir sínar meðal annars að rekja í Rangárvallarsýslu. Hún eyddi löngum stundum í sveit, á Skarði í Rangárvallarsýslu, þegar hún var barn og unglingur. Þar segist hún hafa lært að stjórna og blóta meðal annars! „Vinnumennirnir segja að ég hafi vakið þá með stunguskóflu á morgnana en ég segi þá bara að það komi bara upp um það hvað þeir voru lengi að koma sér á fætur! Birna segist hafa farið klassíska leið í námi. í Versló, þaðan í viðskiptafræði í HÍ og svo í framhaldsnám í Edinborg í Skotlandi. „Mér finnst reyndar, svona eftir á að hyggja, að ungt fólk eigi að nota sér það frelsi sem það hefur og fara óhefðbundnar leiðir í námi. Læra það sem það langar tii þó svo það sé á skjön við endanlegt markmið. Allt nám er til góðs og ekkert sem segir að bankastarfs- maður hafi ekki gagn af því að læra líffræði eða hagfræðingur heimspeki. Það eykur bara skilning fólks og hæfileika til að takast á við fjölbreytilegt umhverfi nútíma starfshátta." í Skotlandi kynntist Birna verðandi eigin- manni sínum, James Hine, prófessor í við- skiptasiðfræði við Edinborgarháskóla. Þau eiga saman dótturina Ellen Melkorku en hún er 8 ára. „Við höldum heimili bæði á íslandi og í Skotlandi en til allrar hamingju leyfir vinna James honum að vinna talsvert að heiman. Það þýðir að hann dvelur mun meira hér en ég í Skotlandi," segir Birna. Kona í karlaheimi Það eru ekki margir kvenstjórnendur fyrir- tækja jafn hátt settir og Birna. Það liggur því beint við að spyrja hvernig henni líði sem konu í karlaheimi? „Mér hefur alltaf líkað það vel og þykir féiags- skapur karla alveg jafn skemmtilegur og félagsskapur kvenna" svarar hún. „Það væri auðvitað gaman að hafa fleiri konur í efstu stöðum fyrirtækja en ég get ekki sagt annað en það hafi reynst mér auðvelt að starfa að miklu leyti með körlum. Andrúmsloftið í stjórnunarteymi Glitnis er líka með þeim hætti að mér líður vel hér. Menningin í fyrir- tækinu er kannski önnur en sums staðar annars staðar þar sem karlarnir halda sig hver með öðrum, hér er helst spurningin hver fer út að hlaupa með hverjuml! Að minnsta kosti er ekki um neina klíkumyndun að ræða - nema að ég sé að missa af einhverju! í mínu stjórnendateymi hér heima eru margar góðar konur sem standa sig frábærlega vel. Annað sem skiptir verulegu máli er að ég hef verið svo heppin að fá með mér fólk sem hefur mikinn áhuga á starfi sínu og hefur með því hjálpað til að fyrirtækið hefur vaxið og starf þess með. Það er nefnilega svo að starfsmaður sem lítur aðeins lengra en að bara skila lágmarksdagsverki, sem gefur sér smátíma til að kynnast umhverfi sínu og vex í starfi, hann hefur alla möguleika á að fara hvert sem hann vill innan fyrirtækisins." Orðsporið fylgir okkur Birnu er mikið í mun að koma þeim skila- boðum til starfsfólks í fjármálafyrirtækjum hvað starf þeirra sem starfa hér á landi er mikílvægt. Hún segir að orðspor fyrirtækisins á heimamarkaði fylgir þeim hvert sem þau fari og að hingað sæki fjölmiðlar og aðrir upplýsingar um það hvernig fyrirtækið stendur sig. Útrás bankanna byggi á þeim grunni sem lagður var hér á landi af því fólki sem hér starfar. Einkalífið Vinnan tekur stóran hluta tímans hjá Birnu og hún segist gjarnan nota kvöldin eftir að dóttirin er komin í ró til að skipuleggja næsta dag. „Ég fer yfir óhemju mikinn tölvupóst, bý til skýrslur og kynningar og reyni að finna leið til að koma hugmyndum mínum á framfæri. Það þýðir ekkert fyrir mig að gera það á daginn, það gefst einfaldlega ekki tími til þess. Það er kúnst að sameina fjölskyldulíf og viðskiptakarríer en mér hefur tekist að gera það til þessa.“ Þegar tími gefst til, hittir Birna vini sína og ferðast með fjölskyldunni. „Ég fer á skíði með fjölskyldu og vinum og var einu sinni í hestamennsku en ekki lengur." Hún segist hafa gaman af því að koma til Ítalíu, Spánar og Frakklands en uppáhaldsborgin sé New York. „Svo er auðvitað alltaf gott að koma heim til Edinborgar. Kosturinn við að halda annað heimili þar er sá að þetta er nálægt. Svona svipað og að fara austur á land með flugvél. Það er mjög gott að búa í Skotlandi og mér tekst að slappa vel af þar,“ segir Birna að lokum. Enda tíminn sem ætlaður var í viðtalið löngu liðinn og aðrir gestir farnir að bíða eftir framkvæmdastjóranum. 7

x

SSFblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SSFblaðið
https://timarit.is/publication/980

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.